29. apríl 2026

Byggingaraðilar greina frá samdrætti í verkefnum á síðustu vikum

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Skýr merki eru um samdrátt í byggingargeiranum í aprílmánuði að mati byggingaraðila
  • Hagtölur sýna mikla seiglu á byggingarmarkaði á fyrsta ársfjórðungi
  • Ekki má enn greina samdrátt í veltu, útlánum, fjölda vinnustunda eða fjölda fyrirtækja, en vísbendingar eru um vaxandi erfiðleika

Aukna svartsýni má greina meðal byggingaraðila um stöðu íbúðauppbyggingar og horfur næstu missera, samkvæmt samráðsfundum sem HMS hefur átt með byggingaraðilum. Föstu starfsfólki í byggingariðnaði hefur fækkað og fleiri verktakar eru lausir til nýrra verkefna, en hagtölur benda þó til þess að nokkur seigla hafi verið í byggingargeiranum á síðasta ári og á fyrstu mánuðum þessa árs.

Rætt um verri stöðu á sam­ráðs­fundi

HMS heldur reglulega samráðsfundi með félagsmönnum Samtaka iðnaðarins í byggingargeiranum þar sem staðan á byggingarmarkaði er rædd. Síðasti fundur fór fram í aprílmánuði, en á honum kom fram að skýr merki væru um samdrátt í greininni. Samdrátturinn lýsi sér í fækkun launamanna á launaskrá og verri verkefnastöðu hjá verktökum.

Á fundinum komu einnig fram sjónarmið verktaka um að skipulagsyfirvöld hafi undanfarin ár beint verktökum í að byggja íbúðir sem væru ekki í samræmi við eftirspurn. Samkvæmt verktökum er það ein af ástæðum þess að illa gengur að selja nýjar íbúðir.

Mik­il seigla á bygg­ing­ar­mark­aðn­um á fyrsta árs­fjórð­ungi

Ekki mátti greina samdrátt í byggingargeiranum í hagtölum fyrir fyrstu tvo mánuði ársins. Í janúar og febrúar var velta í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð um 4% meiri að raunvirði en á sama tíma í fyrra.

Útlán banka til byggingargeirans hafa sömuleiðis aukist á sama tíma og sala á nýbyggingum hefur verið takmörkuð. Fjárhæð hreinna nýrra útlána banka til byggingarstarfsemi og mannvirkjagerðar á fyrsta ársfjórðungi þessa árs (35 milljarðar) var meira en tvöfalt hærri (155% aukning) að nafnvirði en á sama tíma í fyrra (13,7 milljarðar). Á mynd hér að neðan má sjá hrein ný útlán banka til byggingargeirans eftir mánuðum, en þar sést að lántaka í greininni hefur aukist töluvert frá miðju síðasta ári.

HMS hefur áður bent á mikla skuldsetningu byggingarfyrirtækja í mánaðarskýrslu fyrir febrúarmánuð. Sölutími fasteigna getur haft mikil áhrif á útistandandi lán banka til fyrirtækja í byggingarstarfsemi, þar sem hæg sala getur haft í för með sér meiri skuldir vegna uppsafnaðra áfallinna vaxta.

Fleiri vinnu­stund­ir en fleiri at­vinnu­laus­ir í bygg­ing­ar­geir­an­um

Yfir 18 þúsund einstaklingar störfuðu í byggingariðnaði í febrúar síðastliðnum og voru þeir 0,67% fleiri en í febrúar í fyrra. Erlendum starfsmönnum í greininni fjölgaði um 1% á tímabilinu, en fjölgunin nam 0,5% hjá starfsmönnum með íslenskan bakgrunn.

Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu gefur til kynna að vinnustundum í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð hafi fjölgað um 7,6% á milli ára árið 2025, sem bendir til aukinna umsvifa í greininni. Á sama tíma fækkaði vinnustundum lítillega í hagkerfinu í heild, eða um 0,1%.

Samkvæmt marsskýrslu Vinnumálastofnunar var þróun atvinnuleysis eftir atvinnugreinum nokkuð stöðug í nýliðnum marsmánuði. Byggingargeirinn er áfram meðal þeirra atvinnugreina þar sem atvinnulausir eru flestir, en þeim fjölgaði lítillega milli mánaða, úr 1.226 í febrúar í 1.251 í mars. Atvinnulausir í byggingariðnaði eru engu að síður fleiri í ár samanborið við í mars í fyrra þegar þeir voru 980 talsins og þannig hefur atvinnulausum fjölgað um 27% milli marsmánaða 2025 og 2026.

Gjald­þrot voru ekki mörg á fyrsta árs­fjórð­ungi, en vís­bend­ing­ar eru um erf­ið­leika

Fleiri fyrirtæki starfa í byggingariðnaði nú en á sama tíma í fyrra. Á fyrsta fjórðungi þessa árs voru 150 fyrirtæki nýskráð, þar af 44 í mars, á sama tíma og 87 fyrirtæki urðu gjaldþrota, þar af 15 í marsmánuði. 

Mun færri fyrirtæki urðu gjaldþrota í mars en í janúar þegar 38 fyrirtæki urðu gjaldþrota og febrúar þegar þau voru 34 talsins. Þó eru vísbendingar um að stærri fyrirtæki í byggingariðnaði séu í fjárhagserfiðleikum. Í frétt Vinnumálastofnunar kemur fram að þrjár tilkynningar um hópuppsagnir hafi borist í mars síðastliðnum, þar sem 90 starfsmönnum var sagt upp störfum. Flestir þeirra sem sagt var upp störfum störfuðu við mannvirkjagerð, alls 60 starfsmenn.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS