12. ágúst 2026

Laun hafa ekki náð að bæta upp fyrir hækkun vaxta og íbúðaverðs

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Íbúðaverð hefur ekki hækkað jafn hratt og laun á síðustu fjórum árum
  • Greiðslur af íbúðalánum eru hins vegar þungbærari en þær voru á árunum fyrir faraldur
  • Greiðslubyrði verðtryggðra og óverðtryggðra lána hefur aukist álíka mikið frá árinu 2020

Ef tekið er tillit til launa, vaxta og verðlags er greiðslubyrði af nýjum íbúðalánum 30 til 40 prósentum þyngri en hún var á árunum 2015-2020. Greiðslubyrði óverðtryggðra lána hefur þó lækkað á allra síðustu árum, ásamt því að íbúðaverð hefur lækkað sem hlutfall af launum.

Þetta er á meðal þess sem fjallað verður um í mánaðarskýrslu HMS fyrir ágústmánuð sem kemur út þann 20. ágúst.

Laun hafa hækk­að um­fram íbúða­verð frá ár­inu 2022

Í mánaðarskýrslunni verður fjallað um samhengi íbúðaverðs, launa og vaxta á síðustu árum og áratugum. Íbúðaverð hefur hækkað sem hlutfall af launum frá árinu 1989, en frá árinu 2022 hefur hlutfallið lækkað, líkt og sjá má á mynd hér að neðan. Íbúðaverð sem hlutfall af launum er nú nálægt meðaltali síðustu tíu ára.

íbúðaverð og laun 1989-2026

Samhliða því að íbúðaverð sem hlutfall af launum hefur lækkað hafa nafnvextir íbúðalána einnig lækkað á síðustu árum, en hvoru tveggja hefur leitt til þess að greiðslubyrði nýrra óverðtryggðra lána hefur lækkað. Greiðslubyrðin er þó enn töluvert þyngri en hún var á tímabilinu 2015-2020.

Á mynd hér að neðan má sjá þróun greiðslubyrðar af nýju húsnæðisláni eftir mánuðum frá ársbyrjun 2015 til aprílmánaðar 2026. Þróunin er sýnd með vísitölu sem tekur gildið 100 í janúar 2015 og byggir á hagvísum Seðlabankans um vexti á íbúðalánum, ásamt vísitölu íbúðaverðs og launavísitölu Hagstofu.

Greiðslubyrði nýrra húsnæðislána 2015-2026

Líkt og myndin hér að ofan sýnir var greiðslubyrði verðtryggðra og óverðtryggðra lána tiltölulega stöðug á tímabilinu 2015-2020. Á tímum heimsfaraldursins  lækkaði greiðslubyrðin svo markvert, en jókst svo enn meira þegar vextir hækkuðu á árunum 2022-2024.

Í aprílmánuði á þessu ári var greiðslubyrði óverðtryggðra lána um 40% þyngri en hún var í janúar 2015, á meðan greiðslubyrði verðtryggðra lána var 37% þyngri en í ársbyrjun 2015.

Nýr póstlisti hag­deild­ar HMS

Hagdeild HMS hefur útbúið nýjan póstlista fyrir alla sem vilja fylgjast með húsnæðismálum. Áskrifendur póstlistans munu fá helstu greiningar sendar til sín úr mánaðarskýrslum HMS, ásamt tilfallandi greiningum um fasteigna-, leigu-, lána- og byggingarmarkaðinn og auglýsingum um komandi viðburði.

Hægt er að skrá sig á póstlistann með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan.

Póstlisti Hagdeildar HMS

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS