Niðurlagning (víbrun) steinsteypu
Niðurlagning steinsteypu, þ.e. þegar fullblönduð óhörnuð steypa er sett í mót eða á flöt (plötu), er vandasamt ferli. Sem dæmi þarf að tryggja að steypan dreifst jafnt um mótið eða plötuna ásamt því að hún fylli mótið rétt. Í flestum tilfellum þarf einnig að þétta óharnaða steypuna til að tryggja styrk og gæði.
Ýmsar leiðir eru færar til að ná framangreindum markmiðum. Algengasta leiðin er að nota verkfæri sem kallast víbrator. Víbrator má líkja við eyrnapinna með mótor. Mótor (rafmagns- eða bensínknúinn) er tengdur við lokaða slöngu. Á enda slöngunnar er kólfur sem titrar þegar mótorinn fer í gang. Kólfurinn og slangan (við niðurlögn t.d. í veggmót) eru látin síga í steypuna og við það myndast titringur í steypunni sem hefur æskileg áhrif á útlit, styrk og endingu steypunnar. Víbratorinn er færður um mótið með ákveðnu millibili og þannig aukast líkur á að steypan t.d. dreifist jafnt um steypumótið.
Hugtakið víbrun (titra) er leitt af orðinu víbrator. Það að víbra stendur fyrir athöfnina að setja víbrator í fullblandaða óharðnaða steinsteypu.
Víbrun steypu í mótum og plötum
Víbrun steinsteypu er framkvæmd til að þétta steypuna, reka út innilokað loft og tryggja að steypan fylli mót, horn, kanta og svæði kringum bendistál/kambstál og aðra innbyggða hluti. Góð víbrun dregur úr hættu á loftbólum, holrýmum, steypuhreiðrum, lagskilum og veiku yfirborði í steypunni og hjálpar steypunni að ná þeim styrk og þeirri endingu sem ætlast er til.
Undirbúningur fyrir víbrun
Áður en víbrun hefst þarf að tryggja að réttur búnaður sé tilbúinn og að hann virki, að verkaskipting milli aðila sé skýr og að steypan verði lögð niður án tafa. Rétt víbrun næst aðeins ef steypan er lögð í hæfilegum lögum og víbrator kemst að öllum svæðum sem þarf að þétta.
Mikilvæg atriði fyrir víbrun:
- Hafa réttan titrara/víbrator tilbúinn og í lagi.
- Við niðurlagn platna getur einnig þurft víbruslá eða yfirborðsvíbrator.
- Hafa skóflu tiltæka til að færa steypu lítillega, ekki er ráðlegt að nota víbrator til þess.
- Ef rafmang er aflgjafinn þarf að ganga úr skugga um að rafmagn (aflgjafi) fyrir víbrator sé aðgengilegt (t.d. lekalið/rofi, heil kapaltenging og örugg staðsetning í bleytu).
- Ef bensín er aflgjafinn þarf að ganga úr skugga um nægt bensín sé á tanki vélarinnar og að bensín til að ljúka niðurlögninni sé tiltækt.
- Vera með réttan hlífðarbúnað. Sem dæmi hjálm, hanska, stígvél eða skó með stáltá, öryggisgleraugu og heyrnarvörn (og eftir aðstæðum: endurskinsvesti og rykgrímu sé unnið með sement eða önnur efni sem geta borist í lungun).
Víbrun í mótum
Við víbrun í steypumótum þarf að vinna skipulega þannig að steypan þéttist vel og fylli mótið alveg, sérstaklega við horn, kanta og kringum bendistál/kambstálc. Best er að víbra jafnóðum og steypan er lögð niður, í jöfnum lögum og án tafa. Víbratorinn á að fara beint niður á nokkrum stöðum í röð. Ekki á að nota víbratorinn til að ýta steypunni til hliðar.
Lög og lagþykkt
Steypa skal í lögum þannig að víbratorinn nái að þétta alla dýptina. Forðast skal of þykk lög sem víbrunin nær ekki í gegnum (sérstaklega í þéttum járnum). Markmiðið er að víbratorinn nái niður í fyrra lag til að tryggja tengingu milli laga.
Mynd: Steinsteypa á að vera lögð í jöfnum lögum og með þykkt sem passar við kraft víbratorsins (yfirleitt milli 250-400 mm)
Helstu atriði
- Stinga skal víbratornum niður lóðrétt eða sem næst því.
- Vibra skal með reglulegu millibili þannig að víbrunarsvæðin skarist. Sem viðmið er millibil oft um 0,5–1,0 m, en það ræðst af steypu (niðursigi), þvermáli víbruhöfuðs, járnaþéttleika og aðgengi. Mikilvægast er að víbrunarsvæðin skarist. Í sjónsteypu þarf þéttara millibil, um 0,3–0,5 m.
- Halda skal víbratornum kyrrum þar til loftbólur hætta að koma upp og steypan sekkur/jafnast. Tími er breytilegur (oft nokkrar sekúndur en lengri tími í stífari steypu). Forðast skal of langa víbrun. Of löng víbrun getur valdið aðskilnaði hluta þeirra efna sem eiga að mynda steypuna.
- Draga skal víbratorinn rólega upp þannig að holrýmið sem hann skilur eftir sig lokist á eftir og loft nái að sleppa (t.d. er nokkrir sentimetrar á sekúndu gott viðmið).
- Víbratorinn á að fara 10–15 cm niður í fyrra lag til að tryggja tengingu milli laga.
- Vanda þarf sérstaklega víbrun við horn, kanta, stoppenda og kringum bendistál/kambstál/steypustyrktarstál.
- Ekki má nota víbratorinn til að færa steypuna lárétt í mótinu.
- Sjálfþéttandi steypa (SCC/flot) er almennt ekki víbruð. Fylgja skal verklýsingu/leiðbeiningum framleiðanda um meðhöndlun í hvívetna (t.d. mótavinnu og yfirborðsvinnu) til að forðast aðskilnað og loftgalla.

Mynd: Víbrun steypu í steypumóti.
Víbrun í plötu
Við víbrun í plötum þarf að velja aðferð eftir þykkt plötunnar og tryggja að steypan þéttist alla leið og alls staðar. Markmiðið er að ná góðri fyllingu, jöfnu yfirborði og forðast holrými, sérstaklega við kanta og steypuskil.
Mynd: Víbrun í plötu (hvíldarpallur)
Helstu atriði við víbrun á plötu
- Nota má víbruslá eða yfirborðsvíbrator í plötum sem eru undir 200 mm að þykkt.
- Í þykkari plötum þarf að nota stunguvíbrator til að þétta steypuna niður á fulla dýpt. Síðan má nota víbruslá til að jafna og þétta yfirborðið.
- Í plötum sem er á bilinu 150–200 mm að þykkt getur þurft viðbótarstunguvíbrun.
- Vanda þarf sérstaklega víbrun meðfram köntum og við steypuskil.
- Ekki má treysta á yfirborðsvíbrun eina og sér þar sem hún nær ekki nægilega djúpt.
Rétt víbrun í plötum skilar þéttari steypu og betra yfirborði. Ef víbrun er ófullnægjandi, sérstaklega við kanta og samskeyti, eykst hætta á holrýmum og veikum svæðum.
Sérstaklega um steypuskil og samskeyti
Við steypuskil þarf að tryggja góða tengingu milli steypuhluta. Víbra skal þannig að steypan lokist vel að fyrra lagi/jaðri án þess að ofvíbra skilin. Ef steypa er farin að taka sig (byrjuð að harðna) skal fara eftir verklýsingu um meðhöndlun/undirbúning steypuskila.
Mynd: Unnið með rörasladdara að jöfnun yfirborðs steypu
Hvenær er víbrun búin?
Víbrun er yfirleitt næg þegar steypan sest, yfirborð jafnast og loftbólur hætta að stíga upp. Hætta á ofvíbrun eykst í mjög mjúkri steypu og við langa víbrun á sama stað. Framangreint getur valdið aðskilnaði (gróft efni sígur en sementsefjan/fínt efni færist upp) og aukinni blæðingu.
Forðast skal að slá óþarflega í mót eða bendistál/kambstál/steypustyrktarstál með víbrator.
Algeng mistök við víbrun (og afleiðingar)
Algeng mistök við víbrun valda annaðhvort ófullnægjandi þéttingu (loft og holrými sitja eftir) eða því að steypan ofvinnist (aðskilnaður efna og yfirborðsgallar).
Helstu mistök sem þarf að varast og afleiðingar þeirra:
- Of lítil víbrun. Meðal hugsanlegra afleiðinga eru holrými, loftbólur, steypuhreiður og léleg fylling, sérstaklega í kringum bendistál/kambstál/steypustyrktarstál og í hornum.
- Of mikil víbrun/víbrun of lengi á sama stað. Meðal hugsanlegra afleiðinga eru aðskilnaður efna (gróft efni sígur, sementsefja/fínt efni færist upp), aukin blæðing og hætta á veiku/yfirborðskenndu lagi.
- Of langt er á milli stungna (víbrunarsvæði skarast ekki). Meðal hugsanlegra afleiðinga eru ójöfn þjöppun og steypuhreiður á milli „punkta“.
- Víbrun er í of þykkum lögum (víbratorinn nær ekki í gegnum alla dýptina). Meðal hugsanlegra afleiðinga eru að loft lokast inni og neðri svæðin verða óþjöppuð.
- Víbratorinn fer ekki niður í fyrra lag/of lítil skörun milli laga. Meðal hugsanlegra afleiðinga eru lagskil (köld skil) og veik tenging milli steypulaga.
- Víbratorinn er dreginn of hratt upp. Meðal hugsanlegra afleiðinga eru holrými og „rásir“ í steypunni þar sem holið lokast ekki nægilega.
- Víbratorinn er dreginn í gegnum steypuna í stað þess að stinga niður á réttum stöðum. Meðal hugsanlegra afleiðinga eru myndun veikra rása (s.s. sementsefju/múrra) og ójafn þéttleiki.
- Rangt notkunarmynstur. Víbratorinn er notaður til að færa steypu lárétt. Meðal hugsanlegra afleiðinga eru aðskilnaður og ójöfn fylling. Steypu á að moka eða leiða á sinn stað.
- Óþarfa snerting við mót eða bendistál/kambstál/steypustyrktarstál. Meðal hugsanlegra afleiðinga eru skemmdir/tilfærsla á járnum og óæskilegir yfirborðsgallar í sjónsteypu.
Helstu verkfæri og búnaður
Helstu verkfæri og búnaður sem þarf við víbrun eru:
- Víbrator fyrir mót og plötur.
Mynd: Rafmagnsknúinn víbrator
- Rörasladdari til að slétta niðurlagða steypu í plötu.
Mynd: Rörasladdari
- Glattari til að gera yfirborð steypunnar slétt og sterkt.
Mynd: Glattari
- Yfirborðsvíbrator eða víbruslá fyrir plötur og flata fleti.
- Mótavíbrator (ytri víbrator/formvíbrator) sem festur er á mót til að þétta steypu í mótum, t.d. þar sem aðgengi er erfitt eða járnabinding er þétt.
- Skófla til að færa steypu lítillega á sinn stað, ef þarf og moka upp því sem fer framhjá
- Viðeigandi hlífðarbúnaður, svo sem hanskar, heyrnarvörn og hlífðarskór.
Þrífa skal víbratora, slár og önnur verkfæri strax eftir notkun með vatni svo steypa harðni ekki á búnaðinum og hann sé tilbúninn fyrir næstu notkun. Sama gildir varðandi hlífðarbúnað.
Lokaorð
Rétt víbrun er lykill að þéttri og endingargóðri steypu. Vinna skal skipulega og beita réttu verklagi. Góð vinnubrögð við víbrun draga úr byggingargöllum og bæta endingu og útlit steypunnar.