22. september 2026
5. febrúar 2026
Opið fyrir umsóknir um stofnframlög
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Frá 2016 hafa ríki og sveitarfélög veitt rúmlega 55 milljarða króna í stofnframlög til uppbyggingar á um 4.200 leiguíbúðum um land allt
- Markmið stofnframlaga er að fjölga hagkvæmum leiguíbúðum og bæta húsnæðisöryggi tekju- og eignaminni heimila
- Almennar íbúðir sem byggðar eru eða keyptar með stofnframlögum þurfa að uppfylla kröfur um hagkvæmni, meðal annars um stærð íbúða með það að markmiði að halda leiguverði viðráðanlegu
Opnað hefur verið fyrir umsóknir um stofnframlög í þriðju úthlutun ársins 2026. Stofnframlögin eru veitt til samfélagssinnaðra leigusala til að byggja eða kaupa almennar leiguíbúðir fyrir tekju- og eignaminni heimili.
Umsóknarfrestur er til og með 23. október næstkomandi
Umsókn um stofnframlag
Stofnframlög hafa verið veitt til uppbyggingar á um 4.200 íbúðum
Frá árinu 2016 þegar lög um almennar íbúðir tóku gildi hafa stjórnvöld, ríki og sveitarfélög úthlutað stofnframlögum upp á rúmlega 55 milljarða króna til uppbyggingar á um 4.200 leiguíbúðum víðsvegar um landið.
Fjölgun íbúða með stofnframlögum eftir landshlutum
Stofnframlög eru stuðningur í formi eiginfjár sem veitt eru annars vegar fyrir hönd ríkisins í gegnum HMS og hins vegar frá viðkomandi sveitarfélagi þar sem íbúðirnar koma til með að vera staðsettar í.
Markmiðið með stofnframlögum er að fjölga hagkvæmum leiguíbúðum með viðráðanlegan húsnæðiskostnað og bæta húsnæðisöryggi tekju- og eignaminni heimila. Húsnæðiskostnaður á að vera í samræmi við greiðslugetu og að jafnaði ekki umfram fjórðung tekna.
Það eru ýmsar kröfur gerðar til almennra íbúða, sem eru byggðar eða keyptar með stofnframlögum, þær þurfa að uppfylla skilyrði um hagkvæmni t.a.m. stærðarmörk m.t.t. fjölda svefnherbergja. Þessi umgjörð er til þess fallin að lækka leiguverð og skapa aukið húsnæðisöryggi tekju-og eignaminni heimila.
Fyrirspurnir beinast á stofnframlag@hms.is
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




