5.1. Sannprófun eiginleika byggingarvöru
[Byggingarvörur til notkunar í eða við mannvirkjagerð skulu uppfylla skilyrði laga um byggingarvörur og reglugerðar þessarar.]²⁾
Eigandi mannvirkis ber ábyrgð á að við byggingu þess og rekstur sé einungis notuð byggingarvara sem uppfyllir þau ákvæði sem greinir í 1. mgr.
¹⁾ Rgl. nr. 666/2016, 1. gr.
²⁾ Rgl. nr. 666/2016, 2. gr.
Frístundahúsi eða sambærilegu húsi sem byggt er utan lóðar og sérframleitt í einstökum tilvikum eða sérsniðið að tilteknum þörfum eftir pöntun á grundvelli hönnunargagna skal við umsókn um byggingarleyfi fylgja vottorð frá faggiltri skoðunarstofu eða byggingarfulltrúa um yfirferð uppdrátta og framkvæmd úttekta á burðargrind, festingum, einangrun og rakavarnarlagi. Hús þannig byggt skal einkenna með brennimarki eða á annan hátt sem byggingarfulltrúi viðurkennir.
Ákvæði þessarar greinar gilda ekki ef viðkomandi mannvirki er CE-merkt eða það fellur undir III. kafla laga um byggingarvörur. Í slíkum tilvikum skal yfirlýsing um nothæfi fylgja með byggingarleyfisumsókn í stað vottorðs skv. 1. mgr.]¹⁾