23. september 2026
24. september 2026
RB-blöð mánaðarins: Rakaþétting á köldum yfirborðum
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Þegar útihitastig lækkar aukast líkur á rakaþéttingu vegna aukins hitamunar milli inni- og útilofts
- Hitastig, rakastig, loftskipti og einangrun hafa áhrif á rakaöryggi bygginga og geta ráðið því hvort raki þéttist á köldum yfirborðum
- Góð loftun og loftþéttir byggingarhlutar draga úr hættu á rakaþéttingu og þeim skemmdum sem hún getur valdið
Þegar hausta tekur og útihitastig lækkar aukast líkur á rakaþéttingu þar sem hitamunur milli inni- og útilofts eykst.
RB-blöð mánaðarins fjalla að þessu sinni um rakaþéttingu á köldum yfirborðum og þær aðstæður sem geta valdið því að raki þéttist á eða í byggingarhlutum. Í leiðbeiningunum er meðal annars farið yfir samspil hitastigs, rakastigs og yfirborðshita og hvernig loftskipti, einangrun og hönnun byggingarhluta hafa áhrif á rakaöryggi mannvirkja.
Þegar heitt loft kólnar
Samband raka og lofthita er með þeim hætti að loft við hærra hitastig getur borið meira rakamagn. Sem dæmi má nefna að við 20°C lofthita getur hámarksrakamagn lofts (100% hlutfallsraki / mettunarraki) verið um 17,3 g/m³, en við 10°C er það um 9,4 g/m³.Þetta veldur því að þegar hitastig loftsins lækkar úr 20°C í 10°C getur orðið döggun. Loft við 10°C getur ekki haldið sama rakamagni og loft við 20°C og því fellur umfram rakinn út, (7,9 g/m³) . Þetta getur gerst á yfirborði efna og í byggingarhlutum.
Við sjáum stundum slíka rakaútfellingu innan á glerjum í gluggum á útvegg eða á spegli í baðherbergi eftir heita sturtu. Þetta getur gefið vísbendingar um gler sem hefur tapað einangrunarhæfni sinni eða ónóg loftun í rýminu.
Góð loftun og loftþéttir byggingarhlutar eru lykilatriði til að draga úr hættu á rakaþéttingu og þeim skemmdum sem hún getur valdið.
Eldri leiðbeiningar eiga enn við
Fjölmargar útgefnar leiðbeiningar fjalla um raka og tengdar áskoranir. Nokkur eldri Rb-blöð tengjast þessu viðfangsefni vel. Annars vegar er fjallað um yfirborðshitastig byggingarhluta og rakaþéttingu, þar sem útskýrt er hvers vegna kaldir fletir geta orðið rakasöfnunarpunktar. Hins vegar er fjallað um rakaþéttingu á gluggum, móðu, hélu, hrími og ís, sem eru algeng viðfangsefni á íslenskum heimilum yfir vetrarmánuðina.
Þrátt fyrir að þessar Rb-tæknilegar leiðbeiningar hafi verið gefin út fyrir nokkrum árum eiga margar af meginforsendum byggingareðlisfræðinnar enn við í dag. Þau veita gagnlegar upplýsingar fyrir húsbyggjendur, hönnuði, fagfólk í mannvirkjagerð og húsnæðiseigendur sem vilja draga úr rakavandamálum og stuðla að betri innivist.
Rb-blöð
Rb. (14).006 Varnir gegn rakaskemmdum (2020)
I4.003 Rakþétting á köldum yfirborðum (2011)
I6.001 Yfirborðshitastig byggingarhluta – rakaþétting (1984)
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS



