6. október 2026

HMS veitti 49 hlutdeildarlán á þriðja ársfjórðungi 2026

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Samþykktar voru 49 umsóknir um hlutdeildarlán að fjárhæð samtals 730 milljónir króna
  • Um fjórar af hverjum tíu vilyrðum samþykktum umsóknum voru vegna íbúðakaupa utan höfuðborgarsvæðisins
  • HMS samþykkti á sama tíma 210 íbúðir sem hægt er að kaupa með hlutdeildarláni, en flestar þeirra voru í Sveitarfélaginu Árborg og í Hafnarfirði

HMS samþykkti 49 umsóknir um hlutdeildarlán á þriðja ársfjórðungi 2026. Heildarfjárhæð lánsvilyrða nam um 730 milljónum króna og meðalfjárhæð vilyrðis var 14,9 milljónir króna.

Alls voru 115 umsóknir til yfirferðar í júlí, ágúst og september.

Á sama ársfjórðungi í fyrra voru samþykktar 57 umsóknir fyrir um 766 milljónir króna. Það sem af er ári hafa hins vegar við samþykktar 256 umsóknir fyrir tæplega 3,8 milljarða króna, sem er meira en tvöfalt fleiri en á fyrstu níu mánuðum síðasta árs og þegar meira en allt árið 2025.

Frá því að hlutdeildarlán voru fyrst veitt haustið 2020 hefur HMS samþykkt rúmlega 1.400 umsóknir fyrir samtals um 16,3 milljarða króna.

Flest vil­yrði voru veitt vegna íbúða­kaupa í Hafnar­firði

Af 49 samþykktum umsóknum á þriðja ársfjórðungi voru 29 vegna kaupa á höfuðborgarsvæðinu og 20 utan þess. Flestarvoru vegna kaupa í Hafnarfirði, eða alls 18.

Taflan hér að neðan sýnir fjölda samþykktra umsókna og fjárhæð lánsvilyrða eftir landshlutum. Meðalkaupverð íbúða var 60,7 milljónir króna. Samþykkt lánsfjárhæð nam að meðaltali 24,6% af skráðu kaupverði.

Flest­ar nýj­ar íbúð­ir í Sveit­ar­fé­lag­inu Ár­borg

Á þriðja ársfjórðungi bættust 210 nýjar íbúðir við framboð íbúða sem hægt er að kaupa með hlutdeildarláni. Þetta eru íbúðir sem HMS hefur staðfest að uppfylli skilyrði lánanna, meðal annars um stærð og hámarksverð, óháð því hvort þær seljast á endanum með hlutdeildarláni eða ekki.

Af þessum íbúðum voru 138 utan höfuðborgarsvæðisins, eða um 66%. Flestar voru í Sveitarfélaginu Árborg, eða 66, og í Hafnarfirði, þar sem þær voru 45. Þá voru 25 íbúðir í Reykjanesbæ, 20 í Sveitarfélaginu Ölfusi og 15 í Reykjavík. Samtals voru 72 íbúðir á höfuðborgarsvæðinu og 94 á Suðurlandi.

Samþykkt hámarksverð íbúðanna var að meðaltali um 69 milljónir króna á höfuðborgarsvæðinu og um 60 milljónir króna utan þess. Íbúðirnar utan höfuðborgarsvæðisins voru stærri, að meðaltali um 87 fermetrar á móti um 79 fermetrum á höfuðborgarsvæðinu. Meðalhámarksverð allra nýrra íbúða var um 63 milljónir króna, sem er um 2,5% raunverðslækkun miðað við sama ársfjórðung í fyrra. Um 75% íbúðanna voru með tvö eða þrjú svefnherbergi.

Kortið hér að neðan sýnir fjölda nýrra íbúða sem samþykktar voru í hlutdeildarlánaúrræðið á þriðja ársfjórðungi, skipt eftir landshlutum. Tölurnar ná til íbúða sem ekki höfðu áður verið samþykktar í úrræðið, óháð því hvort þær hafa verið seldar eða ekki.

Opið fyr­ir um­sókn­ir í októ­ber

Opið er fyrir umsóknir um hlutdeildarlán í október en umsóknartímabilið stendur til kl. 12:00 þann 14. október.

Nánari upplýsingar um hlutdeildarlán og umsóknarferlið má finna á Ísland.is.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS