18. mars 2026
18. mars 2026
HMS leggur til úrbætur á brunavörnum í kjölfar eldsvoða á Stuðlum
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- HMS birtir skýrslu þar sem eldsvoðinn á Stuðlum í október 2024 er rannsakaður
- Rannsóknin leiddi í ljós alvarlega annmarka á brunavörnum sem höfðu veruleg áhrif á öryggi og mannslíf
- Í skýrslunni leggur HMS fram fjórar úrbótatillögur tengdum fræðslu, eftirliti með brunavörnum og endurskoðun regluverks
Rannsókn HMS á eldsvoðanum sem varð á meðferðarheimilinu Stuðlum að Fossaleyni 17, þann 19. október 2024, leiddi í ljós alvarlega annmarka á brunavörnum, virkni þeirra og eftirliti, sem höfðu veruleg áhrif á öryggi og mannslíf.
Eldsvoðinn á Stuðlum varpar ljósi á veikleika í því kerfi sem ætlað er að tryggja brunavarnir í mannvirkjum þar sem vistaðir eru viðkvæmir einstaklingar sem ekki eru færir um að koma sér sjálfir út eða á öruggt svæði við eldsvoða. Í þannig mannvirkjum eru gerðar auknar kröfur til brunavarna, virkni þeirra og reglubundins eftirlits.
Brunavarnir, virkni þeirra og eftirlit var ekki í samræmi við kröfur
Rannsókn HMS sýndi að brunavarnir mannvirkisins, virkni þeirra og eftirlit með þeim var ekki í samræmi við brunahönnun og þær lögbundnu kröfur sem gerðar eru til brunavarna og mannvirkjagerðar. Samkvæmt lögum ber eigandi og eftir atvikum forráðamaður mannvirkis ábyrgð á því að brunavarnir séu virkar og að reglubundið eftirlit sé viðhaft.
Á árunum fyrir eldsvoðann voru ítrekað gerðar kröfur um úrbætur á brunavörnum gagnvart Ríkiseignum, sem eiganda mannvirkisins. Kröfur um úrbætur voru bæði gerðar í kjölfar hefðbundins eldvarnareftirlits Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins og við framkvæmd öryggis- og lokaúttekta byggingarfulltrúa Reykjavíkurborgar. Þrátt fyrir það voru nauðsynlegar úrbætur ekki gerðar.
Tillögur HMS að úrbótum
HMS telur ljóst að draga verði lærdóm af eldsvoðanum á Stuðlum. Á grundvelli niðurstaðna rannsóknarinnar leggur HMS fram fjórar úrbótatillögur, sem skiptast í fjórtán aðgerðir í þeim tilgangi að knýja fram úrbætur til að tryggja öryggi og vernda mannslíf.
Tillaga 1 snýr að því að eigendur og forráðamenn mannvirkja taki ábyrgð á eigin brunavörnum. Tillagan felur í sér að ráðist verði í skipulagt fræðsluátak og að gerðar verði leiðbeiningar til að auka skilning á ábyrgð eigenda og forráðamanna á brunavörnum. Samhliða verði farið í sérstakt eftirlitsátak með mannvirkjum þar sem einstaklingar eru ekki færir um að koma sér út sjálfir.
Aðgerðir undir tillögu 1
Tillaga 2 snýr að því að byggingarfulltrúar komi í veg fyrir að mannvirki verði tekin í notkun án útgefins öryggis- og lokaúttektarvottorðs. Tillagan felur í sér aukna fræðslu og eftirfylgni með starfi byggingarfulltrúa varðandi ábyrgð þeirra og lagalegar skyldur við framkvæmd öryggis- og lokaúttekta. Sömuleiðis yrði eftirfylgni aukin með því að öryggis- og lokaúttektum ásamt tilheyrandi vottorðum sé skilað í mannvirkjaskrá og að slökkviliðum sé tryggður aðgangur að gögnunum.
Aðgerðir undir tillögu 2
Tillaga 3 snýr að mannvirkjaskrá HMS verði nýtt til að tryggja sameiginlegt aðgengi eftirlitsaðila að hönnunargögnum mannvirkja. Tryggja þarf að brunavarnir séu í samræmi við brunahönnun, að viðhaft sé reglubundið eftirlit með virkni þeirra og að unnið sé eftir rýmingaráætlun.
Aðgerðir undir tillögu 3
Tillaga 4 snýr að því að styrkja framkvæmd eldvarnaeftirlits slökkviliða með aukinni fræðslu, leiðbeiningum og breytingu á regluverki með hliðsjón af áhættumiðuðu eftirliti og breyttu byggingareftirliti.
Aðgerðir undir tillögu 4
Lesa má skýrsluna í heild sinni með því að smella á hnappinn hér að neðan.
Rannsókn HMS um eldsvoðann á Stuðlum
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS








