12. desember 2025
2. október 2025
Fundaröð HMS um stöðu og framtíðarhorfur íbúðauppbyggingar og mannvirkjamála
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
HMS og Tryggð byggð í samstarfi við landshlutasamtök sveitarfélaganna munu á næstu vikum standa fyrir fundarröð um land allt. Fundirnir verða opnir öllum og verður þar fjallað um stöðu íbúðauppbyggingar og framtíðarhorfur í hverjum landshluta fyrir sig auk þess sem kynnt verður staða á helstu verkefnum sem HMS vinnur að í mannvirkjamálum.
Fundirnir hefjast allir kl. 12:00 og verður boðið upp á léttar veitingar á meðan þeim stendur. Við hvetjum öll sem hafa áhuga á málefnunum til þess að mæta.
Staðir og tímasetningar
- Höfn, 8. október
- Reyðarfjörður*
- Selfoss, 13. október**
- Sauðárkrókur, 22. október
- Akureyri, 23. október
- Reykjanesbær, 30. október
- Ísafjörður, 10. nóvember
- Akranes, 13. nóvember
Nánari staðsetning verður auglýst fyrir hvern viðburð síðar.
*Uppfært 7. október: Fundinum sem halda átti á Reyðarfirði 9. október hefur verið frestað um óákveðinn tíma. Dagsetning fyrir fundinn verður tilkynnt síðar.
**Uppfært 9. október. Fundinum sem halda átti á Selfossi 14. október hefur verið flýtt um einn dag.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




