8. júlí 2026
8. júlí 2026
452 nýjar lóðir staðfestar á öðrum ársfjórðungi 2026
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Alls voru 452 nýjar lóðir staðfestar í fasteignaskrá HMS á öðrum ársfjórðungi 2026
- Flestar lóðir voru sumarbústaðalönd eða 126 talsins, en íbúðarhúsalóðir voru 119
- Flestar skráningar voru í Grímsnes- og Grafningshreppi og Bláskógabyggð
Alls voru 452 nýjar lóðir staðfestar í fasteignaskrá HMS á öðrum ársfjórðungi 2026. Rétt er að hafa í huga að lóð er ekki jafngild íbúð, þar sem á einni lóð geta risið margar íbúðir eða engin þannig að tölurnar endurspegla ekki beint íbúðaframboð. Flestar lóðir voru sumarbústaðalönd eða alls 126 talsins. Auk þess voru skráðar 119 íbúðarhúsalóðir og 111 viðskipta- og atvinnulóðir. Aðrar tegundir lóða voru 96 talsins. Flestar skráningar voru í apríl, þegar 207 lóðir voru staðfestar, samanborið við 169 í maí og 76 í júní.
Myndin hér að ofan sýnir fjölda nýskráðra lóða á öðrum ársfjórðungi 2026 eftir mánuðum og meginflokkum.
Hægt er að geta sér til að vinna sveitarfélaganna í maí vegna sveitarstjórnakosninga hafi haft áhrif á skráningu í júní, því við hjá HMS höfum tekið eftir að þegar mörg önnur verkefni eru í gengi hjá sveitarfélögum þá hægist á fasteignaskráningu.
Lóðir skráðar sem annað land eða einfaldlega lóð voru 54 talsins á öðrum ársfjórðungi, en líklegt er að þessar lóðir breyti um gerð þegar fram líða stundir eða þegar mannvirki verða skráð á þær og verði þá skráðar sem atvinnu-, sumarhúsa- eða íbúðarlóðir.
Áfram mest umsvif í sunnlenskum sveitarfélögum
Flestar lóðir voru skráðar í Grímsnes- og Grafningshreppi, þar sem 53 lóðir voru staðfestar. Næst var Bláskógabyggð með 52 lóðir og Sveitarfélagið Ölfus með 46. Þá voru 45 lóðir staðfestar í Hafnarfirði og 37 í Akraneskaupstað. Þessi fimm sveitarfélög voru með 233 nýjar lóðir, eða rúmlega helming allra skráninga á tímabilinu.
Í Grímsnes- og Grafningshreppi voru 52 af 53 lóðum sumarbústaðalönd. Í Bláskógabyggð voru 28 sumarbústaðalönd og 17 vegsvæði. Í Sveitarfélaginu Ölfusi voru íbúðarhúsalóðir stærsti flokkurinn, 23 talsins. Í Hafnarfirði voru 43 af 45 lóðum iðnaðar- og athafnalóðir og í Akraneskaupstað var 21 íbúðarhúsalóð staðfest.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS





