25. mars 2026
26. mars 2026
Um 5 þúsund heimili eru án reykskynjara
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Reykskynjari er algengasta brunavörnin en ætla má að um 5 þúsund heimili séu án reykskynjara
- Þeir sem eru með reykskynjara á heimili sínu eru líklegri til að vera einnig með aðrar nauðsynlegar brunavarnir, svo sem slökkvitæki og eldvarnarteppi
- Fjórði hver einstaklingur þekkir ekki flóttaleið út af heimili sínu í tilviki eldsvoða
Brunavarnir á heimilum landsmanna eru almennt í góðu lagi. Því sem næst allir eru með einhvers konar brunavarnir til staðar, en reykskynjari er þó algengasta brunavörnin. Einungis 1% einstaklinga segja heimili sitt vera án allra brunavarna, ef marka má niðurstöður úr árlegri könnun HMS um brunavarnir heimilanna sem Prósent framkvæmdi fyrir hönd HMS í upphafi árs.
Reykskynjari er algengasta brunavörnin
Oft er talað um bjargvættina þrjá í brunavörnum heimilanna. Það eru reykskynjari, slökkvitæki og eldvarnarteppi. Reykskynjari er algengasta brunavörnin á heimilum landsmanna, en samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar eru 97% landsmanna með að minnsta kosti einn reykskynjara á heimili sínu og 78% eru með tvo eða fleiri reykskynjara. Almennt er þörf á fleiri reykskynjurum í stærra húsnæði, en mælst er til þess að reykskynjarar séu í öllum rýmum og herbergjum heimila.
Um 3% einstaklinga eru ekki með reykskynjara á heimili sínu. Það samsvarar tæplega 12 þúsund einstaklingum eða um 5 þúsund heimilum. Aðspurð hvers vegna enginn reykskynjari sé á heimilinu bera langflest fyrir sig framtaksleysi.
Reykskynjarar eru ódýr öryggistæki sem geta bjargað mannslífum. HMS hvetur því alla til að setja upp reykskynjara á heimilum sínum til að tryggja öryggi sitt og annarra sem þar dvelja.
Slökkvitæki og eldvarnarteppi skipta máli þegar eldur kviknar
Aðrar brunavarnir, líkt og slökkvitæki og eldvarnarteppi, eru til staðar á færri heimilum. Fjórir af hverjum fimm eru með slökkvitæki á heimilum sínum en aðeins 67% eru með eldvarnarteppi til taks. Slökkvitæki og eldvarnarteppi geta skipt sköpum þegar eldur kviknar og geta í sumum tilfellum dugað til að ráða niðurlögum hans. Þannig er hægt að koma í veg fyrir að minniháttar eldur breiðist út og valdi stórfelldum skaða og tjóni.
Meirihluti landsmanna er með þrjár helstu brunavarnir á heimilum sínum
Niðurstöður könnunarinnar sýna enn fremur að þeir sem eru með reykskynjara á heimilum sínum eru mun líklegri til að vera með slökkvitæki og/eða eldvarnarteppi á heimili sínu.
Rúmlega helmingur landsmanna er með alla þrjá bjargvættina til staðar á heimilum sínum: reykskynjara, slökkvitæki og eldvarnarteppi. Um 22% eru einungis með reykskynjara og slökkvitæki og 8% eru aðeins með reykskynjara og eldvarnarteppi. Um 10% landsmanna eru eingöngu með reykskynjara, en lægra hlutfall er með aðrar samsetningar af brunavörnum líkt og sjá má á myndinni hér að neðan.
Um 1% einstaklinga kveðst ekki vera með neinar brunavarnir tiltækar á heimili sínu. Ætla má að það samsvari í um það bil 1.700 heimilum hér á landi.
Fjórði hver einstaklingur þekkir ekki flóttaleið út af heimili sínu í tilviki eldsvoða
Þegar eldur kviknar er hann fljótur að breiðast út og því ættu allir að hafa og þekkja aðgengilega flóttaleið út af heimili sínu. Niðurstöður könnunarinnar leiða hins vegar í ljós að rúmur fjórðungur landsmanna, eða um 28%, þekkir ekki hvaða flóttaleið skal nota ef eldsvoði kemur upp á heimilum þeirra.
Rétt er að hafa í huga að krafa er gerð um tvær óháðar flóttaleiðir í nýjum og endurbyggðum íbúðum samkvæmt núgildandi byggingarreglugerð. Í eldri byggingum, sem voru reistar áður en þessar kröfur tóku gildi, kann að vera aðeins ein flóttaleið út úr íbúð. Það er til dæmis algengt í íbúðum á efri hæðum þar sem ekki eru svalir. Þar sem aðeins er fyrir hendi ein trygg flóttaleið er mikilvægt að íbúar hugi að öðrum lausnum, t.d. að setja upp stiga eða siglínu við glugga til að tryggja tvær flóttaleiðir.
HMS minnir á fræðsluefni um brunavarnir heimilanna sem finna má á vefnum vertueldklar.is
Prósent sá um framkvæmd könnunarinnar fyrir hönd HMS og gögnum var safnað frá 21. janúar til 3. febrúar 2026. Úrtakið samanstóð af 2 þúsund einstaklingum úr könnunarhópi Prósents og alls bárust 996 svör. Svarhlutfallið í könnuninni var því 50%.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS





