5. júní 2026
9. júní 2026
Nýjar námskrár og kennsluáætlun samþykkt af Fagráði Brunamálaskólans
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Fagráð Brunamálaskólans hittist á árlegum staðarfundi á Sauðárkróki þar sem farið var yfir fagleg málefni skólans og næstu skref í endurskipulagningu námsins
- Drög að nýrri námskrá fyrir nám eldvarnareftirlitsmanna og stjórnendanám voru samþykkt með fyrirvara um breytingar og verða sett í frekara samráð við helstu fagaðila
- Kennsluskrá skólaársins 2026–2027 var lögð fram og markmiðið er að haustið 2027 verði öll stig námsins kennd með nýuppsettu námsefni og fyrirkomulagi
Fagráð Brunamálaskólans hittist á árlegum staðarfundi um miðjan maí og fór fundurinn fram á Sauðárkróki. Fagráðið er HMS til ráðgjafar um fagleg málefni skólans. Samband íslenskra sveitarfélaga, Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og Félag slökkviliðsstjóra eiga öll fulltrúa í fagráðinu og skipar ráðherra formann fagráðsins. Í fagráðinu sitja þau Sæmundur Helgason (formaður), Berglind Eva Ólafsdóttir (Samband íslenskra sveitarfélaga), Jón Kristinn Valsson (LSS) og Birgir Finnsson (FSÍ).
Fundurinn gekk vel og var góð samstaða um málefni fundarins. Lögð voru fram drög að nýrri námskrá fyrir nám eldvarnareftirlitsmanna og námskrá fyrir stjórnendanám. Námskrárnar voru samþykktar með fyrirvara um breytingar og verða þær settar í frekara samráð við helstu fagaðila, þar á meðal Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og Félag slökkviliðsstjóra á Íslandi.
Kennsluskrá fyrir skólaárið 2026 – 2027 var lögð fyrir fagráðið ásamt því að fagráðið setti starfsáætlun fyrir komandi skólaár.
Ný skýrsla um æfingasvæði slökkviliða var jafnframt kynnt fyrir fagráðinu, en mikil þörf er á að bæta þá aðstöðu sem nú er til staðar. Endurskipulagning skólans er í góðum farvegi og er markmiðið að haustið 2027 verði farið að kenna öll stig námsins með nýuppsettu námsefni og fyrirkomulagi.
Skólaárið 2026 – 2027 (birt með fyrirvara um breytingar)
Námskeið á haustönn 2026:
- Fjórar námslotur vegna grunnnáms slökkviliðsmanna (verklegar staðlotur með bóklegum undanfara á kennsluvef, áhersla verður á lotur 1 og 3)
- Eldvarnareftirlit námskeið II: áætlað í lok september
- Stjórnandi á vettvangi fyrri hluti: tvö verkleg námskeið (auglýst síðar)
- Stjórnendanám: áætlað í október eða byrjun nóvember (auglýst síðar)
- Framhaldsnám fyrir slökkviliðsmenn: Keyrt í samstarfi við SHS, SA, SF, BS og BÁ
Námskeið á vorönn 2027:
- Fjórar námslotur vegna grunnnáms slökkviliðsmanna (verklegar staðlotur með bóklegum undanfara á kennsluvef, áhersla verður á lotur 2 og 4)
- Eldvarnareftirlit námskeið I: áætlað í janúar
- Stjórnandi á vettvangi fyrri hluti: tvö verkleg námskeið (auglýst síðar)
- Stjórnendanám: námskeið áætlað í mars (auglýst síðar)
- Leiðbeinendanámskeið fyrir nám stjórnenda á vettvangi seinni hluti (auglýst síðar)
- Endurmenntun: Flaim námskeið á fjórum stöðum yfir önnina
- Framhaldsnám fyrir slökkviliðsmenn: Keyrt í samstarfi við SHS, SA, SF, BS og BÁ
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




