11. september 2026

Breytingar á ákvæðum um burðarþol og stöðugleika kynntar á opnum fundi HMS

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Framsetning á efni mjög líkt því sem finna má í Danmörku og Noregi
  • Samræmi milli Eurocodes og byggingarreglugerðar aukið
  • Second Generation Eurocodes með íslenskum þjóðarviðaukum væntanlegir í lok árs 2026

HMS hélt opinn kynningarfund í gær um fyrirhugaðar breytingar á byggingarreglugerð sem varða burðarþol og stöðugleika mannvirkja. Fundurinn var liður í áframhaldandi endurskoðun og einföldun byggingar-reglugerðarinnar og gaf hagaðilum tækifæri til að kynna sér helstu tillögur HMS og koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Fundurinn var vel sóttur í streymi en það takmarkaði umræður í lokin.

Hluti 6 um burðarþol og stöðugleika tekur efnislega til 8. hluta gildandi byggingarreglugerðar, að ákvæðum um byggingarvörur undanskildum. Neðangreind atriði fengu umfjöllun á fundinum:

  • Burðarþol og stöðugleika mannvirkja
  • Undirstöður og jarðtæknilegar forsendur
  • Öryggi á byggingartíma og í fullgerðu mannvirki

Drög að 6. hluta byggingarreglugerðarinnar um burðarþol og stöðugleika, ásamt greinargerð um breytingarnar, voru birt fyrir fundinn hér. Þá er jafnframt hægt að skila athugasemdum rafrænt hér.

Skráðu þig á póstlista

Þau sem hafa áhuga á að fylgjast áfram með framvindu verkefnisins geta skráð sig á póstlista HMS. Þeir sem skrá sig fá upplýsingar um:

  • komandi kynningar- og samráðsfundi,
  • birtingu nýrra draga að reglugerð og leiðbeiningum,
  • annað efni sem tengist endurskoðun byggingarreglugerðar.

Skráning á póstlistann

Við hvetjum alla hagaðila til að skrá sig og fylgjast með verkefninu.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS