16. mars 2026
17. mars 2026
Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 0,09% á milli mánaða í febrúar 2026
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Íbúðaverð hækkaði um 0,09% milli mánaða í febrúar eftir að hafa hækkað um 1,7% í janúar
- Á síðustu 12 mánuðum hefur vísitala íbúðaverðs hækkað um 2,35% að nafnvirði
- Íbúðaverð hefur lækkað um 2,7% að raunvirði undanfarið ár
Vísitala íbúðaverðs mældist 113,1 stig í febrúar og hækkaði því um 0,09% á milli mánaða. Hægt er að nálgast mælaborð fyrir vísitölur HMS um íbúða- og leiguverð með því að smella á hnappinn hér að neðan.
Mælaborð fyrir vísitölur HMS
Undanfarna tólf mánuði hefur vísitalan hækkað um 2,35% að nafnvirði á sama tíma og verðbólga mældist 5,2%. Íbúðaverð hefur því lækkað um 2,7% að raunvirði síðastliðið ár. Íbúðaverð hefur ekki lækkað meira að raunvirði á ársgrundvelli síðan í desember 2023.
Á myndinni hér að neðan má sjá vísitölu íbúðaverðs og mánaðarbreytingu hennar síðustu mánuði.
Líkt og sjá má á töflunni hér að neðan lækkaði undirvísitalan fyrir sérbýli á höfuðborgarsvæðinu í febrúar um 1,75% að nafnvirði, á meðan fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu hækkuðu um 0,63%. Undanfarið ár hafa sérbýli á höfuðborgarsvæðinu þó hækkað mest, eða um 3,11% að nafnvirði, en fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu hafa hækkað minnst, eða um 2,01%.
Vísitala íbúðaverðs fyrir febrúar 2026
| Vísitala | Gildi | Breyting á milli mánaða | 12 mánaða breyting |
|---|---|---|---|
| Íbúðaverð | 113,1 | 0,09% | 2,35% |
| Sérbýli á hbs. | 112,6 | -1,75% | 3,11% |
| Sérbýli á landsbyggð | 116,4 | 1,66% | 2,11% |
| Fjölbýli á hbs. | 111,5 | 0,63% | 2,01% |
| Fjölbýli á landsbyggð | 116,2 | 0,43% | 2,2% |
Undirvísitölur fyrir sérbýli eru mun sveiflukenndari en fyrir fjölbýli
Undirvísitölur íbúðaverðs þróuðust með fjölbreyttum hætti í febrúar. Undirvísitala íbúðaverðs fyrir höfuðborgarsvæðið lækkaði um 0,36% á milli mánaða á meðan undirvísitalan fyrir landsbyggðina hækkaði um 1,39%.
Innan höfuðborgarsvæðisins hækkaði undirvísitalan fyrir fjölbýli um 0,63% á meðan undirvísitalan fyrir sérbýli lækkaði um 1,75% á milli mánaða. Í því samhengi er rétt að hafa í huga að undirvísitölur fyrir sérbýli eru mun sveiflukenndari en fyrir fjölbýli, líkt og sjá má á myndinni hér að neðan. Þetta skýrist að hluta til af því að kaupsamningar um sérbýliseignir eru að jafnaði talsvert færri en um eignir í fjölbýli.
Sé litið yfir lengra tímabil hefur verðþróun á íbúðum í sérbýli og fjölbýli verið áþekkari. Verð á íbúðum í sérbýli á höfuðborgarsvæðinu hefur þó hækkað nokkuð meira en verð á íbúðum í fjölbýli á sama svæði undanfarin misseri. Frá janúar 2024 hefur sérbýli á höfuðborgarsvæðinu hækkað um 12,6% í verði á sama tíma og fjölbýli hefur hækkað um 11,5% í verði.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




