27. apríl 2026
28. apríl 2026
82 skráð í grunnnám til leyfis eignaskiptayfirlýsinga og merkjalýsinga
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- 82 aðilar voru skráðir í grunnnám til leyfis eignaskiptayfirlýsinga og merkjalýsinga
- Þau sem stóðust grunnnámið geta sótt framhaldsnámskeiðin
- Framhaldsnámskeiðin hefjast 6. maí og umsóknarfrestur er til og með 29. apríl 2026
Grunnnámi til leyfis eignaskiptayfirlýsinga og merkjalýsinga er nú lokið. Alls voru 82 aðilar skráðir í námið.
Námið er undanfari framhaldsnámskeiða til leyfis til að gera eignaskiptayfirlýsingar annars vegar og merkjalýsingar hins vegar. Þau sem stóðust grunnnámið hafa heimild til að skrá sig í framhaldsnámskeiðin, sem hefjast 6. maí.
Umsóknarfrestur í framhaldsnámskeiðin er til og með 29. apríl 2026.
Grunnnámið skiptist í þrjá hluta. Fjallað var um lög og reglugerðir um skráningu og nýtingu fasteigna, sáttamiðlun og aðferðafræði, heimildaöflun og gildandi verkferla við skráningu fasteigna.
Prófað var úr tveimur hlutum námsins, annars vegar inngangi að lögum og reglugerðum um skráningu og nýtingu fasteigna og hins vegar aðferðafræði, heimildaöflun og gildandi verkferlum við skráningu fasteigna. Hvor hluti gilti 50 prósent af heildareinkunn.
Auk þeirra sem standast grunnnámið geta þau sem hafa á síðustu fimm árum fengið leyfi til að gera annaðhvort eignaskiptayfirlýsingar eða merkjalýsingar sótt framhaldsnámskeið í hinni námsleiðinni, hafi þau ekki þegar öðlast þau réttindi.
Framhaldsnámskeið
Nánari upplýsingar og skráning eru á vef Endurmenntunar Háskóla Íslands:
Námskeið og próf til leyfis til að gera eignaskiptayfirlýsingar
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS



