1. júlí 2026
3. júlí 2026
HMS kynnti tillögu að fyrsta heildstæða hluta nýrrar byggingarreglugerðar
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Tillögur HMS að nýjum 3. hluta byggingarreglugerðar um innivist voru kynntar á opnum fundi í gær
- Með nýrri framsetningu er opnað fyrir fjölbreyttari lausnir og lágmarkskröfur skýrðar
- Aukin stuðningur við fagaðila með gerð leiðbeininga
Hluti 3 um innivist tekur efnislega til núgildandi 10. og 11. hluta byggingarreglugerðar og fjallar um eftirfarandi atriði:
- Loftgæði og loftræsing
- Ljósvist
- Raki
- Hljóðvist
Drög að 3. hluta byggingarreglugerðarinnar um Innivist ásamt greinargerð um breytingar má finna hér þar er einnig hægt að skila ábendingum rafrænt. Ábendingar sem berast á samráðstíma verða nýttar við áframhaldandi vinnslu tillagnanna.
Aukin stuðningur við fagaðila með gerð leiðbeininga
Ein af mikilvægustu breytingunum í endurskoðuninni er skýr aðgreining milli reglugerðar og leiðbeininga.
Reglugerðin skilgreinir markmið og kröfur en leiðbeiningarnar styðja við framkvæmdina með nánari útskýringum, dæmum og leiðum til að uppfylla kröfur, sem taka mið af fyrirhuguðum notum mannvirkis.
Með þessu verður nýja reglugerðin einfaldari og skýrari, á meðan leiðbeiningarnar geta þróast samhliða nýrri þekkingu, nýjum aðferðum og tækniframförum.
Við þessa vinnu mun HMS áfram leggja áherslu á samstarf við fagfólk og hagaðila á markaði, þannig að lausnir verða aðgengilegar án forskriftarákvæða í sjálfri byggingarreglugerðinni.
Mikill ávinningur með skýrara regluverki og auknu svigrúmi
Verkefnið eru liður í heildstæðu átaki stjórnvalda til að einfalda regluverk á sviði mannvirkjagerðar, stuðla að skilvirkari stjórnsýslu og skapa betri skilyrði fyrir uppbyggingu húsnæðis og annarra mannvirkja. Jafnframt er lögð áhersla á að viðhalda öryggi og gæðum mannvirkja með markvissari og áhættumiðaðri nálgun í byggingareftirliti.
Markmið breytinganna eru að:
- auka samkeppnishæfni mannvirkjaiðnaðarins með því að fella niður óþarfa stjórnsýslukröfur og innleiða áhættumiðað byggingareftirlit
- styrkja neytendavernd og fækka byggingargöllum í íslenskum mannvirkjum
- lækka byggingarkostnað og stuðla að aukinni nýsköpun í mannvirkjagerð
Skráðu þig á póstlista
Ef þú hefur áhuga á að fylgjast með framvindu byggingarreglugerðarinnar geturðu skráð þig á póstlista HMS. Þeir sem skrá sig fá upplýsingar um:
- komandi kynningar- og samráðsfundi,
- birtingu nýrra draga að reglugerð og leiðbeiningum,
- annað efni sem tengist endurskoðun byggingarreglugerðar.
Skráning á póstlistann
Við hvetjum alla hagaðila til að skrá sig og fylgjast með verkefninu.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




