20. maí 2026
20. maí 2026
Hver kemur þér til bjargar? Þörf á kerfisbreytingu í starfsemi slökkviliða
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Staða slökkviliða á Íslandi kallar á kerfisbreytingar og aukið fjármagn
- Þrátt fyrir mikla aukningu í fjárframlögum duga þau víða ekki til að slökkvilið geti sinnt lögbundnum kröfum
- HMS leggur til að áhættumati verði komið, að samvinna verði aukin á meðal slökkviliða og að stofnaður verði sérstakur brunamálasjóður
Ný greining HMS í Vegvísi að framtíðarskipulagi slökkviliða, sem kynntur var á opnum fundi í dag, sýnir að staða slökkviliða á Íslandi er víða veik og að ekki hefur tekist að tryggja samræmda og fullnægjandi viðbragðsgetu um land allt. Lesa má vegvísinn með því að smella á hnappinn hér að neðan.
Vegvísir að framtíðarskipulagi slökkviliða
Fjárframlög sveitarfélaga til brunavarna hafa rúmlega tvöfaldast á síðasta áratug og námu rúmum sex milljörðum króna árið 2024. Þrátt fyrir þessa aukningu í fjárframlögum sýna niðurstöðurnar verulegan mun á stöðu slökkviliða milli landshluta og sveitarfélaga, þar sem minni slökkvilið standa almennt verr að vígi en stærri lið.
Markmið Vegvísisins er að leggja fram skýra stefnu og tillögur að kerfisbreytingum sem tryggja aukið öryggi um land allt. Helstu niðurstöður í vegvísinum eru eftirfarandi:
- Fjárframlög til slökkviliða duga víða ekki til að uppfylla lögbundnar kröfur
- Verulegur munur er á viðbragðsgetu sem hefur áhrif á öryggi íbúa og jafnræði í þjónustu
- Stærri slökkvilið standa almennt betur en minni liðin
- 60% slökkviliða uppfylla ekki kröfur um reykköfunarréttindi
- Æfingar og þjálfun ná víða ekki lágmarkskröfum
- Um 60% slökkviliða búa ekki við fullnægjandi húsakost og aðstöðu
- Eldvarnareftirlit er víða ekki framkvæmt í samræmi við áætlanir
Greiningin sýnir jafnframt að núverandi skipulag slökkviliða endurspeglar ekki nægjanlega raunverulega áhættu og þjónustuþörf á hverju svæði fyrir sig. Í samanburði við önnur Norðurlönd hefur þróunin þar verið í átt að áhættumiðuðu skipulagi, þar sem viðbúnaður og þjónustustig slökkviliða byggjast á áhættugreiningu.
Áskoranir slökkviliða á Íslandi eru bæði fjárhagslegar og kerfislægar og snúa að skipulagi rekstrareininga, mönnun, aðgengi að sérhæfðri þekkingu og getu sveitarfélaga til að standa undir rekstri í samræmi við lögbundnar skyldur. Að mati HMS verður ekki hægt að tryggja fullnægjandi öryggi íbúa nema með grundvallar kerfisbreytingu á skipulagi slökkviliða samhliða auknu fjármagni til málaflokksins.
HMS leggur fram tillögur sem miða að því að:
- Skipulag slökkviliða byggist á áhættumati fremur en föstum lágmarksviðmiðum
- Aukin verði samvinna og sameining slökkviliða til að styrkja stærri rekstrareiningar sem geta sinnt lögbundnum verkefnum slökkviliða
- Komið verði á fjárhagslegum hvötum, m.a. með stofnun brunmálasjóðs, til að styðja við samstarf og uppbyggingu
Myndir frá viðburðinum
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS









