29. apríl 2026

Ársskýrsla um stofnframlög árið 2025 er komin út

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Á árinu 2025 fengu 25 verkefni úthlutun til byggingar eða kaupa á 197 íbúðum
  • Heildarfjárhæð til úthlutunar samkvæmt fjárlögum var um 7,3 milljarðar
  • HMS telur stofnframlög ólíkleg til að vinna gegn séreignarstefnu stjórnvalda þessa stundina

Á árinu 2025 hélt uppbygging almennra íbúða áfram með þremur úthlutunum stofnframlaga ríkisins. Heildarfjárhæð til úthlutunar samkvæmt fjárlögum var 7.336.400.000 krónur.

Þetta er meðal þess sem fjallað er um í ársskýrslu stofnframlaga fyrir árið 2025 sem nálgast má með því að smella á hnappinn hér að neðan.

Stofnframlög - Ársskýrsla 2025

Alls bárust 30 umsóknir frá 11 félögum um stofnframlög til byggingar eða kaupa á alls 604 íbúðum. Þar af fengu 25 verkefni úthlutun til byggingar eða kaupa á 197 íbúðum í 16 sveitarfélögum. Samtals nam stofnframlag ríkisins um 2,89 milljörðum króna og stóðu eftir 4,44 milljarðar króna til úthlutunar við lok árs.

Heildarniðurstaðan fyrir árið 2025 sýnir áframhaldandi styrkingu almennra íbúða á landsvísu þrátt fyrir áskoranir vegna byggingar- og fjármagnskostnaðar, lóðaframboðs og tafa í leyfisferlum. Úthlutanir og framkvæmdir ársins leggja grunn að áframhaldandi vexti og styðja við markmið stjórnvalda um að efla húsnæðisöryggi og tryggja fjölbreytt framboð íbúða fyrir mismunandi hópa samfélagsins.

HMS telur stofnframlög ólíkleg til að vinna gegn séreignarstefnu stjórnvalda þessa stundina, þar sem fáir þeirra sem eru á biðlista fyrir hagkvæmar leiguíbúðir fyrir tekju- og eignalága hefðu annars haft tök á því að kaupa íbúð. Þar sem leigan er lægri fyrir íbúðir sem fjármagnaðar eru með stofnframlögum hafa leigjendur þeirra aftur á móti meiri tök á að spara fyrir útborgun á sinni fyrstu íbúð heldur en þeir hefðu haft ef þeir greiddu markaðsleigu.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS