Pöntun, afhending og móttaka steypu

Burðarbiti - Hagnýtar leiðbeiningar í mannvirkjagerð

Pöntun, afhending og móttaka steypu

- Burðarbiti - Hagnýtar leiðbeiningar í mannvirkjagerð
Pöntun, afhending og móttaka steypu

Burðarbiti - Hagnýtar leiðbeiningar í mannvirkjagerð

Pöntun, afhending og móttaka steypu

- Burðarbiti - Hagnýtar leiðbeiningar í mannvirkjagerð

Yfirlit

Pönt­un, af­hend­ing og mót­taka steypu

Tilgangur þessara hagnýtu leiðbeininga er að tryggja að pöntun, afhending og móttaka steypu fari fram með skipulögðum hætti, þannig að rétt steypa (rétt blanda og eiginleikar) berist á réttan stað, niðurlögn geti farið fram án óþarfa tafa og rekjanleiki og skjölun séu fullnægjandi.

Leiðbeiningarnar ná til undirbúnings, pöntunar, afhendingar og móttöku steypu á verkstað. Leiðbeiningar skulu notaðar samhliða hönnunargögnum og framkvæmdarskilmálum verks.

Ef misræmi er milli þessa leiðbeininga og verkefnisskilmála/staðla, gilda verkefnisskilmálar/staðlar.

Mynd: Steypugerðir eru fjölmargar, pöntun steypu þarf að vera í samræmi við hönnunargögn og framkvæmdarskilmála verks

Ábyrgð og hlut­verk

Áður en steinsteypa er pöntuð og móttekin þarf að huga vel að skipulagi verksins, þar með talið ábyrgð og hlutverkum allra sem koma að framkvæmdinni. Steinsteypa er að mörgu leyti óvenjuleg vara; hún er flutt á verkstað fullblönduð og óhörðnuð, en við niðurlögn hefst herðingarferlið strax og steypan tekur á sig það form sem henni er ætlað. Þar af leiðandi skiptir miklu máli, hvað varðar lokaniðustöðuna, að skiplag sé gott og niðurlögnin gangi sem best.

Því skiptir miklu máli að velja rétta steypugerð, tryggja afhendingu á réttum tíma og leggja steypuna með réttum hætti við viðeigandi aðstæður, svo sem með tilliti til hitastigs, raka og annarra umhverfisþátta.

Til að verklagið virki í framkvæmd þarf að vera skýrt hver ber ábyrgð á hverju skrefi, hver tekur ákvarðanir ef frávik koma upp og hver á að hafa samskipti við framleiðanda. Eftirfarandi hlutverk eru lágmarksrammi sem skal laga að skipulagi hvers verks.

  • Verkstjóri: tryggir að kröfur verks liggi fyrir, pantanir séu réttar, verkstaður sé tilbúinn og að tekið sé við steypu samkvæmt þessu verklagi.
  • Móttökuaðili (tilnefndur): yfirfer afhendingargögn, framkvæmir sjónræna athugun við losun og tryggir að mælingar/sýnataka fari fram samkvæmt verklýsingu sé farið fram á það.
  • Ákvörðunaraðili (samþykkt/höfnun): hefur heimild til að samþykkja, stöðva eða hafna steypu þegar frávik koma upp (samkvæmt skipulagi verks).
  • Framleiðandi: staðfestir pöntun, afhendir steypu með rekjanlegum afhendingargögnum og veitir leiðbeiningar/staðfestingu þegar frávik koma upp.
  • Framkvæmdaraðilar: þeir aðilar sem leggja steypuna í það mót sem henni er ætlað að harðna í.

Skrán­ing­ar og skjöl

Til að tryggja rekjanleika, gæðastjórnun og skýra ábyrgð þarf að skrá helstu upplýsingar um pöntun og móttöku.

Eftirfarandi gögn og skráningar skulu liggja fyrir og vera aðgengileg með öðrum verk- og gæðagögnum, þannig að auðvelt sé að sannreyna hvað var pantað, hvað var afhent og hvaða ákvörðun var tekin ef frávik koma upp.

  • Pöntun/staðfesting pöntunar (birtar kröfur: blanda, þjálni/vinnanleiki, magn, upphafstími, afhendingarbil og niðurlagnaraðferð).
  • Tengiliðalisti og heimildir (hver pantar/samþykkir/hafnar, hvenær er pantað, hvaða fyrirtæki útvegar steypu, hver má heimila breytingar á steypu).
  • Afhendingargögn/afhendingarseðlar (rekjanleiki: bíl nr., lota/blöndunarnúmer, magn og tímar).
  • Skráning mælinga og sýnatöku, ef krafist er (t.d. þjálni, hitastig, loftmagn, prufur).
  • Frávikaskráning og ákvörðun (samþykkt/höfnun og aðgerðir).

Verk­lags­lýs­ing (tíma­röð)

Hér er verklaginu lýst í tímaröð, frá pöntun og undirbúningi til móttöku og meðhöndlunar frávika. Markmiðið er að hvert skref sé framkvæmanlegt á verkstað, með skýrum eftirlitspunktum sem draga úr töfum og minnka líkur á rangri steypu eða gæðavandamálum.

Pönt­un steypu

Forsenda þess að panta steypu er að þekkja þær kröfur sem liggja tilgreindar eru í hönnunargögnum. Grunnatriði að vita hvaða steypugerð á að panta, í hvaða magni og við hvaða aðstæður steypan verður afhent. Einnig þarf að vera ljóst hver á verkstað stýrir verkinu og hefur heimild til að gera breytingar, fresta eða aflýsa afhendingu.

Panta þarf:

  • Rétta steypugerð samkvæmt hönnun og verklýsingu.
  • Steypu með nauðsynlega þjálni/vinnanleika fyrir niðurlögn og þjöppun.
  • Steypu sem býr að þeim áreisflokki sem tekur mið af því umhverfi og álagi sem byggingarhlutinn mun verða fyrir.
  • Afhendingarmáta sem tekur mið af því hvort steypa verði lögð úr rennu, dælt eða færð með öðrum hætti.
  • Útreiknað magn. Einnig þarf að skilgreina upphafstíma afhendingar, afhendingarbil og niðurlagnarhraða svo vinna gangi samfellt.

Mynd: Steypa getur innihaldið mismunandi efni, velja þarf rétta steypu fyrir rétt verk

Und­ir­bún­ing­ur á verk­stað (áður en fyrsti bíll kem­ur)

Á verkstað þarf allt að vera tilbúið áður en steypubíll kemur. Ef aðkoma er erfið, búnaður ekki klár eða mannskapur ekki tilbúinn, skapast tafir sem geta haft áhrif á gæði steypunnar og þar með lokaútkomuna. Áður en fyrsti bíll kemur þarf að vera skýrt hver tekur á móti steypunni, yfirfer afhendingargögn og hefur heimild til að samþykkja eða stöðva móttöku.

Skýr hlutverkaskipting á verkstað skiptir miklu máli.

Fyr­ir af­hend­ingu þarf að huga að eft­ir­far­andi at­rið­um:

  • Ljóst er hver á verkstað ber ábyrgð á verkinu.
  • Aðkoma fyrir steypu- og dælubíla er greið og örugg.
  • Nægur mannskapur og réttur búnaður er til staðar áður en fyrsti bíll kemur og á meðan niðurlögn stendur.
  • Skýrt skipulag liggur fyrir varðandi móttöku, niðurlögn, sýnatöku og skolun. Allir sem vinna að niðurlögninni þekkja skipulagið og eru klárir á því hlutverki sem þeim er ætlað að sinna.
  • Sé steypu dælt þarf að staðfesta dælu, afstöðu hennar og slangna og að verkstaður sé öruggur.

Mynd: Aðkoma fyrir steypu- og dælubíla þarf að vera greið og örugg

Mót­taka steypu (við komu steypu­bíls)

Við móttöku þarf skilgreindur móttökuaðili (starfsmaður á verkstað) að fara strax yfir gögnin og athuga hvort steypan sé rétt. Rétt steypa er sú steypa sem sannanlega (með gögnum) sé sú sem var pöntuð. Það er ekki nóg að treysta á að „þetta sé líklega rétt“.

Móttakan þarf að vera markviss og áreiðanleg. Röng steypa getur haft áhrif á þær grunnkröfur sem gerðar eru til mannvirkja samkvæmt lögum (sjá viðauki I, lög um byggingarvörur). Nægir að nefna kröfur um burðarþol og öryggi sem dæmi.

Mót­töku­skref

Skilgreindur móttökuaðili á verkstað þarf að:

  • Fara yfir afhendingargögn strax við komu.
  • Staðfesta rekjanleika (t.d. bíl nr./lota/blöndunarnúmer) og vista afhendingarseðil með öðrum gögnum verks.
  • Staðfesta að rétt blanda, styrkur, þjálni, magn og önnur lykilatriði passi við pöntun.
  • Athuga hvort afhendingar-/flutningstími sé innan marka samkvæmt verklýsingu/staðli og leiðbeiningum framleiðanda (hámarkstími getur verið breytilegur eftir aðstæðum, t.d. veðri, íblöndunarefnum og kröfum verks) en algengt er að miða við að steypa sé ekki eldri en 2 klst.
  • Athuga sjónrænt við losun hvort steypan sé jafnblönduð og án aðskilnaðar.
  • tryggja að móttaka og niðurlögn fari fram án óþarfa tafa.
  • Mæla og skrá hitastig steypu ef krafist er í verklýsingu (sérstaklega í köldu veðri) og tryggja að aðstæður styðji eðlilega hörðnun. Viðmiðunarmörk skulu vera samkvæmt verklýsingu/verkskilmálum. Ekki undir 10 og ekki yfir 30 gráðum eru oft viðmið.
  • Frávik við móttöku (stöðva–tilkynna–skrá–ákvörðun)

Ef röng blanda eða eitthvað annað er athugavert við steypu skal stöðva móttöku/niðurlögn og tilkynna viðeigandi aðilum. Frávikið skal skráð og ekki á að leggja steypuna niður.

Hafa samband við framleiðanda og fá staðfestingu á næstu skrefum (t.d. skipti á steypu/nýja afhendingu) eftir því sem við á.

Mynd: Móttökuskref steinsteypu

Stjórn­un breyt­inga

Ekki má bæta vatni eða íblendiefnum í steypu á verkstað nema það sé sérstaklega heimilað af hönnuði eða steypuframleiðanda, stýrt og skjalfest. Slíkar breytingar þarf að skrá á afhendingargögn og blanda steypuna aftur samkvæmt reglum ef við á. Vatnsbæting getur sem dæmi haft neikvæð áhrif á styrk, endingu og sprunguhættu.

Mynd: Of mikið vatn getur gert fullblandaða óharðnaða steinsteypu ónothæfa (hliðarmynd)

Sam­skipti við nið­ur­lögn

Mikilvægt er að sá sem stýrir niðurlögn (við endann á dælunni eða krana) noti skýr handmerki til að stjórna bílstjóra eða dælumanni. Notkun talstöðvar er einnig góður kostur. Mikilvægt er að tryggja að talstöðvarnar séu fullhlaðnar við upphaf verks og að tiltækar séu talstöðvar til vara.

Mynd: Huga þarf að samskiptaleiðum allra aðila því oft sjá stjórnendur t.d. dælu- og steypubíls ekki hvor annann

Áhætta og mis­tök

Mistök í steypupöntun geta átt sér stað en afleiðingarnar geta verið kostnaðarsamar og erfitt er að leiðrétta þau ef steypan er komin niður. Þar af leiðandi er mikilvægt að skipuleggja ferlið með góðum fyrirvara og halda sig við skipulagið.

Til að minnka líkur á mistökum þarf að koma í veg fyrir eftirfarandi atriði:

  • Óskýr pöntun → röng steypugerð eða röng þjálni.
  • Óskýr verkaskipting → tafir, óreiða og hætta á mistökum í niðurlögn.
  • Of hæg eða illa skipulögð afhending → tafir, stífari steypa og hætta á köldum steypuskilum.
  • Vatni eða íblendiefnum bætt í steypu eftir á → minni styrkur og lakari ending.
  • Lélegt aðgengi eða óskipulagt bílaflæði → öryggisáhætta og truflun á niðurlögn.
  • Móttaka án yfirferðar á gögnum → hætta á að röng blanda fari í rangt mannvirki.

Mynd: Koma þarf í veg fyrir mistök og sóun verðmæta, t.d. með því að panta rétt magn af steypu

Loka­orð

Meginreglan við pöntun, afhendingu og móttöku steypu er einföld: skýr pöntun, rétt tímasett afhending, skipulögð móttaka og engar óstýrðar breytingar á steypunni á verkstað.

Þannig minnkar hætta á töfum, mistökum og gæðavandamálum síðar í verkinu.

Við­auki I: Gát­listi

Neðangreindum gátlista er ætlað að auðvelda framkvæmd verklagsins á vettvangi. Listinn er hugsaður sem stuðningur við undirbúning og móttöku, og hjálpa til við að tryggja að helstu atriði (kröfur, gögn, mælingar og heimildir) gleymist ekki, t.d. þegar álag og tímapressa er mikil.

Eftirfarandi gátlista má nálgast sem útprentanlegt viðhengi efst á vefsíðunni.

Pönt­un og und­ir­bún­ing­ur

  • Steypugerð/blanda: heiti blöndu eða tilvísun í hönnun/verklýsingu (t.d. styrkflokkur og áreitisflokkur).
  • Vinnanleiki/þjálni: tilgreina markgildi og niðurlagnaraðferð (renna/dæling o.s.frv.).
  • Stærð og eiginleikar fylliefna: hámarks kornastærð og sérkröfur ef við á (t.d. trefjar, litarefni, sjálfþéttandi steypa).
  • Sérkröfur: loftinnihald, hitatakmörk, yfirborðskröfur, sprungu-/rýrnunarviðmið eða önnur atriði samkvæmt verklýsingu.
  • Magn og tímasetningar: heildarmagn, upphafstími, afhendingarbil og áætlaður niðurlagnarhraði.
  • Samskipti og heimildir: hver má breyta pöntun, fresta eða stöðva móttöku; tengiliðir (verkstjóri/eftirlit/framleiðandi) ef við á.

Mót­taka steypu (við komu bíls)

  • Staðfesta afhendingarseðil: blanda, styrkur/styrkflokkur, áreitisflokkur, íblöndunarefni, hámarks kornastærð, magn og tímasetningar.
  • Tími: kanna að afhendingar-/flutningstími sé innan marka samkvæmt kröfum/verklýsingu.
  • Sjónræn athugun: einsleitni, aðskilnaður, óeðlileg vatnsskil eða kekkjun við losun/niðurlaggningu.
  • Mælingar/sýnataka: framkvæma og skrá prófanir sem krafist er (t.d. þjálni, hitastig, loftmagn) og taka prufur samkvæmt verklýsingu.
  • Stjórnun breytinga: engin vatns- eða íblöndunarbæting nema hún sé heimiluð af réttum aðila og skráð á afhendingargögn.
  • Ábyrgð: skýrt hver samþykkir/hafnar og hver stýrir niðurlögn (renna/dæluslanga) með skýrum samskiptum.

Ef frá­vik grein­ast (röng blanda/óeðli­leg steypa)

  • Stöðva: stöðva losun/niðurlögn strax (eða halda bílnum í bið ef ekki er byrjað).
  • Tilkynna: láta viðeigandi aðila vita (verkstjóra/eftirlit og framleiðanda) og óska eftir staðfestingu.
  • Skrá: skrá hvað sást/mældist (þjálni, hitastig o.s.frv.), tímasetningar og ákvörðun á afhendingargögn eða frávikaskrá.
  • Ákvörðun: samþykkja/hafna aðeins eftir fyrirfram skilgreindum heimildum; ef hafnað er skal samræma endurflutning/förgun og nýja afhendingu.

Heim­ild­ir og mynd­ir

  • Gústaf Adolf Hermannsson, Jökull Ástþór Ragnarsson og Jörundur R. Blöndal. (2025, 30. desember). Rb-blað: Niðurlögn og aðhlúun steinsteypu-verklag við framkvæmdir. https://hms-web.cdn.prismic.io/hms-web/aVJVt3NYClf9oq6b_99-251230-Ni%C3%B0url%C3%B6gnoga%C3%B0hl%C3%BAunsteypu.pdf
  • Staðlaráð Íslands (2026). Framkvæmdir við steypt mannvirki (ÍST EN 13670). Staðlaráð Íslands.
  • Staðlaráð Íslands (2026). Steinsteypa – Tæknilýsing, eiginleikar, framleiðsla og samræmi (ÍST EN 206). Staðlaráð Íslands.
  • Ljósmyndir: Eyþór Bjarki Sigurbjörnsson (2024-2026)
  • Ábyrgðarmenn: Eyþór Bjarki Sigurbjörnsson, Jökull Ástþór Ragnarsson