1. apríl 2026
8. apríl 2026
Frítekjumörk húsnæðisbóta hækka og leiðrétting fer fram 9. apríl
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Breyting hefur verið gerð á reglugerð um húsnæðisbætur sem felur í sér hækkun frítekjumarka vegna tekna. Breytingin tekur gildi þegar í stað og gildir frá og með 1. janúar 2026 vegna húsnæðisbóta sem greiddar eru vegna leigu á íbúðarhúsnæði frá og með þeim degi.
Með breytingunni eru frítekjumörk uppfærð með tilliti til fjölda heimilismanna, en nýju frítekjumörkin miðað við árstekjur má sjá á töflu hér að neðan.
Frítekjumörk hafa áhrif á útreikning húsnæðisbóta þar sem fjárhæð bóta lækkar ef samanlagðar árstekjur heimilismanna fara umfram frítekjumörk. Nánari upplýsingar um útreikning og fjárhæð húsnæðisbóta má finna hér.
Leiðréttingagreiðsla fer fram í apríl
Þar sem breytingin gildir frá 1. janúar 2026 verður gerður endurreikningur á húsnæðisbótum fyrir janúar, febrúar og mars. Mismunur á þeim húsnæðisbótum sem umsækjendur áttu rétt á samkvæmt nýjum frítekjumörkum og þeim bótum sem þegar hafa verið greiddar verður greiddur í sérstakri leiðréttingagreiðslu fimmtudaginn 9. apríl.
Athygli er vakin á því að umsækjendur þurfa ekki að óska sérstaklega eftir endurreikningi eða leiðréttingu, þar sem HMS mun annast það að eigin frumkvæði og upplýsa umsækjendur.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




