22. júní 2026

Umhverfismat í maímánuði

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Í maímánuði voru gefin út níu álit eða ákvarðanir á grundvelli laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana.
  • Þar af voru fjögur álit um umhverfismat, tvö álit um matsáætlun og þrjár ákvarðanir um matsskyldu framkvæmdar.
  • Um er að ræða fjölbreyttar framkvæmdir, svo sem efnistöku, endurvinnslustöð, hænsnabú, skógrækt, vegagerð, fiskeldisstöð á landi og ferðaþjónustuuppbyggingu.
Landeldi í Hvalfirði - 28.000 tonna eldi á ári – Álit um um­hverf­is­mat

Aurora fiskeldi ehf. áformar að byggja landeldistöð fyrir lax á Grundartanga í Hvalfjarðarsveit. Fyrirhuguð framleiðsla er um 28.000 tonn á ári. Stöðin verður staðsett austast á iðnaðarsvæðinu á Grundartanga og verður byggð í þremur áföngum. 33 umsagnir bárust um málið inn á Skipulagsgátt.

Áður en framkvæmdaraðili sækir um leyfi fyrir framkvæmd og starfsemi þarf að ljúka viðeigandi breytingum á aðal- og deiliskipulagi svæðisins.

Sundabraut, Reykjavík – Álit um um­hverf­is­mat

Í umhverfismatsskýrslu Vegagerðarinnar eru kynnt áform um lagningu Sundabrautar milli Sæbrautar og Kjalarness. Meginmarkmið framkvæmdarinnar er að bæta samgöngur fyrir alla ferðamáta á svæðinu, stytta vegalengdir og bæta tengingar á milli svæða. Vegagerðin leggur fram tvo aðalvalkosti fyrir þverun Kleppsvíkur, þ.e. milli Sæbrautar við Sundahöfn og Gufuness, annars vegar jarðgöng og hins vegar 30 m háa brú. 122 umsagnir bárust um málið inn á Skipulagsgátt.

Í framhaldi má vænta skipulagsbreytinga hjá Reykjavíkurborg og að nánari útfærslur á framkvæmdinni líti dagsins ljós.

Hoffell í Nesjum, Sveitarfélaginu Hornafirði  – Álit um mats­á­ætl­un

Bláa Lónið hf. áformar uppbyggingu við Hoffell í Nesjum í Sveitarfélaginu Hornafirði. Áformað er að reisa hótel og baðstað með veitingaaðstöðu, auk annarrar aðstöðu tengdri útivist og ferðamennsku. 84 umsagnir bárust um málið inn á Skipulagsgátt.

Matsáætlun framkvæmdaraðila er lýsing á því hvernig fyrirhugað er að standa að umhverfismati framkvæmdar. Í áliti HMS um matsáætlun setur stofnunin fram leiðbeiningar stofnunarinnar til framkvæmdaraðila um vinnslu, efni og framsetningu umhverfismatsskýrslu.

Næsta skref í ferlinu er undirbúningur umhverfismatsskýrslu af hálfu framkvæmdaraðila sem síðar verður lögð fram til kynningar áður en HMS gefur út álit um umhverfismat framkvæmdarinnar.

Önnur mál maímánaðar:

Efnistaka í Gandheimum, Hvalfjarðarsveit – Álit um umhverfismat

Skógrækt í landi Villingavatns í Grafningi – Álit um umhverfismat

Vikurnám við Merkihvol, Rangárþingi ytra – Álit um matsáætlun

Endurvinnslustöð lífræns úrgangs í Þorlákshöfn, Ölfusi - Matsskylduákvörðun

Niðurstaða: Framkvæmd háð umhverfismati.

Skógrækt í Fagranesi í Öxnadal, Hörgársveit - Matsskylduákvörðun

Niðurstaða: Framkvæmd ekki háð umhverfismati. Ákvörðun HMS hefur verið kærð til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Úrskurður liggur ekki fyrir.

Sætún II Ungauppeldi, Reykjavíkurborg - Matsskylduákvörðun

Niðurstaða: Framkvæmd ekki háð umhverfismati.

 

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS