23. apríl 2026
24. apríl 2026
Áframhaldandi ásókn í hlutdeildarlán
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Eftirspurn eftir hlutdeildarlánum er þrefalt meiri en framboðið
- Heildarfjárhæð umsókna er 1.342 milljónir króna
- Þriðjungur umsókna vegna eigna utan höfuðborgarsvæðisins
HMS lokaði fyrir umsóknir um hlutdeildarlán fyrir aprílmánuð á hádegi mánudaginn 20. apríl og að umsóknarfresti liðnum höfðu 50 umsóknir borist að andvirði 828 milljóna króna en þar af eru einungis tvær án kauptilboðs. Til viðbótar eru til vinnslu 32 umsóknir úr fyrri úthlutunum sem ekki voru dregnar út í mars.
Líklegt að hlutdeildarlán fyrir aprílmánuð verði valin með hlutkesti
Í apríl er til úthlutunar að lágmarki 458 milljónir króna en samanlögð umsótt fjárhæð nemur 1.342 milljónum króna, sem er tæplega þrefalt hærri fjárhæð en er til úthlutunar. Eftirspurn eftir hlutdeildarlánum er því verulega umfram það fjármagn sem stendur til boða. Af þeim sökum er líklegt að komi til útdráttar á umsóknum sem uppfylla öll skilyrði til að skera úr um hvaða umsóknir fá úthlutun.
Umsækjendur með samþykkt kauptilboð njóta forgangs að hlutdeildarlánum umfram þá sem ekki hafa fengið slíkt tilboð. Þá er jafnframt miðað við að HMS úthluti að minnsta kosti 20% hlutdeildarlána til kaupa á íbúðum utan höfuðborgarsvæðisins.
26 umsóknir eru um eignir utan höfuðborgarsvæðisins að andvirði 383 milljónir króna og 56 umsóknir á höfuðborgarsvæðinu að andvirði 959 milljónir króna
Fjölda og fjárhæðir umsókna um hlutdeildarlán í apríl má sjá í töflu fyrir neðan:
Unnið er að yfirferð umsókna og stefnt er að því að ljúka úthlutun fyrir lok mánaðarins. Opnað verður að nýju fyrir umsóknir um hlutdeildarlán í byrjun maí. Nánari upplýsingar um hlutdeildarlán og umsóknarferlið má finna á Ísland.is.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




