19. mars 2026

Rb-blað marsmánaðar: Frágangur Votrýma

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

HMS hefur endurvakið útgáfu á Rb-blöðunum, sem eru tækni- og leiðbeiningablöð um mannvirkjagerð. Viðfangsefni Rb-blaðanna hafa verið fjölbreytt í gegnum tíðina. Í tengslum við útgáfu nýrra blaða endurútgefur HMS, í lok hvers mánaðar, eldri blöð sem fjalla um málefni líðandi stundar.

Rb-blað mánaðarins fjallar um frágang votrýma.

Rb-blað mánaðarins

Rb-blaðið Frágangur votrýma var gefið út í desember 2016 af Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Höfundur blaðsins er Jón Sigurjónsson.

Blaðið fjallar um frágang votrýma, val á þéttilögum og efnum og hvernig draga má úr vatnstjóni vegna leka frá lögnum. Fjallað er um algengustu orsakir vatnstjóna og helstu tjónastaði. Þá er sett fram markmiðssetning fyrir röralagir, gólfniðurföll og fleiri þætti við frágang votrýma til að draga út tíðni vatnstjóna.

Einnig er stuttlega fjallað um innivist votrýma og frágang veggja og gólfa, svo sem timburinnveggja, útveggja og gólfefna.

Votrými eru mikilvæg en valda oft vandræðum og skemmdum. Í votrýmum er notað meira en helmingur af vatni hússins.

Góður frágangur votrýma byggir á samráði og samvinnu margra iðngreina, svo sem trésmiða, múrara, pípulagningamanna, dúklagningarmanna og rafvirkja. Því er mikilvægt að skipuleggja verkið vel frá upphafi og vanda til verka.

Öll útgefin Rb-leiðbeiningarblöð

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS