2. október 2026
2. október 2026
Breytt verklag við staðfestingu brunahólfandi innihurða tekur gildi
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Breytt verklag við staðfestingu á nothæfi brunahólfandi innihurða tók gildi 1. október 2026 eftir framlengdan aðlögunartíma
- Hægt er að sækja um tímabundna framlengingu fyrir tilteknar hurðargerðir sem þegar eru komnar í formlegt prófunarferli hjá faggiltri prófunarstofu
- Aðilar sem fá framlengingu þurfa að upplýsa HMS reglulega um framgang prófana og sækja að þeim loknum um staðfestingu eða gagnkvæma viðurkenningu á grundvelli niðurstaðna
Samkvæmt frétt HMS sem birt var 31. ágúst 2026, lýkur aðlögunartíma vegna breytts verklags við staðfestingu á nothæfi brunahólfandi innihurða þann 1. október 2026.
HMS gaf út tilkynningu í mars 2024 um upphaf tveggja ára aðlögunartímabils vegna breytts verklags á staðfestingum á nothæfi brunahólfandi innihurða. Markmiðið með hinu nýja verklagi er að tryggja skilvirkari afgreiðslu og áreiðanlegri staðfestingar á nothæfi brunahólfandi innihurða, en þær gegna lykilhlutverki við að takmarka útbreiðslu elds í mannvirkjum.
Þrátt fyrir tveggja ára aðlögunartíma höfðu íslenskir framleiðendur ekki náð fullum undirbúningi fyrir gildistöku breytinganna. HMS framlengdi því aðlögunartímann um sex mánuði eða til 1. október 2026 til að styðja við aðlögunina og tryggja að markaðurinn uppfylli lögbundnar kröfur.
Framlengingar fyrir tilteknar hurðargerðir í formlegu prófunarferli
Hægt er að sækja um framlengingu til HMS fyrir tilteknar hurðargerðir sem þegar hafa hafið prófunarferli hjá faggiltri prófunarstofu. Sækja þarf sérstaklega um framlengingu til HMS með því að senda tölvupóst á netfangið: brunavarnasvid@hms.is þar sem tegundarheiti hurðargerðar kemur fram í heiti tölvupóstsins ásamt númeri viðkomandi staðfestingar sem óskað er eftir að framlengja.
Eftirfarandi upplýsingar þurfa að koma fram í umsókninni:
- Hvaða hurðargerð eða hurðargerðir verða prófaðar
- Hver framleiðandi vörunnar er
- Hvaða prófunarstofa annast prófunina
- Hvaða prófunarstaðli prófað verður eftir
- Framangreint skal staðfest af viðkomandi prófunarstofu
- Afrit af staðfestingu sem óskað er eftir að framlengja
Þeir aðilar sem fá tímabundna framlengingu þurfa jafnframt að skila HMS reglubundnum upplýsingum um framgang prófana. Að lágmarki skal á fimm mánaða fresti liggja fyrir staðfesting um stöðu viðkomandi hurðargerða og framgang í prófunarferlinu. Þegar prófunardagsetning liggur fyrir skal hún tilkynnt HMS án tafar.
Að loknum prófunum skal sækja um staðfestingu/gagnkvæma viðurkenningu til HMS á grundvelli niðurstaða prófananna. Umsækjandi skal senda til HMS tilheyrandi gögn til yfirferðar.
Nýting gerðaprófunar sem annar framleiðandi sömu hurðargerðar á
Hyggist aðili nýta gerðaprófun sem annar framleiðandi sömu hurðargerðar á er HMS tilbúið að skoða framlengingu staðfestingar. Skilyrði er að formlegt samtal sé hafið við viðkomandi framleiðanda um slíkt fyrirkomulag og við tilkynntan aðila um vottun á framleiðslustýringu. Sótt er um framlengingu með tölvupósti á netfangið brunavarnasvid@hms.is.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




