6. júlí 2026

Færri námsmenn sækja um húsnæðisbætur á sumrin

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • HMS greiddi 938 milljónir króna í húsnæðisstuðning vegna leigu í júní
  • Færri námsmenn fá greiddar húsnæðisbætur yfir sumartímann
  • Afgreiðsla inneigna vegna lokauppgjörs 2025 er vel á veg komin

HMS greiddi alls um 938 milljónir króna í húsnæðisstuðning vegna leigu í júní og um 180 milljónir króna í inneignir vegna lokauppgjörs húsnæðisbóta fyrir árið 2025, en afgreiðsla þess er vel á veg komin. Færri heimili fá greiddar húsnæðisbætur yfir sumarmánuðina vegna árstíðarsveiflu í útleigu námsmannaíbúða samkvæmt upplýsingum sem unnar hafa verið upp úr húsnæðisbótagrunni HMS.

Færri heim­ili þiggja hús­næð­is­bæt­ur á sumr­in

Alls 17.496 heimili fengu greiddar húsnæðisbætur vegna leigu í júní 2026 samanborið við 18.596 heimili vegna leigu í apríl. Þannig fækkaði heimilum sem þáðu húsnæðisbætur um 1.100 á milli apríl og júní, eða um 6%. Fækkun umsókna stafar einna helst af árstíðarsveiflu á meðal námsmanna sem þiggja húsnæðisbætur vegna leigu á námsgörðum eða á heimavist. Á myndinni hér að neðan má sjá fjölda umsókna um húsnæðisbætur í hverjum mánuði eftir tegund húsnæðis árið 2025.

Leigusamningar um námsmannaíbúðir falla úr gildi í stórum stíl við lok skólaárs í maí ár hvert, en nýskráningar og endurnýjanir leigusamninga um slíkar íbúðir eiga sér svo gjarnan stað við upphaf nýs skólaárs í ágúst. Þetta má lesa úr mælaborði um fjölda leigusamninga eftir tegund leigusala á heimasíðu HMS, en flestar námsmannaíbúðir eru á vegum óhagnaðardrifinna leigufélaga. Umsóknum um húsnæðisbætur vegna leigu á námsgörðum eða heimavist fækkar því að jafnaði yfir sumarmánuðina en fjölgar á ný við upphaf nýs skólaárs á haustin. 

Aukin atvinnuþátttaka námsmanna yfir sumarmánuðina getur einnig haft áhrif á rétt þeirra til húsnæðisbóta, en hærri tekjur vegna sumarstarfa geta leitt til þess að húsnæðisbætur skerðist að fullu yfir sumarmánuðina.

Tæp­ur millj­arð­ur króna var greidd­ur í hús­næð­is­stuðn­ing vegna leigu í júní

Þann 1. júlí síðastliðinn greiddi HMS um 938 milljónir króna í húsnæðisstuðning til leigjenda vegna leigu í júní. Greiðslurnar styðja við þúsundir heimila um land allt og miða að því að draga úr húsnæðiskostnaði tekju- og efnaminni leigjenda og auka húsnæðisöryggi þeirra.

Húsnæðisstuðningurinn skiptist í tvo meginflokka, annars vegar almennar húsnæðisbætur og hins vegar sérstakan húsnæðisstuðning sveitarfélaga.

Stærstur hluti greiðslna í júlí var vegna almennra húsnæðisbóta, en HMS greiddi tæpar 904 milljónir króna til um 17.496 heimila í almennar húsnæðisbætur. Þetta samsvarar um þriðjungi af áætlaðri stærð leigumarkaðarins, en HMS áætlar að hann telji um 50 þúsund heimili.

Auk þess greiddi HMS sérstakan húsnæðisstuðning fyrir sveitarfélögin Skagafjörð og Kópavog sem hluta af tilraunaverkefni stjórnvalda. Í júlí voru greiddar tæpar 34 milljónir króna til 1.085 heimila í Kópavogi og 85 heimila í Skagafirði. Sérstakur húsnæðisstuðningur er á vegum sveitarfélaganna og er honum ætlað að styðja við þá sem eiga erfitt með að standa straum af húsnæðiskostnaði vegna fjárhagslegra og félagslegra aðstæðna.

 

Af­greiðsla loka­upp­gjörs 2025 er vel á veg kom­in

Búið er að afgreiða 88% lokauppgjöra vegna ársins 2025. Eftirstandandi lokauppgjör eru að mestu leyti mál sem krefjast frekari yfirferðar eða gagnaöflunar en afgreiðslu þeirra verður lokið í sumar. Af þeim lokauppgjörum sem hafa verið afgreidd voru 28% með inneign, 22% með skuld og 50% án leiðréttinga.

Stærstur hluti inneigna var greiddur út í síðustu greiðslu, alls um 180 milljónir króna til 5.232 heimila. Meðalupphæð inneignar nam 34.463 krónum. Langflestar inneignir voru tiltölulega lágar, en um 76% inneigna voru undir 50 þúsund krónum og aðeins um 7% inneigna námu 100 þúsund krónum eða hærri fjárhæð.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS