12. nóvember 2026

Færri íbúðir fullbúnar en á sama tíma í fyrra

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Íbúðum í byggingu fækkar um rúmlega þrjú prósent milli mánaða og eru nú 6.144 talsins
  • Byggingaráformum fækkar einnig milli mánaða og telja nú 939 íbúðir
  • Um 13,5 prósent færri nýjar íbúðir urðu fullbúnar á fyrstu tíu mánuðum ársins en á sama tímabili í fyrra

Samkvæmt mælaborði HMS um íbúðir í byggingu eru nú 6.144 íbúðir skráðar í byggingu á landinu öllu. Það er fækkun um rúmlega þrjú prósent frá október, þegar þær voru 6.350. Byggingaráformum hefur einnig fækkað milli mánaða, úr 975 í 939. Þar er átt við íbúðir sem hafa fengið útgefið byggingarleyfi en framkvæmdir eru ekki hafnar.

Mynd: Mælaborð íbúða í byggingu

Íbúðum í byggingu fjölgaði töluvert í október, eða um tæp 15 prósent, eftir að þeim hafði fækkað undanfarna mánuði. Sú fjölgun kann að hluta til að skýrast af uppfærðum skráningum í mannvirkjaskrá HMS í tengslum við septembertalningu stofnunarinnar. Breytingar á fjölda skráðra íbúða í byggingu milli mánaða endurspegla því ekki eingöngu framgang framkvæmda, heldur geta einnig ráðist af því hversu reglulega sveitarfélög skrá nýjar framkvæmdir eða uppfæra upplýsingar um stöðu framkvæmda.

Um 11 prósent færri íbúðir hafa orðið fullbúnar í ár en á sama tíma í fyrra

Alls voru 2.355 nýjar íbúðir skráðar fullbúnar á landinu á fyrstu tíu mánuðum ársins, samanborið við 2.723 á sama tímabili í fyrra. Það eru um 13,5 prósent færri íbúðir milli ára.

Fjöldi íbúða sem verða fullbúnar hefur verið nokkuð breytilegur milli mánaða. Í október voru 188 íbúðir skráðar fullbúnar, samanborið við 491 í september. Þrátt fyrir töluverða fjölgun í september er uppsafnaður fjöldi fullbúinna íbúða á fyrstu tíu mánuðum ársins minni en á sama tímabili síðustu þriggja ára. Fjöldinn er þó nokkru meiri en árið 2022, þegar 2.262 íbúðir höfðu orðið fullbúnar í lok október.

Graf: Fjölgun nýrra fullbúinna íbúða frá áramótum

Höfuðborgarsvæðið leiðir samdrátt í uppbyggingu nýrra íbúða

Fækkun nýrra fullbúinna íbúða á landsvísu má rekja til þróunarinnar á höfuðborgarsvæðinu. Þar urðu 1.406 nýjar íbúðir fullbúnar á fyrstu tíu mánuðum ársins, samanborið við 1.785 á sama tímabili í fyrra. Það eru 379 færri íbúðir, eða rúmlega 21 prósent fækkun milli ára. Utan höfuðborgarsvæðisins urðu hins vegar 949 nýjar íbúðir fullbúnar, samanborið við 938 í fyrra, sem jafngildir 1,2 prósent fjölgun. Hlutdeild höfuðborgarsvæðisins í heildarfjölda nýrra fullbúinna íbúða lækkaði því úr 65,6 prósentum í 59,7 prósent milli ára.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS