21. maí 2026

Mánaðarskýrsla HMS maí 2026

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Mánaðarskýrsla HMS fyrir maí 2026 er komin út, en hana má nálgast með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan. Í skýrslunni kemur meðal annars fram að á fasteignamarkaði er enn rólegt um að litast og fleiri seljendur lækka ásett verð. Á leigumarkaði hefur hægst á leiguverðshækkunum á ársgrundvelli og leiguverð hefur nánast staðið í stað að raunvirði undanfarna tólf mánuði. Sé horft yfir lengra tímabil, eða frá 2014, hefur markaðsleiga hækkað umfram lægstu laun.

Mánaðarskýrsla HMS

Myndir að baki mánaðarskýrslu

Dýr­um fjöl­býl­is­í­búð­um til sölu hef­ur fjölg­að mik­ið á síð­ustu mán­uð­um

Fasteignamarkaðurinn er rólegur um þessar mundir, en lítill verðþrýstingur hefur mælst á markaðnum undanfarna mánuði og fleiri seljendur lækka ásett verð. Íbúðaverð stóð í stað í apríl og að mati fasteignasala er staðan óbreytt í maímánuði.  

Dýrum fjölbýlisíbúðum til sölu hefur fjölgað mikið á síðustu mánuðum, á meðan óseldum íbúðum á lægri verðbilum hefur fjölgað minna. Verst gengur að selja fjölbýlisíbúðir á höfuðborgarsvæðinu sem eru stærri en 120 fermetrar.  

Mark­aðs­leiga hef­ur hækk­að um­fram lægstu laun frá 2014

Á leigumarkaði hefur hægst á leiguverðshækkunum á ársgrundvelli og leiguverð hefur nánast staðið í stað að raunvirði undanfarna tólf mánuði. Sé horft yfir lengra tímabil, eða frá 2014, hefur markaðsleiga hækkað umfram lægstu laun.  Þetta er til marks um að fleiri leigjendur á markaði búi við íþyngjandi húsnæðiskostnað.  

Neyt­end­ur færa sig yfir í óverð­tryggð lán á föst­um vöxt­um

Á lánamarkaði hafa væntingar um verðbólgu til skamms tíma aukist, á meðan markaðsaðilar hafa orðið svartsýnni og neytendur fært sig yfir í óverðtryggð lán á föstum vöxtum hjá viðskiptabönkunum. Breytingar á hlutdeildarlánakerfinu um áramótin síðustu hafa gert það að verkum að fleiri kaupendur uppfylla skilyrði hlutdeildarlána nú en áður og greina má eftirspurnaraukninguna úr mánaðarlegri viðhorfskönnun HMS meðal fasteignasala.  

Tæki­færi til að vinna á íbúða­skuld­inni

Á byggingarmarkaði hafa færri nýjar íbúðir orðið fullbúnar á fyrstu fjórum mánuðum þessa árs samanborið við fyrri ár og bendir staðan nú til þess að um 2.700 til 2.800 íbúðir geti orðið fullbúnar á þessu ári, en um 3.400 íbúðir urðu fullbúnar í fyrra. Þó er enn talsverð óvissa um þróunina það sem eftir lifir árs, enda geta markaðsaðstæður, sala nýrra íbúða og framvinda stærri verkefna haft veruleg áhrif á lokaniðurstöðuna.  

Sökum hóflegrar fólksfjölgunar á síðasta ári, sem var í takt við lágspár sveitarfélaganna, samhliða kröftugri íbúðauppbyggingu, tókst að vinna lítillega á þeirri uppsöfnuðu íbúðaskuld sem myndast hafði á undanförnum árum. Tækifæri gætu því skapast á þessu ári til að vinna enn frekar á íbúðaskuldinni, haldist fólksfjölgun áfram hófleg og íbúðauppbygging kröftug.   

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS