Viðhald timburglugga
Viðhald timburglugga felur í sér reglubundnar aðgerðir sem miða að því tryggja virkni, endingu og ástand glugganna.
Það felur í sér hreinsun, yfirborðsmeðferð (t.d. málun eða lökkun), viðgerðir á við að hluta eða í heild, endurnýjun þéttinga og eftirlit með rakaskemmdum, flögnun málningar og/eða sliti.
Í stuttu máli snýst viðhald timburglugga um að halda þeim í nothæfu ástandi með sambærilegum efnum og upprunalega voru notuð án verulegra breytinga.
Timbur
Timbur hefur þá eiginleika að leita að rakajafnvægi á við umhverfið. Sé rakastig í umhverfi óvarins timburs hátt (t.d. vegna rigningar) t dregur það raka í sig þar til rakastigið í timbrinu er í jafnvægi við rakastig loftsins í kring. Sé loftið þurrt (rakastig lágt) þornar timbrið þar til jafnvægi við umhverfið næst. Óvarið timbur stillir sig því sjálft að umhverfinu.
Meðal langtímaafleiðinga of mikils raka er t.d. minnkað burðarþol, fúi, mygla og óþarflega hár viðhaldskostnaður.
Timburgluggar
Gluggar geta samanstaðið af gluggakörmum, gluggapóstum, opnanlegum fögum, vatnsbrettum, glerlistum, þéttilistum, kítti og gleri/rúðu.
- Gluggakarmur eða karmur er nafn á timbrinu sem myndar ramma gluggans sem festur er í vegginn og glugginn sjálfur (glerið er fest í).
- Gluggapóstur eða póstur er lóðréttur eða láréttur burðarbiti innan gluggakarms sem skiptir glugga í tvo eða fleiri hluta. Með einföldum má segja að gluggapóstur sé stoð inni í glugga sem skiptir honum upp og heldur honum stöðugum.
- Opnanleg fög eru þeir hlutar glugga sem hægt er að opna og loka, yfirleitt með því að snúa þeim á hjörum eða hreyfa á annan hátt til að hleypa lofti inn eða út.
- Vatnsbretti er skáhallaður byggingarhluti undir glugga að utanverðu sem er hannaður til að leiða regnvatn frá glugganum og út frá veggnum.
- Glerlistar (glerjunarlistar) eru listar sem liggja meðfram brún glers í glugga og halda glerinu föstu í karmi eða ramma.
- Þéttilistar eru sveigjanlegir listar (t.d. úr gúmmíi eða plasti) sem eru settir á milli byggingarhluta, til dæmis við glugga eða hurðir, til að koma í veg fyrir loftleka, vatnsleka og varmatap.
- Kítti er mótandi þéttiefni sem sett er milli glers og ramma (eða annarra byggingarhluta) til að halda glerinu föstu og tryggja þéttingu gegn vatni og lofti.
- Gler/rúða er ólífrænt byggingarefni sem myndast við bræðslu kísilefna (t.d. sands) og storknar án þess að mynda kristalbyggingu. Í mannvirkjagerð er gler notað sem gegnsætt efni (rúða) í gluggum til að hleypa ljósi inn en jafnframt tryggja veðurvörn og einangrun.

Mynd: Gluggakarmur (karmefni) úr furu, stærðin er 20/56 x 115 mm
Ábyrgð á viðhaldi
Á Íslandi ber eigandi mannvirkis almennt ábyrgð á viðhaldi þess og því að mannvirkið sé öruggt og uppfylli kröfur laga og reglugerða. Samkvæmt byggingarreglugerð nr. 112/2012 ber eigandi ábyrgð á að við hönnun, byggingu og rekstur mannvirkis sé farið að kröfum laga um mannvirki og byggingarreglugerðar.
Í framkvæmd þýðir ofangreint að eigandi þarf meðal annars að:
- sjá til þess að mannvirkinu sé viðhaldið,
- tryggja að mannvirkið að hluta eða í heild valdi ekki hættu,
- framkvæmi eða láti framkvæma nauðsynlegar viðgerðir,
- fylgja fyrirmælum byggingaryfirvalda ef gallar eða hætta koma í ljós.
Fyrir fjölbýlishús gilda ákvæði laga, nr. 26/1994, um fjöleignarhús. Þar ber húsfélag eða sameigendur ábyrgð á viðhaldi sameignar, en hver eigandi ber ábyrgð á sínu séreignarhluta.
Mynd: Timburgluggi sem liggur undir skemmdum
Minjastofnun Íslands
Á Íslandi gilda lög, nr. 80/2012, um menningarminjar. Þar er kveðið á um að öll hús og mannvirki sem voru byggð árið 1923 eða fyrr séu friðuð. Óheimilt er að raska friðuðum húsum og mannvirkjum, spilla þeim eða breyta, rífa þau eða flytja úr stað nema með leyfi Minjastofnunar Íslands.
Eigendum húsa og mannvirkja sem ekki njóta friðunar en byggð voru 1940 eða fyrr, svo og forráðamönnum kirkna sem reistar voru 1940 eða fyrr, er skylt að leita álits hjá Minjastofnun Íslands með minnst sex vikna fyrirvara ef þeir hyggjast breyta þeim, flytja þau eða rífa.
Almennt viðhald, fyrirbyggjandi aðgerðir og reglulegt eftirlit
Grunnatriði í öllu viðhaldi er almennt viðhald, fyrirbyggjandi aðgerðir og reglulegt eftirlit.
Með almennu viðhaldi er fyrst og fremst átt við þrif og að halda gluggunum hreinum. Mikilvægt er að halda gluggunum hreinum og fjarlægja öll óhreinindi sem geta bundið raka og flýtt yfir niðurbroti.
Hversu oft á að þrífa glugga fer alltaf eftir staðsetningu byggingarinnar, veðri og notkun. Almenn viðmið eru:
- Íbúðarhúsnæði: 2–4 sinnum á ári.
- Hús við sjó eða á vindasömum svæðum: 4–6 sinnum á ári, þar sem salt, sandur og óhreinindi safnast hraðar upp.
- Atvinnuhúsnæði og verslanir: Oft mánaðarlega eða oftar, eftir kröfum um útlit og sýnileika.
- Þakgluggar og gluggar undir trjám eða gróðri: Geta þurft tíðari þrif vegna frjókorna, laufblaða og annarra óhreininda.
Með fyrirbyggjandi aðgerðum (rakavörnum) er hægt að auka líftíma timburglugga verulega og þar með minnka þörf á viðhaldi. Þar skiptir loftun mjög miklu máli. Almenn viðmið eru:
- Að tryggja góða loftræstingu innanhús til að raki vegna t.d. þvotta, baða og eldunar leiti út.
Forðast skal langvarandi rakasöfnun við glugga (t.d. vegna þéttra gluggatjalda). Þurrka þarf upp raka safnist hann upp við glugga. - Að viðhalda hitajafnvægi við gluggann (t.d. með ofnum undir gluggum).
Með reglulegi eftirliti er átt við reglulega og vandaða ástandsskoðun. Gott er að skoða glugga að lágmarki árlega. Sé eftirlit framkvæmt að vori gefst eigendum tækifæri til að nýta sumarið til viðhalds.
Mynd: Tæring (ryð) í saum veldur skemmdum í tréverki gluggans
Skoða þarf ástand:
- Málningar/yfirborðs (flögnun).
- Þéttilista og glerlista (leki, flögnun, fúi, sprungur).
- Kíttis og glerfalsa (leki, flögnun).
- Timburs (fúi, sprungur)
- Glers (móða, sprungur)
- Festinga (lamir, skrúfur, stormjárn, krækjur, öryggisjárn o.s.frv.)
Leita þarf að:
- Raka
- Leka
- Mislitun
- Fúa/myglu
- Sprungum í timbri
- Flagnaðri málningu
- Móðu í gleri, ísmyndun eða sprungum
- Ryði í festingum
Viðhald á þéttingum
- Athuga þarf þéttilista: ef þeir eru harðir, sprungnir eða slitnir á að skipta þeim út.
- Athuga þarf þéttleika: tryggja þarf að loft- og vatnsþéttleiki haldist og að varmatap sé sem minnst.
Mynd: Timburgluggar sem liggja undir skemmdum
Viðhald á gleri og kítti
- Athuga þarf ástand kíttis: ef það er hart, sprungið, losnað eða það lekur við gler þarf að endurnýja kíttið.
- Athuga þarf ástand glers: ef það er sprungið, brotið eða flísar í því þarf að skipta því út. Ef móða, raki eða vatn er milli glerja bendir það til þess að glerið hafi tapað einangrunargetu. Í einhverjum tilfellum er hægt að bora lítil göt í glerið og fjarlægja rakann. Slíkar aðgerðir eru almennt ekki taldar jafngildar og að skipta um glerið.
Viðhald á glerlistum, gluggakörmum, gluggapóstum og vatnsbrettum
- Athuga þarf ástand glerlista og gluggakarma, gluggapósta og vatnsbretta: ef timbur er illa sprungið, fúið eða óviðgerðarhæft þarf að skipta því út að hluta til eða í heild.
- Ef málning er farin að flagna af timbri þarf að skafa alla lausa málningu af, pússa samskeyti málningar og timburs saman, grunna og mála. Gæta þarf að því að rakastig timbursins sé rétt við málun. Of hátt rakastig getur valdið fúa og síðar myglu.
Mynd: Gluggapóstur (póstefni) úr furu, stærðin er 20/66 x 110 mm
Viðhald á opnanlegum fögum, læsingum, lömum og festingum
- Athuga þarf lamir og læsingar: Smyrja þarf lamir og læsingar að lágmarki árlega. Sé ryð komið í lamir og læsingar þarf að pússa það af, grunna og mála yfir. Einnig er kostur að skipta út lömum og læsingum.
- Athuga þarf festingar á borð við skrúfur: Séu skrúfur ryðgaðar eða brotnar þarf að skipta þeim út. Nota þarf ryðfríar tréskrúfur. Lausar skrúfur þarf að herða.
- Athuga þarf opnanlega glugga: Tryggja þarf að gluggar opnist og lokist rétt. Séu lamir stífar þarf að skipta þeim út, smyrja eða vinna upp. Sé gluggi of stór í fals þarf að þurrka timbrið í glugganum, koma í veg fyrir frekari rakasöfnun og í einhverjum tilfellum hefla af glugganum. Ef fögin eru illa sprungnir, fúin eða óviðgerðarhæfi þarf að skipta þeim út að hluta eða í heild.
- Athuga þarf málningu: Ef málning er farin að flagna af opnanlegu fagi þarf að skafa alla lausa málningu af, pússa fagið, grunna og mála. Gæta þarf að því að rakastig fagsins sé rétt við málun. Of hátt rakastig getur valdið fúa og síðar myglu.

Mynd: Opnanlegt fag úr furu
Heildarendurnýjun timburglugga
Í sumum tilfellum þarf að endurnýja glugga í heild sinni og skipta þeim út fyrir nýja. Mikilvægt er að viðurkenndur fagmaður annist mælingar, ráðgjöf um val glugga og ísetningu. Rangt val eða óvönduð ísetning getur t.d. þýtt að skekkja sé í glugganum, hann hafi minna hljóðeinangrunargildi, að timbur mygli eða hann leki með tilheyrandi rakaskemmdum.
Við val á nýjum glugga þarf að gæta að því að:
- Glugginn sé CE-merktur.
- Glugginn uppfylli íslensk lög og kröfur. Gluggi skal standast prófunarálag sem er að lágmarki 1100 Pa. Gluggar sem þola ekki 1100 Pa eru ólöglegir í íslensk mannvirki.
- Glugganum þarf að fylgja yfirlýsing um nothæfi (e. Declaration of performance) þar sem eiginleikar hans koma fram. Framleiðandi/söluaðili á að afhenda kaupanda yfirlýsinguna.
- Glugginn hafi verið geymdur og meðhöndlaður með réttum hætti svo eiginleikar hans hafi ekki skerst fyrir uppsetningu. Framangreint gildir einnig um meðferð gluggans á framkvæmdartíma.
Mynd: Timburgluggi sem liggur undir skemmdum
Lokaorð
Viðhald timburglugga er lykilatriði í að tryggja endingu, virkni og heilnæmi mannvirkja. Timbur er náttúrulegt efni sem bregst við raka, hitabreytingum og veðrun, og því krefst það reglulegs eftirlits og viðhalds til að forðast skemmdir á borð við fúa, sprungumyndun og leka.
Samkvæmt byggingarreglugerð ber eigendum að halda byggingarhlutum í þannig ástandi að þeir uppfylli áfram kröfur um öryggi, þéttleika og endingu. Þessi skylda á einnig við um glugga, enda getur vanræksla leitt til aukins varmataps, rakaskemmda og jafnvel myglumyndunar í nærliggjandi byggingarhlutum.
Með skipulögðu og reglubundnu viðhaldi, svo sem málun, endurnýjun þéttinga og viðgerð skemmda, má lengja líftíma timburglugga verulega og draga úr kostnaði við umfangsmeiri endurbætur síðar. Auk þess stuðlar gott viðhald að bættri orkunýtingu, auknu notagildi og betra innilofti.