20. maí 2026
20. maí 2026
Vísitala leiguverðs hækkaði um 0,70% í apríl
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Vísitala leiguverðs mældist 128,8 stig í apríl og hækkaði um 0,7 prósent á milli mánaða
- Vísitalan hækkaði um 5,66 prósent milli aprílmánaða 2025 og 2026, á sama tíma og verðbólga mældist 5,2 prósent
- Leiguverð hækkaði um 0,39 prósent að raunvirði undanfarið ár
Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu mældist 128,8 stig í apríl og hækkaði um 0,7 prósent á milli mánaða. Vísitalan hefur hækkað um 5,66 prósent á undanförnum 12 mánuðum, á sama tíma og verðbólga mældist 5,2 prósent og íbúðaverð hækkaði um 2,15 prósent. Leiguverð hefur því hækkað lítillega að raunvirði undanfarna 12 mánuði, eða um 0,39 prósent.
Á meðfylgjandi mynd má sjá mánaðarlega breytingu á vísitölu leiguverðs ásamt gildum hennar síðustu 12 mánuði.
Vísitala leiguverðs byggir á vegnu meðaltali leiguverðs á fermetra hjá hefðbundnum íbúðum í eigu einstaklinga og hagnaðardrifinna leigufélaga. Niðurstöður eru vegnar saman með veltu íbúða með sama herbergjafjölda á síðustu 12 mánuðum. Stuðst er við leigusamninga síðastliðinna tveggja mánaða við útreikning vísitölunnar, svo aprílgildi hennar tekur mið af leigusamningum í mars og apríl.
Dregur úr tólf mánaða hækkun vísitölu leiguverðs
Tólf mánaða taktur vísitölu leiguverðs lækkaði milli mánaða og var 5,66 prósent í apríl en markaðsleiga hækkaði að nafnvirði um 6,32 prósent í mars. Til að tólf mánaða taktur vísitölu leiguverðs haldi áfram að lækka í maí þarf vísitalan að hækka minna en hún gerði milli apríl 2025 og maí 2025 þegar hún hækkaði um 1,15 prósent milli mánaða.
Mælaborð fyrir vísitölur HMS
Mælaborð fyrir vísitölur HMS um íbúða- og leiguverð er aðgengilegt á vef HMS. Þar er hægt að nálgast þróun vísitölu leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu, auk þess er hægt að nálgast eldri og sameinaðar vísitölur leiguverðs. Tilgangur leiguvísitölunnar er að endurspegla þróun á markaðsvirði leigu en vísitalan er ekki ætluð til vísitölubindingar á leigusamningum.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




