Íbúðauppbygging fer hægt af stað

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Íbúðir í byggingu eru um 8% færri en á sama tíma í fyrra
  • Talsvert færri íbúðir eru á fyrri stigum framkvæmda en fyrir ári síðan
  • Marstalning HMS er að hefjast

Nýjustu tölur um stöðu framkvæmda sýna að uppbygging íbúða hefur verið hægari það sem af er ári en á sama tíma í fyrra. Íbúðum í byggingu hefur fækkað um 8% milli ára og fullbúnar íbúðir í janúar voru um 60% færri en árið áður. Þá sýnir dreifing íbúða eftir matsstigum að færri verkefni eru á fyrri stigum framkvæmda en í fyrra, sem bendir til þess að færri nýframkvæmdir hafi hafist á undanförnum mánuðum samanborið við stöðuna fyrir ári.

Fáar íbúð­ir urðu full­bún­ar í jan­ú­ar

Samkvæmt mælaborði íbúða í byggingu er nú skráð 5.921 íbúð í byggingu víðs vegar um landið. Það er lítils háttar fækkun frá síðasta mánuði og 8% færri en á sama tíma í fyrra. Árið fer jafnframt hægt af stað en aðeins 164 íbúðir urðu fullbúnar í janúar, sem er um 60% fækkun frá janúar í fyrra þegar þær voru 409 talsins. Að jafnaði hafa um 300 íbúðir orðið fullbúnar í janúar síðustu sex ár.

Á sama tíma eru 1.038 byggingaráform skráð, það er íbúðir sem hafa fengið útgefið byggingarleyfi en framkvæmdir eru enn óhafnar. Í febrúar í fyrra voru slík áform um 15% færri, eða 881 talsins.

Færri íbúð­ir á fyrri mats­stig­um en fyr­ir ári síð­an

Samkvæmt mælaborðinu eru flestar íbúðir á matsstigi 4, eða um 30 prósent, sem þýðir að þær eru orðnar fokheldar. Um 28% eru á matsstigi 2 þar sem undirstöður eru tilbúnar, og um 20 prósent á matsstigi 5 þar sem ytri frágangi er að mestu lokið og eftir stendur innanhússfrágangur á borð við gólfefni og uppsetningu innréttinga. Nánari skiptingu íbúða í byggingu eftir matsstigum má sjá á grafinu hér að neðan.

Samanburður á stöðunni í febrúar 2025 og febrúar 2026 sýnir hins vegar skýra breytingu. Í fyrra voru mun fleiri íbúðir á fyrri matsstigum, einkum á matsstigi 2. Þar munaði 1.062 íbúðum, eða 40 prósentum. Þar sem færri íbúðir eru nú á fyrri stigum byggingarferlisins gæti það haft áhrif á framboð nýrra fullbúinna íbúða síðar á árinu sem og byrjun næsta árs.

Ár­leg mar­staln­ing HMS að hefj­ast

HMS framkvæmir talningu á íbúðum í byggingu tvisvar á ári, í mars og september. Nú hefst marstalningin undir lok febrúar og verða niðurstöður kynntar í mars. Öll helstu byggingarsvæði landsins verða heimsótt og staða framkvæmda metin á vettvangi, sem veitir ítarlegri og áreiðanlegri upplýsingar um stöðu og horfur í uppbyggingu íbúðarhúsnæðis.

Ólíkt mælaborðinu nær talningin einnig til fullbúinna íbúða á matsstigi 7 sem ekki hafa verið teknar í notkun. Samkvæmt gögnum HMS hefur talsverður fjöldi safnast upp á því stigi. Slík uppsöfnun óseldra íbúða getur haft áhrif á nýframkvæmdir ef sala gengur hægt. Niðurstöður talningarinnar munu því varpa skýrara ljósi á þróun uppbyggingar á árinu.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS