17.1. Refsiábyrgð og gildistaka
Brot gegn reglugerð þessari varða sektum eða fangelsi allt að tveimur árum nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum.
Reglugerð þessi, sem er sett samkvæmt 1. mgr. 60. gr. laga nr. 160/2010 um mannvirki og 4. mgr. 24. gr. laga nr. 75/2000 um brunavarnir öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi byggingarreglugerð nr. 441/1998 með síðari breytingum og samþykktir sveitarfélaga sem settar hafa verið á grundvelli fyrri skipulags- og byggingarlaga og brjóta í bága við reglugerð þessa. Ákvæði 26. og 33. gr. reglugerðar nr. 441/1998, með síðari breytingum, sbr. 5. gr. reglugerðar nr. 425/2002, halda þó gildi sínu þar til sett hefur verið reglugerð um starfsábyrgðartryggingar hönnuða og byggingarstjóra sbr. 4. mgr. 4.1.1. gr. og 10. mgr. 4.7.7. gr.
Ákvæði til bráðabirgða.
- Að fenginni skriflegri ósk umsækjanda um byggingarleyfi er leyfisveitanda heimilt við útgáfu byggingarleyfa, til [15. apríl 2013]¹⁾, að ákveða að um viðkomandi mannvirkjagerð gildi ákvæði eldri byggingarreglugerðar, nr. 441/1998, með síðari breytingum varðandi þá þætti er falla undir ákvæði 6. til 16. hluta þessarar reglugerðar, að því leyti sem slíkt samræmist ákvæðum laga nr. 160/2010 um mannvirki. Í umsókn um byggingarleyfi skal gera ítarlega grein fyrir því á hvern hátt og varðandi hvaða þætti óskað er eftir að eldri reglum sé beitt. Sé heimild þessi veitt skal það koma fram við samþykkt byggingaráforma, í byggingarleyfi og á aðaluppdráttum og efni hennar tilgreint eftir atvikum nánar í sérstöku fylgiskjali með aðaluppdrætti.
- [Mannvirkjastofnun og byggingarfulltrúar hafa frest til 1. janúar 2021 til að afla sér faggildingar til að yfirfara aðal- og séruppdrætti og annast úttektir í samræmi við ákvæði 3.2. kafla.]²⁾
[…]²⁾