10. júní 2026

Tæplega fjórðungur íbúða á söluskrá hefur verið til sölu í meira en ár

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Kaupsamningum fækkaði um 25 prósent á milli mánaða í apríl en einungis um 8 prósent ef tekið er tillit til fjölda virkra daga
  • Miðgildi auglýsingatíma óseldra íbúða hefur lengst úr 98 dögum í 142 daga á milli ára
  • Um 5 prósent íbúða á söluskrá hefur verið til sölu í meira en tvö ár

Þinglýstum kaupsamningum fækkaði um fjórðung á milli mánaða í apríl en þar setti páskahátíðin strik í reikninginn. Um 5 prósent þeirra 6.200 íbúða sem voru á söluskrá í byrjun júní hefur verið til sölu í meira en tvö ár. Þetta er meðal þess sem fjallað verður um í mánaðarskýrslu HMS fyrir júnímánuð sem gefin verður út á fimmtudaginn í næstu viku.

Færri kaup­samn­ing­ar und­ir­rit­að­ir í apr­íl vegna fjölda frí­daga

Alls var 758 kaupsamningum þinglýst í apríl síðastliðnum, eða tæplega 25 prósent færri en í mars þegar þeir voru rétt rúmlega þúsund talsins. Í því samhengi er þó rétt að hafa í huga að páskahátíðina bar upp í apríl í ár, líkt og flest önnur ár, og virkir dagar voru því nokkuð færri en í mars. Sé hins vegar tekið tillit til fjölda virkra daga í mánuðinum fækkaði kaupsamningum einungis um 8 prósent á milli mánaða í apríl. Öllu færri kaupsamningum var þó þinglýst í nýliðnum aprílmánuði samanborið við apríl í fyrra þegar undirritaðir voru 911 kaupsamningar.

Líkt og sjá má á myndinni hér að neðan væru kaupsamningar í aprílmánuði yfirleitt nokkuð fleiri ef leiðrétt væri með tilliti til fjölda virkra daga. Árið 2024 var þó frábrugðið öðrum á nokkra vegu. Páskarnir voru í mars það ár og á sama tíma var Fasteignafélagið Þórkatla að ganga frá kaupum á fjölda eigna í Grindavík í tengslum við eldsumbrot þar í bæ.

Rúm­lega 300 íbúð­ir hafa ver­ið til sölu í meira en tvö ár

Rétt tæplega 6.200 íbúðir voru auglýstar til sölu á landinu öllu í upphafi júnímánaðar. Framboð íbúða til sölu hefur aukist mikið undanfarin misseri á sama tíma og kólnað hefur á markaðnum og kaupsamningum hefur fækkað á milli ára.

Auglýsingatími íbúða til sölu hefur einnig lengst undanfarið, en þær íbúðir sem eru til sölu í dag hafa verið talsvert lengur á söluskrá en þær íbúðir sem voru til sölu á sama tíma undanfarin ár. Miðgildi auglýsingatíma virkra fasteignaauglýsinga er í dag í kring um 142 dagar, en var um það bil 98 dagar í júní í fyrra og um 68 dagar í júní árið 2024. Líkt og sjá má á myndinni hér að neðan hefur hlutfall íbúða sem hafa verið á söluskrá í 3 mánuði eða skemmri tíma farið lækkandi undanfarin ár á meðan hlutfall íbúða sem hefur verið lengur á söluskrá hefur aukist nokkuð.   

Tæplega fjórðungur allra íbúða sem auglýstar voru til sölu í upphafi júnímánaðar hafa verið á söluskrá í meira en 12 mánuði og um 5 prósent þeirra hafa verið til sölu í meira en tvö ár. Í júní í fyrra hafði um 16 prósent íbúða til sölu verið á söluskrá í meira en eitt ár og einungis 2,5 prósent í meira en tvö ár. Hlutföllin voru enn lægri árið 2024 þegar aðeins 9 prósent íbúða til sölu hafði verið á söluskrá í meira en 12 mánuði og innan við 1 prósent hafði verið á söluskrá í meira en tvö ár.

Nánar verður fjallað um dreifingu auglýsingatíma íbúða á söluskrá í mánaðarskýrslu HMS fyrir júní sem gefin verður út fimmtudaginn 18. júní.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS