24. febrúar 2026

Breytt verklag við staðfestingu brunahólfandi innihurða tekur gildi 1. apríl

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Samkvæmt frétt HMS sem birt var 7. mars 2024 líkur tveggja ára aðlögunartíma vegna breytts verklags við staðfestingu á nothæfi brunahólfandi innihurða 1. apríl næst komandi.
Falla  þá úr gildi allar staðfestingar sem ekki uppfylla kröfur hins nýja verklags, að aðlögunartímanum liðnum þurfa allar umsóknir að uppfylla skilyrði annars hvors eftirfarandi þátta, eftir því sem við á.

Staðfesting á nothæfi (fyrir þarf að liggja):
1. Yfirlýsing um nothæfi
2. Skýrsla um gerðarprófun
3. Leiðbeiningar um notkun og upplýsingar um öryggi
4. Umboð frá framleiðanda (á við ef annar aðili en framleiðandi hurðar óskar staðfestingar á nothæfi)

Gagnkvæm viðurkenning gagna (fyrir þarf að liggja):
1. Staðfesting á nothæfi frá viðurkenndum aðila á EES svæðinu
2. Yfirlýsing um nothæfi
3. Leiðbeiningar um notkun og upplýsingar um öryggi á íslensku
4. Skýrsla um gerðarprófun (heimilt að kalla eftir)

Stað­fest­ing á not­hæfi bruna­hólfandi inni­hurða

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS