19. nóvember 2026
Mánaðarskýrsla HMS nóvember 2026
Skoða skýrslu
Forsamráð er vettvangur HMS, framkvæmdaraðila, sveitarstjórnar og annarra leyfisveitenda til að ræða og undirbúa fyrirhugað umhverfismatsferli framkvæmdar og leyfisveitingar í kjölfarið.
Markmið með forsamráði eru:
Fjallað er um forsamráð í 8. gr. laga nr. 111/2021 um umhverfismat framkvæmda og áætlana.
HMS, framkvæmdaraðili eða leyfisveitandi geta átt frumkvæði að forsamráði. Þar sem HMS er oft ekki kunnugt um framkvæmdaáform fyrr en framkvæmdaraðili leggur fram matsáætlun, er mikilvægt að framkvæmdaraðilar og leyfisveitendur, þar sem það á við, séu meðvitaðir um möguleikann á forsamráði og hafi tímanlega samband við HMS ef þeir telja ástæðu til að fara í forsamráð. HMS getur þá, í samráði við framkvæmdaraðila og leyfisveitendur, metið hvort tilefni sé t il að boða til forsamráðs.
Forsamráð krefst undirbúnings og vinnu, auk þess sem margir aðilar geta verið kallaðir að borðinu. Kostnaður vegna forsamráðs getur því verið nokkur og þess vegna er ástæða til að horfa til mögulegs ávinnings þegar tekin er afstaða til þess hvort fara eigi í forsamráð eða ekki. Forsamráð ætti alltaf að fara fram þegar fyrirhugað er eða vilji er til staðar til að skoða möguleika á sameiningu skýrslugerðar og kynningar vegna umhverfismats framkvæmdar og umhverfismats áætlunar. Eftirfarandi þættir geta gefið tilefni til forsamráðs:
Eftirfarandi atriði geta bent til þess að ekki sé tilefni fyrir forsamráð:
Árangur af forsamráði er ekki síst háður þeim upplýsingum sem framkvæmdaraðili leggur fram við forsamráð. Góður undirbúningur framkvæmdaraðila felst m.a. í því að bera kennsl á helstu áhrifaþætti framkvæmdar og umhverfisþætti eða svæði sem kunna að vera sérstaklega viðkvæm fyrir framkvæmdinni. Umræður um framangreint geta komið í veg fyrir tafir og aukinn kostnað síðar meir og geta t.a.m. dregið úr líkum á að þörf verði á að skoða frekari valkosti síðar í ferlinu þegar hönnun er lengra komin.
Áður en tímasetning fundar er ákveðin ætti sá aðili sem á frumkvæði að forsamráði, ásamt öðrum aðilum ef við á, að taka saman stutta lýsingu á ástæðum forsamráðs og þeim atriðum sem þarf að ræða. Slíkt getur afmarkað dagskrá forsamráðsfundar og stuðlað að markvissara og árangursríkara forsamráði.
Við undirbúning forsamráðs getur komið í ljós að ástæða sé til að óska eftir þátttöku annarra aðila sem fara ekki með leyfisveitingar en kunna engu að síður að hafa mikilvægu hlutverki að gegna í sambandi við framkvæmdina. Til að mynda þar sem útfærsla á ákveðnum framkvæmdaþáttum krefst samráðs við tiltekna opinbera aðila.
Umfang forsamráðs fer eftir atvikum hverju sinni. Í sumum tilfellum er um að ræða einn fund en í öðrum tilfellum getur verið þörf á fleiri fundum og frekari samskiptum. HMS boðar að jafnaði til fundar og sendir dagskrá fundar til þátttakenda. Að loknum fundi sendir HMS þátttakendum fundargerð til samþykkis sem svo er birt í Skipulagsgátt.
Heimilt er að samþætta skýrslugerð og kynningu vegna umhverfismats framkvæmda og skýrslugerð og kynningu vegna umhverfismats skipulagstillagna.
Helsti kostur samþættingar er aukinn skýrleiki fyrir almenning og aðra hagsmunaaðila sem geta kynnt sér upplýsingar um framkvæmd og umhverfismat hennar á sama stað og á sama tíma og upplýsingar um skipulagsáform. Gefst viðkomandi þá tækifæri á að koma á framfæri athugasemdum og ábendingum til skipulagsyfirvalda, framkvæmdaraðila og HMS samtímis. skipulagslögum og lög um um umhverfismat framkvæmda og áætlana
Samþætting getur átt við þegar framkvæmd sem fellur undir lög nr. 111/2021 er meginefni þeirrar skipulagstillögu sem á í hlut. Til að mynda þegar þörf er á að breyta aðalskipulagi vegna tiltekinnar framkvæmdar eða vinna á deiliskipulag sem nær einungis til framkvæmdarinnar.
Hafa ber í huga að aðalskipulag er stefna sveitarstjórnar um landnotkun, byggðaþróun, byggðamynstur, samgöngu- og þjónustukerfi og umhverfismál í sveitarfélaginu. Deiliskipulag er svo nánari útfærsla á þeirri stefnu sveitarstjórnar sem mörkuð er í aðalskipulagi. Með hliðsjón af eðli þeirra framkvæmda sem þurfa að undirgangast umhverfismat kann í vissum tilvikum að vera tilefni fyrir sveitarstjórnir að bíða með að hefja undirbúning þess að marka stefnu um tiltekna framkvæmd þar til umhverfismati er lokið.
Einnig ber að hafa í huga að samþætting krefst samhæfingar og aðlögunar tiltekinna skrefa í málsmeðferð skipulags og umhverfismats framkvæmdar. Það þýðir að þegar tilteknum áfanga er náð í öðru ferlinu þarf að bíða eftir að sambærilegum áfanga er náð í hinu ferlinu. Til að mynda getur þurft að bíða með auglýsingu og kynningu matsáætlunar þar til skipulagslýsing hefur verið samþykkt til kynningar á sveitarstjórnarfundi. Því er samþætting almennt ekki líkleg til að leiða til þess að umhverfismat framkvæmdar taki styttri tíma en þegar umhverfismat fer fram án samþættingar. Tekin er afstaða til mögulegrar samþættingar á forsamráðsfundi. Mikilvægt er að framkvæmdaraðili tilkynni það fyrir fram hafi hann áhuga á slíku. Sé ákveðið að fara í samþættingu er á sama forsamráðsfundi sett fram tímaáætlun um tiltekin skref í umhverfismatsferli og skipulagsferli.
Þegar skýrslugerð er sameinuð veitir sveitarstjórn framkvæmdaraðila heimild til að vinna að umhverfismati skipulagstillögunnar. Framkvæmdaraðili útbýr eina skýrslu sem er í senn matsáætlun vegna umhverfismats framkvæmdar og matslýsing vegna umhverfismats skipulagsáætlunar. Svo er unnin ein skýrsla sem er í senn umhverfismatsskýrsla framkvæmdar og umhverfismatsskýrsla áætlunar.
Sveitarstjórn kynnir skipulagslýsingu eða auglýsir skipulagstillögu í Skipulagsgátt. Á sama tíma kynnir HMS samsvarandi umhverfismatsgögn í Skipulagsgátt, þ.e. matsáætlun og matslýsingu eða umhverfismatsskýrslu framkvæmdar og áætlunar. Við birtingu skipulagsgagna í Skipulagsgátt þarf að taka fram að umhverfismat skipulagstillögu var sameinað umhverfismati framkvæmdar og tilgreina hvar umhverfismatsgögnin eru aðgengileg. Sveitarstjórn þarf að hafa í huga að birta einnig umhverfismatsgögn ef skipulagsgögn eru birt utan Skipulagsgáttar, t.d. ef skipulagsgögn eru birt á vefsíðu sveitarfélags.
Að loknum kynningartíma skipulagstillögu þarf sveitarstjórn að fara með umsagnir sem berast um umhverfismat framkvæmdar og áætlunar á sama hátt og athugasemdir sem berast um skipulagstillögu.
Í þessum kafla matsáætlunar skal veita skýra og heildstæða lýsingu á þeirri framkvæmd sem umhverfismatið tekur til, ásamt þeirri starfsemi sem henni fylgir, bæði á framkvæmdatíma og á rekstrartíma. Lýsingin er undirstaða matsins og á að gera lesendum, þar á meðal HMS og umsagnaraðilum, kleift að átta sig á umfangi, eðli og tilgangi framkvæmdarinnar.
Matsáætlun á að innihalda eftirfarandi upplýsingar um framkvæmd og starfsemi sem henni fylgir:
Koma skal fram:
Gera skal grein fyrir tilgangi framkvæmdarinnar, eðli hennar og umfangi og mögulegri áfangaskiptingu. Lýsa skal þeim helstu þáttum sem framkvæmdin felur í sér, svo sem byggingum, jarðraski, lagnakerfum, vegtengingu, efnistöku, fráveitu eða annars konar verkþáttum. Einnig skal lýsa þeirri starfsemi sem fylgir framkvæmdinni, bæði á framkvæmdatíma og rekstrartíma, þar með talið ef starfsemi felur í sér losun efna, hávaða, lýsingu, flutninga eða notkun auðlinda. Jafnframt skal gera grein fyrir tengdum framkvæmdum.
Nákvæm lýsing á helstu þáttum framkvæmdar og/eða starfsemi í matsáætlun dregur úr líkum á að gerð verði krafa um frekari upplýsingaöflun síðar í ferlinu.
Greina þarf frá matsskyldu framkvæmdar, með vísan til viðeigandi liða í 1. viðauka laga nr. 111/2021.
Koma skal fram hvaða leyfum framkvæmd og starfsemi sem henni fylgir er háð, s.s. framkvæmdaleyfi, byggingarleyfi, rannsóknarleyfi, virkjunarleyfi, starfsleyfi og rekstrarleyfi, og hvort fyrirhugað sé að samþætta málsmeðferð sbr. 9. gr. laga nr. 111/2021.
Leggja þarf fram upplýsingar um hvaða valkostir verða til umfjöllunar í umhverfismatsskýrslu og hvernig valkostaumfjöllun verður háttað (sjá nánar leiðbeiningar um valkosti). Einnig ætti, ef við á, að tilgreina að fjallað verði um núllkost og hvernig það verður gert. Með núllkosti er átt við líklega þróun umhverfisins án þess að framkvæmd verði að veruleika.
Í þessum hluta matsáætlunar skal framkvæmdaraðili lýsa því svæði sem framkvæmdin er fyrirhuguð á, ásamt áhrifasvæði hennar eftir því sem við á. Lýsingin á að gefa yfirsýn yfir eðli, nýtingu og verndargildi svæðisins og vera nægjanlega ítarleg til að unnt sé að leggja mat á viðkvæmni þess fyrir álagi af völdum framkvæmdarinnar eða starfsemi.
Matsáætlun á að innihalda eftirfarandi upplýsingar um framkvæmdasvæði:
Ef fyrirhugaðar eru aðrar framkvæmdir á sama svæði, hvort sem er á vegum viðkomandi framkvæmdaraðila eða annarra, skal greina frá þeim í stuttu máli. Þetta á við hvort sem um er að ræða framkvæmdir sem þegar hafa verið tilkynntar, eru í leyfisferli, í vinnslu samkvæmt skipulagsáætlun eða hafa þegar verið sætt umhverfismati.
Gera skal grein fyrir megineinkennum framkvæmdasvæðisins og næsta nágrennis, þar á meðal landslagi, gróðurfari, dýralífi, vistgerðum og núverandi landnotkun.
Það getur farið betur á að hafa umfjöllun um umhverfisþætti með almennum hætti í þessum kafla og geyma ítarlegri umfjöllun um viðkvæmni og gildi umhverfisþátta þar til síðar í matsáætluninni þar sem fjallað er um hvernig meta á áhrif á viðkomandi umhverfisþætti.
Gera skal grein fyrir verndarsvæðum og öðrum takmörkunum á landnotkun innan framkvæmdasvæðis eða í næsta nágrenni þess. Þetta nær m.a. til friðlýstra svæða, svæða á náttúruminjaskrá, svæða sem falla undir ákvæði 61. gr. laga um náttúruvernd, menningarminja og vatnsverndarsvæða. Jafnframt skal greina frá öðrum kvöðum sem geta varðað framkvæmdasvæðið. Þegar framkvæmdasvæði er staðsett innan eða í nágrenni við verndarsvæði er æskilegt að birta kort sem sýnir legu verndarsvæða m.t.t. framkvæmdasvæðisins.
Í matsáætlun skal birta uppdrátt sem sýnir fyrirhugaða staðsetningu framkvæmdarinnar og helstu framkvæmdaþátta á korti eða loftmynd. Afmarka ætti athugunarsvæði umhverfismatsins og áhrifasvæði framkvæmdarinnar. Uppdráttur skal sýna framkvæmdarsvæði á skýrum kortagrunni með mælikvarða og norðurpílu. Ástæða getur verið til að auðkenna helstu framkvæmdaþætti og/eða áfanga framkvæmdar með skýringum. Einnig þarf að merkja inn á uppdrátt helstu örnefni, sér í lagi þau sem vísað er til í matsáætluninni.
Áhrifasvæði skal skilgreina með hliðsjón af því hvaða umhverfisþættir eru líklegir til að verða fyrir áhrifum, svo sem landslag, gróður, fuglar, hljóðvist, vatnafar, loftgæði eða samfélag. Nauðsynlegt er að gera sér grein fyrir því að áhrifasvæði geta verið ólík eftir tegund áhrifa og framkvæmdaþáttum, t.d. geta sjónræn áhrif náð yfir stærra svæði en áhrif vegna rasks á gróðri. Ekki er ætlast til fullrar afmörkunar á öllum áhrifasvæðum á stigi matsáætlunar, en setja ætti fram fyrstu nálgun að áhrifasvæði sem lögð er til grundvallar við val á þeim umhverfisþáttum sem teknir verða til mats og við val á þeim aðferðum sem notaðar verða. Athugið að í sumum tilvikum getur umhverfismat m.a. falist í því að meta áhrifasvæði framkvæmdar t.d. með líkanreikningum.
Koma skal fram hvaða skipulagsáætlanir gilda fyrir svæðið, s.s. svæðisskipulag ef við á, aðalskipulag, deiliskipulag og strandssvæðaskipulag ef við á. Greina skal frá því hvort framkvæmdin sé í samræmi við gildandi skipulag. Ef framkvæmdin fellur ekki að gildandi skipulagi eða ef skipulagsvinna stendur yfir, skal gera grein fyrir stöðu mála og næstu skrefum í ferli skipulagsbreytinga.
Í þessum hluta matsáætlunar skal framkvæmdaraðili gera grein fyrir því hvernig staðið verður að umhverfismati framkvæmdarinnar. Þar á meðal þarf að tilgreina og afmarka þá umhverfisþætti sem verða teknir til skoðunar og mats, hvers vegna þeir eru valdir, hvernig mat á áhrifum verður framkvæmt og hvaða viðmið, gögn og aðferðir verða notuð.
Í matsáætlun á framkvæmdaraðili að greina hvaða framkvæmdaþættir geta haft áhrif á umhverfið og hvaða umhverfisþættir eru líklegir til að verða fyrir áhrifum.
Á grundvelli þeirrar greiningar setur framkvæmdaraðili fram áætlun um með hvaða hætti hann ætlar að meta líkleg áhrif.
Greina þarf frá því hvaða þættir framkvæmdar og starfsemi, sem henni fylgir, séu líklegir til að valda umhverfisáhrifum og lýsa þeim, s.s. stærð og gerð mannvirkja, framleiðsluferlum, magni og gerð mengunarefna og hljóðstigi frá starfsemi. Ef fyrir liggja upplýsingar um stærðir og magn, t.d. mengunarefna, er mikilvægt að þær séu lagðar fram. Við greininguna þarf að horfa til áhrifa á framkvæmdatíma, rekstrartíma og samlegðaráhrifa með öðrum framkvæmdum.
Gera þarf grein fyrir því hvaða þættir umhverfisins er talið líklegt að geti helst orðið fyrir áhrifum þegar tekið er tillit til allra umhverfisáhrifa framkvæmdarinnar miðað við fyrirliggjandi vitneskju. Eftir atvikum getur t.d. verið tilefni til að fjalla um áhrif á: menn, samfélag, gróður, fuglalíf, jarðmyndanir, landslag og ásýnd, víðerni, vatnafar, vatnalíf og vatnshlot, útivist og ferðamennsku, loftslag, menningarminjar og náttúruvá.
Lýsa þarf hvernig fyrirhugað er að standa að umhverfismati, s.s. um gagnaöflun, rannsóknarsvæði, tímasetningu athugana, tíðni mælinga, úrvinnslu gagna, aðferðir við mat og framsetningu niðurstaðna og leggja fram áætlun um á hvaða þætti framkvæmdar og umhverfis verði lögð áhersla. Gera þarf grein fyrir þeim viðmiðum sem stuðst verður við matið. Ástæða getur verið til að gera greinarmun á þeim áhrifum sem framkvæmdin kann að hafa annars vegar á framkvæmdatíma og hins vegar á rekstrartíma.
Mikilvægt er að í matsáætlun komi skýrt fram hvaða fyrirliggjandi gögn, rannsóknir og athuganir eigi að nota við matið. Þannig sé ljóst hvaða gögn verði lögð fram til að uppfylla þær kröfur sem koma fram í 11. gr. reglugerðar um umhverfismat framkvæmda og áætlana.
Lýsa þarf þeim rannsóknum eða athugunum sem fyrirhugaðar eru vegna matsins. Eftir því sem við á ætti að tilgreina hvar, hvenær og hvernig fyrirhugað er að gera athuganir og hvernig fyrirhugað er að vinna úr gögnum. Í sumum tilfellum nægir að vísa til viðurkenndrar aðferðarfræði og lýsa aðferðum í stuttu máli en í öðrum tilvikum getur verið tilefni til að lýsa aðferðum nánar, t.d. þar sem vikið er frá stöðluðum aðferðum. Gera skal grein fyrir hverjir koma til að vinna að rannsóknum og athugunum.
Skýr lýsing á fyrirhuguðum rannsóknum getur leitt til styttri málsmeðferðartíma og dregur úr líkum á að kallað verði eftir frekari upplýsingum eftir að umhverfismatsskýrsla er lögð fram.
Aðferðir við mat
Gera á grein fyrir hvaða aðferðum verður beitt við að meta umhverfisáhrifin og hvernig fyrirhugað er að setja niðurstöður matsins fram í umhverfismatsskýrslu. Gagnlegt getur verið að leggja fram rannsóknarspurningar sem matinu er ætlað að svara.
Greiningarvinna á matsáætlunarstigi
Í sumum tilvikum getur þurft að ráðast í greiningarvinnu á matsáætlunarstigi. Sem dæmi um slíkt má nefna matsáætlun fyrir vindorkuver þar sem gert er ráð fyrir að notast við líkanmyndir við mat á áhrifum á landslag og ásýnd. Til að hægt sé að taka afstöðu til áformanna þarf í matsáætlun að birta sýnileikakort og staðsetningu fyrirhugaðra myndatökustaða fyrir líkanmyndir, ásamt rökstuðningi fyrir vali á staðsetningu myndatökustaðanna. Jafnframt er æskilegt að framkvæmdaraðili hafi samráð við hagsmunaaðila um val á myndatökustöðum áður en matsáætlunin er lögð fram til HMS og að gerð sé grein fyrir fyrirkomulagi samráðsins og niðurstöðum þess í matsáætluninni, m.a. öllum tillögum að myndatökustöðum.
Í matsáætlun er æskilegt að birta tímaáætlun fyrir helstu verkþætti:
Í matsáætlun þarf að greina í stuttu máli frá kynningu og samráði sem hefur þegar farið fram á vegum framkvæmdaraðila og gefa upplýsingar um efnislega afstöðu þeirra aðila sem hafa tjáð sig um framkvæmdina eða matsáætlun.
Í matsáætlun þurfa einnig að koma fram upplýsingar um áætlaða kynningu, álitsumleitan og samráð meðan á vinnu við mat á umhverfisáhrifum og gerð umhverfismatsskýrslu stendur. Gera ætti grein fyrir því hvernig fyrirhugað er að ná til íbúa og hagsmunaaðila á áhrifasvæði framkvæmdarinnar sem og annarra sem gætu látið sig málið varða.
Lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana tilgreina lágmarkssamráð um matsáætlun og umhverfismatsskýrslu. Oft getur verið gagn af því að ráðast í frekara samráð en það sem lög kveða á um, sér í lagi við gerð matsáætlunar. Samráð við hagsmunaaðila við undirbúning matsáætlunar getur t.d. verið góð leið til að bera kennsl á þætti sem ástæða er til að fjalla um í umhverfismati og getur nýst við að útfæra rannsóknir og stuðla að vönduðu mati á umhverfisáhrifum.