2.1. Almennt um stjórn mannvirkjamála
[Félags- og barnamálaráðherra]²⁾ fer með yfirstjórn mannvirkjamála. [Húsnæðis- og mannvirkjastofnun]1) hefur eftirlit með framkvæmd laga um mannvirki, þessarar reglugerðar og laga um brunavarnir og reglugerða settum samkvæmt þeim, sbr. 5. gr. laga um mannvirki.
Sveitarstjórn ber ábyrgð á að stjórnsýsla og eftirlit byggingarfulltrúa sé í samræmi við ákvæði laga um mannvirki og reglugerðar þessarar. Byggingarfulltrúar hafa eftirlit með þeirri mannvirkjagerð sem nánar greinir í þessum hluta reglugerðarinnar. Um stjórnvöld mannvirkjamála, hlutverk [Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.]¹⁾, byggingarnefnda og byggingarfulltrúa fer samkvæmt ákvæðum II. kafla laga um mannvirki og einstökum ákvæðum reglugerðar þessarar.
2.2. Gagnasafn og rannsóknir
[Húsnæðis- og mannvirkjastofnun]¹⁾ skal starfrækja rafrænt gagnasafn fyrir upplýsingar um mannvirki og mannvirkjagerð. Eftirfarandi skal að lágmarki skrá í gagnasafnið:
a. Lista yfir starfandi byggingarfulltrúa, löggilta hönnuði, byggingarstjóra með starfsleyfi og löggilta iðnmeistara,
b. skoðunarhandbók [Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.]¹⁾,
c. staðfestingu á gæðastjórnunarkerfi hönnuða, hönnunarstjóra, byggingarstjóra og iðnmeistara,
d. skrá um hönnunargögn,
e. eftirlitsskýrslur, gátlista, úttektarvottorð og önnur gögn sem ákvarðanir leyfisveitanda eru byggðar á og sem varðveitt eru hjá honum,
f. samþykkt byggingaráforma, byggingarleyfi og aðrar ákvarðanir leyfisveitanda,
g. samþykktir sveitarfélaga um byggingarnefndir og framsal ákvörðunarvalds sem hafa verið birtar í B-deild Stjórnartíðinda.
Verði manntjón eða alvarleg hætta skapast vegna tjóns á mannvirki eða tjónið er til þess fallið að skapa hættu skal [Húsnæðis- og mannvirkjastofnun]¹⁾ rannsaka tjónið og orsakir þess, tilhögun byggingareftirlits og það hvernig að hönnun og byggingarframkvæmdum var staðið. Einnig skal ef við á kanna hvernig að rekstri og viðhaldi var staðið.
Ef byggingarfulltrúi fær upplýsingar um eftirfarandi tjónsatburði skal hann tilkynna [Húsnæðis- og mannvirkjastofnun]¹⁾ um þá svo og um úrbætur og önnur viðbrögð vegna þeirra ef við á:
a. Alvarlegar fokskemmdir á mannvirkjum og hrun.
b. Ef maður ferst eða slasast alvarlega og orsök slyssins má rekja til aðstæðna innan mannvirkis eða við það.
c. Sig á mannvirkjum og sigskemmdir.
d. Alvarleg brunaslys, s.s. vegna heitra byggingarhluta eða heits vatns.
e. Alvarleg mengunarslys innan mannvirkja eða frá þeim ef rekja má slysið til þeirra þátta sem falla undir 2. mgr. 1.1.2. gr.
Eigandi mannvirkis sem verður fyrir tjóni sem fellur undir 1. og 2. mgr. skal tilkynna það til [Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar]¹⁾ svo fljótt sem unnt er.
[Húsnæðis- og mannvirkjastofnun]¹⁾ getur hafið rannsókn að eigin frumkvæði sé vanrækt að tilkynna um tjón samkvæmt ákvæðum þessarar greinar.
[Húsnæðis- og mannvirkjastofnun]¹⁾ rannsakar vettvang þegar eftir að tjón hefur verið tilkynnt með aðstoð lögreglu þegar um er að ræða slys sem sætir lögreglurannsókn. [Húsnæðis- og mannvirkjastofnun]¹⁾ skal fá afrit af öllum rannsóknargögnum lögreglu að lokinni lögreglurannsókn, hafi hún farið fram.
[Húsnæðis- og mannvirkjastofnun]¹⁾ kveður til sérfróða menn vegna rannsóknar tjóna eftir því sem þörf krefur. Samráð skal haft við Vinnueftirlit ríkisins ef um er að ræða slys sem sætir jafnframt rannsókn samkvæmt lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum.
[Húsnæðis- og mannvirkjastofnun]¹⁾ skal senda niðurstöður rannsóknar tjóns til viðkomandi byggingarfulltrúa og annarra hlutaðeigandi eftir eðli máls.
Vátryggingarfélög skulu senda [Húsnæðis- og mannvirkjastofnun]¹⁾ upplýsingar ár hvert um bætt tjón á mannvirkjum, sundurliðaðar eftir eðli tjóns.
[Húsnæðis- og mannvirkjastofnun]¹⁾ skal gefa út leiðbeiningar um framkvæmd þessarar greinar.
¹⁾ Rgl. nr. 977/2020, 2. gr.
2.3. Byggingarleyfisskyldar framkvæmdir
Óheimilt er að grafa grunn fyrir mannvirki, reisa það, rífa eða flytja, breyta því, burðarkerfi þess eða lagnakerfum eða breyta notkun þess, útliti eða formi nema að fengnu leyfi viðkomandi leyfisveitanda, sbr. þó 2.3.5 gr. [og 2.3.6. gr.]⁴⁾
[Fráveitumannvirki [utan lóðar]³⁾ og dreifi- og flutningskerfi hitaveitna, vatnsveitna, rafveitna og fjarskipta og breytingar á slíkum mannvirkjum eru undanþegin byggingarleyfi.]¹⁾ [Húsnæðis- og mannvirkjastofnun]²⁾ gefur út nánari leiðbeiningar um afmörkun mannvirkja er falla undir 1. málsl. Allar byggingar tengdar fráveitumannvirkjum og dreifi- og flutningskerfum hitaveitna, vatnsveitna, rafveitna og fjarskipta eru þó háðar leyfi viðkomandi leyfisveitanda, þ.m.t. fjarskiptamöstur, tengivirki og móttökudiskar.
[Mannvirkjagerð sem flokkast í umfangsflokk 1 skv. a-lið 2. mgr. 1.3.2. gr. er undanþegin byggingarleyfi en háð byggingarheimild leyfisveitanda sbr. 1. mgr. 2.3.2. gr.]⁴⁾
¹⁾ Rgl. nr. 1278/2018, 2. gr.
²⁾ Rgl. nr. 977/2020, 2. gr.
³⁾ Rgl. nr. 977/2020, 4. gr.
⁴⁾ Rgl. nr. 1321/2021, 3. gr.
[Byggingarfulltrúi í viðkomandi sveitarfélagi veitir byggingarheimild vegna hvers konar mannvirkjagerðar sem háð er byggingarheimild skv. 3. mgr. 2.3.1. gr.]²⁾
Byggingarfulltrúi í viðkomandi sveitarfélagi veitir byggingarleyfi eftir atvikum í samræmi við samþykkt samkvæmt 1. mgr. 7. gr. laga um mannvirki, vegna hvers konar mannvirkjagerðar sem háð er byggingarleyfi samkvæmt þessum hluta reglugerðarinnar, enda sé ekki um að ræða mannvirki sem háð er byggingarleyfi [Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar]¹⁾. Byggingarfulltrúi veitir byggingarleyfi vegna virkjana og annarra mannvirkja sem reist eru í tengslum við slíkar framkvæmdir.
Leiki vafi á því hvort mannvirki er háð byggingarleyfi eða hver skuli annast útgáfu þess skal leita niðurstöðu úrskurðarnefndar í samræmi við 4. mgr. 9. gr. laga um mannvirki. Niðurstaða nefndarinnar skal liggja fyrir innan eins mánaðar frá því að slíkt erindi berst.
¹⁾ Rgl. nr. 977/2020, 2. gr.
²⁾ Rgl. nr. 1321/2021, 4. gr.
[Húsnæðis- og mannvirkjastofnun]¹⁾ veitir [byggingarheimild og]²⁾ byggingarleyfi vegna hvers konar mannvirkjagerðar sem háð er [byggingarheimild eða]²⁾ byggingarleyfi á eftirfarandi svæðum:
a. Á hafi utan sveitarfélagamarka.
b. Á varnar- og öryggissvæðum eins og nánar greinir í lögum um mannvirki. Heimilt er að gera sérstakar kröfur til mannvirkja á varnar- og öryggissvæðum í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar Íslands.
¹⁾ Rgl. nr. 977/2020, 2. gr.
²⁾ Rgl. nr. 1321/2021, 5. gr.
Varði breyting á mannvirki útlit þess og form skal leita samþykkis hlutaðeigandi skipulagsnefndar áður en [byggingarheimild eða]¹⁾ byggingarleyfi er veitt enda liggi ekki fyrir samþykkt deiliskipulag sem heimilar breytinguna. Ekki þarf að leita slíks samþykkis sé breytingin óveruleg.
Til að breyting á mannvirki geti talist óveruleg má hún ekki skerða hagsmuni nágranna, t.d. hvað varðar útsýni, skuggavarp eða innsýn, ekki breyta eða hafa áhrif á götumynd, né fela í sér stækkun húss á nokkurn hátt, nema stækkunin sé smávægileg og falli innan byggingarreits og breyti ekki eða hafi áhrif á götumynd. Húsum sem njóta friðunar, eru byggð fyrir 1918 eða njóta verndar götumyndar er ekki heimilt að breyta á grundvelli þessa ákvæðis.
¹⁾ Rgl. nr. 1321/2021, 6. gr.
Eftirfarandi minniháttar mannvirki og framkvæmdir eru undanþegnar byggingarleyfi. Þær eru einnig undanþegnar byggingarheimild og tilkynningarskyldu skv. 2.3.6. gr. enda séu þær í samræmi við deiliskipulag og önnur ákvæði reglugerðar þessarar sem við eiga hverju sinni.
a. Allt viðhald innanhúss og utan, þ.m.t. endurnýjun léttra innveggja.
b. Uppsetning móttökudiska, allt að 1,2 m að þvermáli, vegna móttöku útsendinga útvarps eða sjónvarps eða móttökuloftnets.
c. Allt viðhald lóða, girðinga, bílastæða og innkeyrslna.
d. Gerð palla og annar frágangur á eða við jarðvegsyfirborð.
e. Skjólveggir og girðingar sem eru allt að 1,8 m að hæð og eru ekki nær lóðarmörkum en 1,8 m. Ennfremur girðingar eða skjólveggir sem eru nær lóðarmörkum en 1,8 m og eru ekki hærri en sem nemur fjarlægðinni að lóðarmörkum. Einnig allt að 2,0 m langir og 2,5 m háir skjólveggir sem eru áfastir við hús og í a.m.k. 1,8 m fjarlægð frá lóðarmörkum. Lóðarhöfum samliggjandi lóða er heimilt án byggingarleyfis að reisa girðingar eða skjólveggi allt að 1,8 m að hæð á lóðarmörkum, enda leggi þeir fram hjá leyfisveitanda undirritað samkomulag þeirra um framkvæmdina. Miðað skal við jarðvegshæð lóðar sem hærri er ef hæðarmunur er á milli lóða á lóðamörkum.
f. Smáhýsi sem er að hámarki 15 m2 og mesta hæð þaks er 2,5 m mælt frá yfirborði jarðvegs. Sé smáhýsið minna en 3,0 m frá aðliggjandi lóð þarf samþykki eigenda aðliggjandi lóðar. Slík smáhýsi eru ekki ætluð til gistingar eða búsetu.
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun skal gefa út leiðbeiningar um framkvæmd þessarar greinar.]⁴⁾
¹⁾ Rgl. nr. 360/2016, 2. gr. - vantar tengingu í texta
²⁾ Rgl. nr. 280/2014, 1. gr. - vantar tengingu í texta
³⁾ Rgl. nr. 977/2020, 5. gr. - vantar tengingu í texta
⁴⁾ Rgl. nr. 1321/2021, 7. gr.
Eftirfarandi mannvirkjagerð er undanþegin byggingarheimild og -leyfi en skal tilkynnt leyfisveitanda. Hún skal [ekki vera í ósamræmi]4) við deiliskipulag og önnur ákvæði reglugerðar þessarar eins og við á hverju sinni.
a. Nýklæðning þegar byggðra mannvirkja.
b. Tjaldhýsi sem nota skal í atvinnustarfsemi.
c. Stöðuhýsi sem skulu standa lengur en 4 mánuði.
d. Heitir og kaldir pottar eða laugar í görðum við íbúðarhús og frístundahús.
e. Lítilsháttar breyting á burðarvirki sem nemur minna en 5% af hjúpfleti burðarhluta, þó aldrei meira en 5 m².
f. Lítilsháttar breyting á brunahólfun sem nemur minna en 5% af hjúpfleti brunahólfandi hluta, þó aldrei meira en 5 m².
g. Breytingar á lögnum.
h. Rannsóknarmastur ætlað til mælinga, sett upp tímabundið og ekki lengur en til tveggja ára.
i. [Smádreifistöðvar fyrir raforkudreifingu, dæluhús hita-, vatns- og fráveitu og önnur lítil hús veitukerfa sem eru að hámarki 15 m² og mesta hæð þaks er 2,5 m mælt frá yfirborði jarðvegs.]⁴⁾
Byggingarfulltrúi staðfestir móttöku tilkynningar, að mannvirkjagerð falli undir 1. mgr. og að hún samræmist skipulagi. Með tilkynningum skulu fylgja aðaluppdrættir og greinargerð löggilds hönnuðar. Sé tilkynnt um breytingar á þegar byggðu mannvirki, þar sem aðaluppdrættir eru til staðar, þarf ekki að skila aðaluppdráttum í heild heldur aðeins þeim hluta aðaluppdrátta sem sýna breytingarnar.
Ekki er heimilt að hefja mannvirkjagerð án staðfestingar leyfisveitanda. Hafi byggingarfulltrúi þó ekki gert athugasemdir við tilkynnta framkvæmd innan þriggja vikna frá móttöku tilkynningar telst hún staðfest og er þá heimilt að hefja framkvæmdir.
[Húsnæðis- og mannvirkjastofnun]²⁾ skal gefa út leiðbeiningar um framkvæmd þessarar greinar.]³⁾
¹⁾ Rgl. nr. 360/2016, 3. gr. vantar tengingu
²⁾ Rgl. nr. 977/2020, 2. gr.
³⁾ Rgl. nr. 1321/2021, 8. gr.
⁴⁾ Rgr. nr.1677/2023, 1. gr.
Umsókn um byggingarheimild skal vera skrifleg og send hlutaðeigandi leyfisveitanda. Með henni skulu fylgja eftirfarandi gögn:
a. Aðaluppdrættir ásamt byggingarlýsingu, eða breytingar á aðaluppdráttum eftir því sem við á.
b. Gögn sem sýna fram á eignarheimildir og samþykki meðeigenda þegar við á. Önnur gögn sem leyfisveitandi telur nauðsynleg vegna afgreiðslu umsóknar svo sem umsögn Minjastofnunar Íslands, Vinnueftirlits ríkissins og annarra eftirlitsaðila.
c. Skráningartafla vegna nýrra mannvirkja og breytinga á stærð eða eignarmörkum eldri mannvirkja.
Skilyrði fyrir veitingu byggingarheimildar eru eftirfarandi:
- Mannvirkið og notkun þess eða breytingar á mannvirki samræmast skipulagsáætlunum á svæðinu eða fyrir liggur samþykkt sveitarstjórnar vegna heimildarumsóknar skv. ákvæðum skipulagslaga.
- Leyfisveitandi hefur yfirfarið og staðfest aðaluppdrætti.
- Byggingarheimildargjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd, svo sem gatnagerðargjald samkvæmt ákvæðum laga um gatnagerðargjald og bílastæðagjald eða gjald fyrir skipulagsvinnu samkvæmt ákvæðum skipulagslaga, eða samið um greiðslu þeirra. Undanskilin eru þó gjöld sem falla ekki í gjalddaga fyrr en við veitingu byggingarheimildar.
- Byggingarstjóri hefur undirritað yfirlýsingu um ábyrgð sína og afhent leyfisveitanda.
- Skráð hefur verið í gagnasafn Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar að viðkomandi byggingarstjóri og hönnuður hafi gæðastjórnunarkerfi í samræmi við ákvæði reglugerðar þessarar.
Séruppdráttum skal skila til leyfisveitanda til varðveislu áður en lokaúttekt fer fram.
Áætlun um meðhöndlun byggingar- og niðurrifsúrgangs skal skilað til leyfisveitanda áður en framkvæmd hefst, sbr. 15.2.2. gr.
Óheimilt er að veita byggingarheimild fyrir mannvirki sem fellur undir lög um mat á umhverfisáhrifum fyrr en álit Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum liggur fyrir eða ákvörðun stofnunarinnar um að framkvæmd sé ekki matsskyld.
Leyfisveitanda er heimilt að veita umsækjanda leyfi til að kanna jarðveg á framkvæmdasvæði án þess að byggingarheimild hafi verið veitt.
Gæta skal að ákvæðum laga um menningarminjar vegna umsóknar um breytingu á þegar byggðu mannvirki sem fellur undir þau lög.]¹⁾
¹⁾ Rgl. nr. 1321/2021, 10. gr.
Eigandi sem ræðst í framkvæmdir sem falla undir 2.3.5. gr. ber ábyrgð á að ekki skapist hætta fyrir fólk og eignir vegna mannvirkisins og að virt séu öll viðeigandi ákvæði þessarar reglugerðar. Hann skal einnig gæta þess að fyrirhugaðar framkvæmdir séu í samræmi við gildandi skipulagsáætlanir.
Eigandi mannvirkis sem undanþegið er byggingarleyfi ber ábyrgð á að ekki sé gengið á rétt nágranna og að virt séu ákvæði laga um fjöleignarhús.
¹⁾ Rgl. nr. 360/2016, 3. gr.
²⁾ Rgl. nr. 1321/2021, 9. og 10. gr.
2.4. Byggingarleyfið
Umsókn um byggingarleyfi skal vera skrifleg og send hlutaðeigandi leyfisveitanda. Á fyrra stigi umsóknar, þ.e. vegna byggingaráforma, skal skila inn gögnum sem tilgreind eru í 2. mgr. Á seinna stigi, þ.e. vegna endanlegrar afgreiðslu byggingarleyfis, skal skila inn gögnum sem tilgreind eru í 3. mgr. Heimilt er að samþykkja byggingaráform og gefa út byggingarleyfi samtímis hafi öllum gögnum verið skilað til leyfisveitanda.
Gögn vegna samþykktar byggingaráforma eru eftirtalin:
a. Aðaluppdrættir ásamt byggingarlýsingu[...]⁴⁾. [Sé bygging eða starfsemi sérstaks eðlis getur leyfisveitandi krafist þess að viðbótargreinargerð fylgi umsókn auk greinargerða skv. 4.5.3. gr.]³⁾Ennfremur skal fylgja mæli- og hæðarblað er sýnir götunafn og númer, afstöðu húss og lóðar, hæðarlegu miðað við götu, eftir því sem við á og hnitaskrá og landnúmer. Leyfisveitandi ákveður hvort og að hvaða leyti leggja þarf fram aðaluppdrætti vegna breytinga á þegar byggðum mannvirkjum.
b. Tilkynning um hönnunarstjóra mannvirkisins.
c. Samþykki meðeigenda eða annarra aðila eftir atvikum.
d. Önnur gögn sem leyfisveitandi telur nauðsynleg vegna afgreiðslu umsóknar, s.s. umsögn [Minjastofnunar Íslands]¹⁾, Vinnueftirlits ríkisins, slökkviliðs og annarra eftirlitsaðila og gögn sem sýna fram á eignarheimildir, réttindi hönnuða o.fl.
e. Staðfesting skipulagsfulltrúa viðkomandi sveitarfélags ef mannvirki er á varnar- og öryggissvæði á því að fyrirhuguð framkvæmd sé í samræmi við skipulagsáætlanir á svæðinu.
f. Skráningartafla vegna allra nýrra mannvirkja svo og vegna breytinga á stærð eða breytinga á eignarmörkum eldri mannvirkja.
Vegna útgáfu byggingarleyfis ber, til viðbótar gögnum skv. 2. mgr., að leggja fram eftirfarandi gögn:
a. [Áætlun um verkframvindu.]²⁾
b. Undirritaða yfirlýsingu byggingarstjóra um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd.
c. Undirritaða ábyrgðaryfirlýsingu [húsasmíðameistara, múrarameistara, pípulagningameistara og rafvirkjameistara]²⁾ sem ábyrgð bera á einstökum verkþáttum.
d. Yfirlit hönnunarstjóra um innra eftirlit við framkvæmd hönnunar.
e. Yfirlit hönnunarstjóra um ábyrgðarsvið einstakra hönnuða og áritun hans til staðfestingar á því að um tæmandi yfirlit sé að ræða.
f. Staðfestingu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar á að lífsferilsgreining hafi verið gerð fyrir mannvirkið, ef framkvæmdin fellur undir umfangsflokka 2 eða 3 skv. b- og c-lið 1. mgr. 1.3.2. gr. ⁵⁾
¹⁾ Rgl. nr. 1173/2012, 1. gr.
²⁾ Rgl. nr. 1278/2018, 3. gr.
³⁾ Rgl. nr. 977/2020, 6. gr.
⁴⁾ Rgl. nr. 1321/2021, 11. gr.
Leyfisveitandi fer yfir byggingarleyfisumsókn og gengur úr skugga um að fyrirhuguð mannvirkjagerð sé í samræmi við skipulagsáætlanir á viðkomandi svæði, aðaluppdrættir uppfylli öll viðeigandi ákvæði laga um mannvirki og þessarar reglugerðar og að viðeigandi gögn hafi verið lögð fram.
Ef framkvæmd er háð grenndarkynningu skv. ákvæðum skipulagslaga skal hún hafa farið fram og hlotið afgreiðslu skv. ákvæðum skipulagslaga áður en byggingaráform eru samþykkt.
Leyfisveitandi tilkynnir umsækjanda skriflega um samþykkt byggingaráforma hans. Þessi tilkynning veitir umsækjanda ekki heimild til að hefja byggingarframkvæmdir.
[Samþykkt byggingaráforma fellur úr gildi hafi byggingarleyfi ekki verið gefið út innan tveggja ára frá samþykkt þeirra, nema annar gildistími sé tilgreindur í samþykktinni.]¹⁾
Ef mannvirki er háð byggingarleyfi byggingarfulltrúa skal hann leita umsagnar skipulagsfulltrúa leiki vafi á að framkvæmd samræmist skipulagsáætlunum sveitarfélagsins. Ef ekki liggur fyrir deiliskipulag skal byggingarfulltrúi vísa leyfisumsókninni til skipulagsnefndar í samræmi við ákvæði skipulagslaga.
Leita skal umsagnar skipulagsnefndar Keflavíkurflugvallar vegna mannvirkja á flugvallarsvæði Keflavíkurflugvallar. Sé mannvirki á hafi eigi fjær ytri mörkum netlaga en eina sjómílu skal leita umsagnar næsta sveitarfélags, eins eða fleiri eftir atvikum, við umfjöllun um byggingarleyfisumsókn.
¹⁾ Rgl. nr. 1173/2012, 2. gr.
Leyfisveitanda er heimilt að krefjast prófunar, vottunar eða skoðunar á mannvirki, hlutum þess eða tæknibúnaði á kostnað umsækjanda ef rökstuddur grunur er um að það uppfylli ekki kröfur laga um mannvirki eða þessarar reglugerðar eða ef viðkomandi hlutur eða tæknibúnaður hefur ekki verið notaður áður við sambærilegar aðstæður eða á sambærilegan hátt.
Standist mannvirkið eða hluti þess ekki prófun, vottun eða skoðun skal leyfisveitandi gefa eiganda hæfilegan frest til að gera nauðsynlegar úrbætur. Geri eigandi ekki nauðsynlegar úrbætur getur leyfisveitandi gripið til viðeigandi úrræða, sbr. 2.9. kafla.
Þegar sérstaklega stendur á getur leyfisveitandi við útgáfu byggingarleyfis sett skilyrði um að prófun, vottun eða skoðun skuli framkvæmd á kostnað umsækjanda eftir að mannvirki er tekið í notkun, til að tryggja að uppfyllt séu ákvæði laga um mannvirki og reglugerðar þessarar og að gerðar séu viðeigandi aðgerðir til úrbóta.
Prófun, skoðun og vottun skal fara fram í samræmi við viðeigandi staðla af aðila sem viðurkenndur er af [Húsnæðis- og mannvirkjastofnun]¹⁾. Heimilt er leyfisveitanda að krefjast þess að faggiltur aðili annist þetta, sbr. lög um faggildingu o.fl. Séu ekki til staðlaðar prófunarlýsingar skal prófandi leggja fram skriflega lýsingu um prófunina ásamt rökstuðningi fyrir réttmæti prófunaraðferðar.
[Húsnæðis- og mannvirkjastofnun]¹⁾ skal gefa út leiðbeiningar um framkvæmd þessarar greinar.
¹⁾ Rgl. nr. 977/2020, 2. gr.
Skilyrði fyrir útgáfu byggingarleyfis eru eftirfarandi:
- Mannvirkið og notkun þess samræmast skipulagsáætlunum á svæðinu eða fyrir liggur samþykkt sveitarstjórnar vegna leyfisumsóknar skv. ákvæðum skipulagslaga.
- [Leyfisveitandi hefur yfirfarið og staðfest aðaluppdrætti.]²⁾⁵⁾
- Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd, svo sem gatnagerðargjald samkvæmt ákvæðum laga um gatnagerðargjald og bílastæðagjald eða gjald fyrir skipulagsvinnu samkvæmt ákvæðum skipulagslaga, eða samið um greiðslu þeirra. Undanskilin eru þó gjöld sem falla ekki í gjalddaga fyrr en við útgáfu byggingarleyfis.
- Byggingarstjóri hefur undirritað yfirlýsingu um ábyrgð sína og afhent leyfisveitanda undirritaða ábyrgðaryfirlýsingu [húsasmíðameistara, múrarameistara, pípulagningameistara og rafvirkjameistara]²⁾ sem ábyrgð munu bera á einstökum verkþáttum.
- Skráð hefur verið í gagnasafn [Húsnæðis- og mannvirkjastofnun]⁴⁾ að viðkomandi [hönnuður]⁵⁾byggingarstjóri og iðnmeistarar hafi gæðastjórnunarkerfi í samræmi við ákvæði reglugerðar þessarar.
- Hönnunarstjóri hefur lagt fram yfirlit um innra eftirlit við framkvæmd hönnunar og yfirlit um ábyrgðarsvið einstakra hönnuða og áritað það til staðfestingar á því að um tæmandi yfirlit sé að ræða. Yfirlitið skal afhent samtímis hönnunargögnum.
[[Leyfisveitandi skal yfirfara og staðfesta séruppdrætti og tilheyrandi greinargerðir áður en vinna við viðkomandi verkþátt hefst.]⁵⁾
Undirritaðar yfirlýsingar um ábyrgð annarra iðnmeistara en þeirra sem tilgreindir eru í 4. tölul. 1. mgr. og nauðsynlegt er að komi að verkinu, sbr. 4.10.1. gr., skulu afhentar leyfisveitanda áður en vinna við viðkomandi verkþátt hefst. Ekki þarf þó að tilkynna um blikksmiðameistara, stálvirkjameistara, málarameistara eða veggfóðrarameistara vegna byggingar íbúðarhúss, frístundahúss, bílskúrs eða viðhalds og viðbyggingar slíkra mannvirkja til eigin nota eiganda.
Áætlun um meðhöndlun byggingar- og niðurrifsúrgangs skal skilað til leyfisveitanda áður en framkvæmd hefst, sbr. 15.2.2. gr.]²⁾
Óheimilt er að gefa út byggingarleyfi fyrir mannvirki sem fellur undir lög um mat á umhverfisáhrifum fyrr en álit Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum liggur fyrir eða ákvörðun stofnunarinnar um að framkvæmd sé ekki matsskyld.
Leyfisveitanda er heimilt að veita umsækjanda leyfi til að kanna jarðveg á framkvæmdasvæði án þess að byggingarleyfi hafi verið gefið út.
[Gæta skal að ákvæðum laga um menningarminjar vegna umsóknar um breytingu á þegar byggðu mannvirki sem fellur undir þau lög.]¹⁾
¹⁾ Rgl. nr. 1173/2012, 3. gr.
²⁾ Rgl. nr. 1278/2018, 4. gr.
³⁾ Rgl. nr. 1278/2018, 5. gr. vantar tengingu
⁴⁾ Rgl. nr. 977/2020, 2. gr.
⁵⁾ Rgl. nr. 1321/2021, 12. gr.
[Byggingarheimild og byggingarleyfi]²⁾ fellur úr gildi hafi byggingarframkvæmdir ekki hafist innan 12 mánaða frá útgáfu þess. Framkvæmd telst vera hafin við fyrstu áfangaúttekt. [Byggingarheimildar eða -leyfishafi]²⁾ getur leitað eftir staðfestingu leyfisveitanda á að framkvæmdir séu hafnar á fyrri stigum framkvæmdar.
Nú stöðvast byggingarframkvæmdir í eitt ár eða lengur og getur leyfisveitandi þá að undangenginni aðvörun fellt [byggingarheimild eða]²⁾ byggingarleyfið úr gildi. Það telst ekki nægjanleg framvinda verks að byggingarefni sé flutt á byggingarstað án þess að unnið sé frekar úr því.
Hafi byggingarframkvæmdir stöðvast í tvö ár hið skemmsta getur leyfisveitandi tekið ófullgert mannvirki, byggingarefni og lóð eignarnámi samkvæmt lögum um framkvæmd eignarnáms.
Ítarlegri ákvæði um byggingarhraða sem sett eru af sveitarfélagi á grundvelli skipulagslaga gilda framar ákvæðum þessarar greinar.
¹⁾ Rgl. nr. 1278/2018, 5. gr.
²⁾ Rgl. nr. 1321/2021, 13. gr.
Leyfisveitandi getur að undangenginni aðvörun fellt [byggingarheimild og]²⁾ byggingarleyfi úr gildi ef eigandi mannvirkisins eða aðrir þeir sem bera ábyrgð á byggingarframkvæmdum samkvæmt lögum um mannvirki og reglugerð þessari sinna ekki fyrirmælum hans við byggingareftirlit eða gerast sekir um alvarleg eða ítrekuð brot gegn lögum um mannvirki eða reglugerð þessari.
Um úrræði leyfisveitanda vegna brota á ákvæðum laga um mannvirki og reglugerðum sem settar eru samkvæmt þeim fer samkvæmt ákvæðum 2.9. kafla.
¹⁾ Rgl. nr. 1278/2018, 5. gr.
²⁾ Rgl. nr. 1321/2021, 14. gr.
2.5. Skilti
Stærð og staðsetning skilta skal vera í samræmi við ákvæði gildandi skipulags.
[Við gerð og uppsetningu skilta sem eru upplýst eða sem ljós stafar frá skal jafnframt gæta að kröfum varðandi ljósmengun, sbr. 10.4.5. gr.]¹⁾
Sækja skal um byggingarleyfi fyrir öllum frístandandi skiltum og skiltum á byggingum sem eru yfir 1,5 m² að flatarmáli. Undanþegin eru þó skilti allt að 2,0 m² að stærð sem ætlað er að standa skemur en tvær vikur sem og skilti sem sett eru upp samkvæmt ákvæðum umferðarlaga.
Umsækjandi skal senda skriflega umsókn ásamt tilheyrandi gögnum til leyfisveitanda. Tilheyrandi gögn eru m.a. uppdrættir og önnur gögn sem nauðsynleg eru til að sýna útlit, fyrirkomulag og öryggi skiltanna.
Um auglýsingar meðfram vegum og annars staðar utan þéttbýlis skal gæta ákvæða laga um náttúruvernd.
¹⁾ Rgl. nr. 11/2026, 2. gr.
Tryggja skal við gerð og uppsetningu skilta að almenningi stafi ekki hætta af þeim og að þau valdi ekki tjóni á öðrum eignum. Útstæð skilti skulu vera minnst 4,20 m yfir akbraut eða akfærum stígum eða bílastæðum og a.m.k. 2,60 m yfir göngustígum og gangbrautum. Skilti skulu þannig gerð og frá þeim gengið að ekki stafi frá þeim eldhætta og að aðgengi slökkviliðs sé ekki torveldað. Eigandi skiltis er ábyrgur fyrir því að ekki skapist hætta vegna þess og er leyfisveitanda heimilt að krefja eiganda um gögn og rökstuðning þar að lútandi.
2.7. Ábyrgð eiganda mannvirkis
Eigandi ber ábyrgð á því að við hönnun, byggingu og rekstur mannvirkis sé farið að kröfum laga um mannvirki og þessarar reglugerðar.
Eigandi skal hafa virkt innra eftirlit með því að þeir aðilar sem hann ræður til að hanna, byggja og reka mannvirkið fari eftir ákvæðum laga um mannvirki og þessarar reglugerðar. Hönnunarstjóri annast innra eftirlit eiganda við hönnun mannvirkis. Byggingarstjóri mannvirkis framkvæmir innra eftirlit eiganda frá því að byggingarleyfi er gefið út og þar til lokaúttekt hefur farið fram. Hönnunarstjóri og byggingarstjóri skulu gera eiganda grein fyrir framkvæmd innra eftirlits samkvæmt því sem kveðið er á um í 4.hluta þessarar reglugerðar.
Eigandi ber ábyrgð á að fram fari lögboðið eftirlit með byggingu mannvirkisins í samræmi við ákvæði laga um mannvirki og þessarar reglugerðar.
Eftirtaldir aðilar teljast eigendur samkvæmt þessari grein:
a. Lóðarhafi óbyggðrar lóðar.
b. Umsækjandi um byggingarleyfi.
c. Byggingarleyfishafi.
d. Eigandi mannvirkis í byggingu. Sé mannvirki selt í heild eða að hluta áður en lokaúttekt fer fram ber fyrri eigandi ábyrgð skv. 1. mgr. ásamt nýjum eiganda nema um annað sé samið í skriflegum samningi milli þeirra. Skal þá koma skýrt fram að nýr eigandi gangi inn í samning fyrri eiganda við byggingarstjóra mannvirkisins eða nýr byggingarstjóri sé ráðinn fyrir mannvirkið í heild.
e. Eigandi mannvirkis eftir að lokaúttekt hefur farið fram.
2.8. Leyfisveitandi
Leyfisveitandi hefur eftirlit með því að hönnun mannvirkis sé í samræmi við ákvæði laga um mannvirki og reglugerða sem settar eru samkvæmt þeim og að byggt sé í samræmi við samþykkt hönnunargögn og lög og reglugerðir sem um mannvirkjagerðina gilda.
[Leyfisveitandi annast öryggis- og lokaúttektir og eftir atvikum áfangaúttektir í samræmi við ákvæði skoðunarhandbóka og gefur út viðeigandi vottorð á grundvelli niðurstöðu skoðunarstofu eða eigin skoðunar. Hann hefur eftirlit með að úttektir sem skoðunarstofur annast fari fram og beitir þvingunarúrræðum í samræmi við ákvæði reglugerðar þessarar ef fyrirmælum um úrbætur er ekki sinnt eða vanrækt er að láta lögbundna úttekt fara fram.]¹⁾
[Leyfisveitandi gerir stöðuskoðun á verki skv. 3.7.3. gr. og hefur þannig eftirlit með því að byggingarstjóri framkvæmi áfangaúttektir samkvæmt skoðunarhandbókum eða að úttektir sem skoðunarstofur annast fari fram. Leyfisveitandi getur ákveðið að annast sjálfur áfangaúttektir eða að skoðunarstofa annist áfangaúttektir sbr. 3. mgr. 3.7.1. gr. Leyfisveitandi beitir þvingunarúrræðum í samræmi við ákvæði reglugerðar þessarar ef fyrirmælum um úrbætur er ekki sinnt eða vanrækt er að láta lögbundna úttekt fara fram.]¹⁾
Leyfisveitandi gefur út vottorð um eftirfarandi úttektir, eftir atvikum á grundvelli skoðunarskýrslu skoðunarstofu eða eigin skoðunar:
a. Öryggisúttekt.
b. Lokaúttekt.
c. Úttekt við lok niðurrifs mannvirkis.
Leyfisveitandi skal sjá um að hönnunargögn, eftirlitsskýrslur, gátlistar, úttektarvottorð og öll önnur gögn sem ákvarðanir hans eru byggðar á séu færð í gagnasafn [Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar]²⁾.
¹⁾ Rgl. nr. 1278/2018, 6. gr.
²⁾ Rgl. nr. 977/2020, 2. gr.
2.9. Þvingunarúrræði og viðbrögð við brotum
Ef byggingarleyfisskyld framkvæmd er hafin án þess að leyfi sé fengið fyrir henni, ekki sótt um leyfi fyrir breyttri notkun mannvirkis, það byggt á annan hátt en leyfi stendur til, mannvirkið eða notkun þess brýtur í bága við skipulag, mannvirki er tekið í notkun án þess að öryggisúttekt hafi farið fram eða ef mannvirki er tekið til annarra nota en heimilt er samkvæmt útgefnu byggingarleyfi getur leyfisveitandi stöðvað slíkar framkvæmdir eða notkun tafarlaust og fyrirskipað lokun mannvirkisins. Sama gildir ef ekki er að öðru leyti fylgt ákvæðum laga um mannvirki eða reglugerða sem settar eru samkvæmt þeim við byggingarframkvæmdina.
Ef byggingarframkvæmd er hafin án þess að leyfi sé fengið fyrir henni eða hún brýtur í bága við skipulag getur leyfisveitandi krafist þess að hið ólöglega mannvirki eða byggingarhluti sé fjarlægt, jarðrask afmáð eða starfsemi hætt. Sinni eigandi ekki þeirri kröfu er heimilt að vinna slík verk á hans kostnað.
Reynist öryggi mannvirkis ábótavant við öryggis- eða lokaúttekt þess eða það telst skaðlegt heilsu skal leyfisveitandi fyrirskipa lokun þess og koma í veg fyrir að mannvirkið verði tekið í notkun fyrr en úr hefur verið bætt.
Ef þörf krefur er lögreglu skylt að aðstoða byggingarfulltrúa og [Húsnæðis- og mannvirkjastofnun]¹⁾ við þær aðgerðir er greinir í 1. til 3. mgr.
Sveitarfélag eða ríkið eftir atvikum á endurkröfu á eiganda mannvirkis vegna kostnaðar sem það hefur haft af ólöglegri mannvirkjagerð og lögveð fyrir kröfu sinni í hinu ófullgerða mannvirki, byggingarefni og lóð sem um ræðir.
[Húsnæðis- og mannvirkjastofnun]¹⁾ skal gefa út leiðbeiningar um framkvæmd þessarar greinar.
¹⁾ Rgl. nr. 977/2020, 2. gr.
Sé ásigkomulagi, frágangi, umhverfi eða viðhaldi húss, annars mannvirkis eða lóðar ábótavant, af því stafar hætta eða það telst skaðlegt heilsu að mati byggingarfulltrúa eða Mannvirkjastofnunar, eða ekki er gengið frá því samkvæmt samþykktum uppdráttum, lögum, reglugerðum og byggingarlýsingu, skal gera eiganda eða umráðamanni þess aðvart og leggja fyrir hann að bæta úr því sem áfátt er. Sama gildir ef vanrækt er að láta fara fram úttektir samkvæmt lögum um mannvirki eða reglugerðum sem settar eru samkvæmt þeim, ef notkun mannvirkis er breytt án samþykkis byggingarfulltrúa eða ef notkun mannvirkis brýtur í bága við skipulag.
Húsnæðis-og mannvirkjastofnun og byggingarfulltrúa er heimilt að beita dagsektum allt að 500.000 kr. til að knýja menn til þeirra verka sem þau skulu hlutast til um samkvæmt lögum um mannvirki eða reglugerðum sem settar eru samkvæmt þeim, eða láta af ólögmætu atferli. Dagsektir sem byggingarfulltrúi leggur á renna í sveitarsjóð en í ríkissjóð ef [Húsnæðis- og mannvirkjastofnun]¹⁾ leggur þær á.
Byggingarfulltrúi og [Húsnæðis- og mannvirkjastofnun]¹⁾ geta látið vinna verk, sem þau hafa lagt fyrir að unnið skyldi, á kostnað þess sem vanrækt hefur að vinna verkið.
Dagsektir og kostnað skv. 2. og 3. mgr. má innheimta með fjárnámi og hefur sveitarfélag eða eftir atvikum ríkið lögveð fyrir kröfu sinni í hinu ófullgerða mannvirki, byggingarefni og lóð sem um ræðir.
[Húsnæðis- og mannvirkjastofnun]¹⁾ skal gefa út leiðbeiningar um framkvæmd þessarar greinar.
¹⁾Rgl. nr. 977/2020, 2. gr.
Ef hönnuður, byggingarstjóri eða iðnmeistari brýtur ákvæði laga, reglugerða eða samþykkta um skipulags- og byggingarmálefni, vanrækir hlutverk sitt og skyldur eða sýnir af sér ítrekaða eða alvarlega óvarkárni í starfi getur [Húsnæðis- og mannvirkjastofnun]¹⁾ veitt honum áminningu. Séu brot alvarleg eða ítrekuð getur [Húsnæðis- og mannvirkjastofnun]¹⁾ svipt hönnuð eða iðnmeistara löggildingu.
[Húsnæðis- og mannvirkjastofnun]¹⁾ getur svipt byggingarstjóra starfsleyfi ef hann uppfyllir ekki lengur skilyrði fyrir leyfisveitingu. Sama á við ef byggingarstjóri brýtur ákvæði laga, reglugerða eða samþykkta um skipulags- og byggingarmálefni, vanrækir hlutverk sitt og skyldur eða sýnir af sér ítrekaða eða alvarlega óvarkárni í starfi.
Byggingarfulltrúi sem verður áskynja um brot hönnuðar, byggingarstjóra eða iðnmeistara samkvæmt þessari grein skal tilkynna um það til [Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar]¹⁾.
[Húsnæðis- og mannvirkjastofnun]¹⁾ skal gefa út leiðbeiningar um framkvæmd þessarar greinar.