27. ágúst 2026
27. ágúst 2026
Góð mæting á kynningarfundi um breytingar á brunavarnarákvæðum byggingarreglugerðar
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Tillögur HMS að nýjum 5. hluta byggingarreglugerðar um brunavarnir voru kynntar á opnum fundi í gær
- Einföldun felur í sér aðgengilegri framsetningu
- Aukinn stuðningur við fagaðila með gerð leiðbeininga
HMS hélt opinn kynningarfund 25. ágúst um fyrirhugaðar breytingar á 5. hluta byggingarreglugerðarinnar, sem fjallar um brunavarnir. Fundurinn var liður í áframhaldandi endurskoðun og einföldun byggingarreglugerðarinnar og gaf hagaðilum tækifæri til að kynna sér helstu tillögur HMS og koma sjónarmiðum sínum á framfæri.
Á fundinum voru kynntar helstu breytingar á drögum að nýjum 5. hluta reglugerðarinnar. Að kynningu lokinni fór fram opið samtal þar sem þátttakendur gátu komið ábendingum og athugasemdum á framfæri sem nýtast við áframhaldandi vinnu við reglugerðarákvæðin og tengdar leiðbeiningar.
Hluti 5 um brunavarnir tekur efnislega til núgildandi 9. hluta byggingarreglugerðar og fjallar um eftirfarandi atriði:
- Almennar brunavarnakröfur
- Öryggisbúnaður í mannvirkjum
- Rýming við eldsvoða
- Varnir gegn útbreiðslu elds og reyks
- Aðstaða fyrir slökkvilið
- Kröfur til burðarvirkja við bruna
Endurskoðun byggingarreglugerðarinnar miðar að því að gera reglurnar einfaldari og skýrari, með aukinni áherslu á virknimiðaðar kröfur, samræmda uppbyggingu og aukið svigrúm fyrir fjölbreyttar lausnir. Með breytingunum er jafnframt leitast við að tryggja að brunavarnakröfur haldi áfram að styðja við öryggi fólks, eigna og umhverfis.
Drög að reglugerðarákvæðunum og greinargerð um breytingarnar eru aðgengileg á samráðsvef byggingarreglugerðarinnar og gefst áhugasömum kostur á að senda inn athugasemdir með rafrænum hætti.
Skráðu þig á póstlista
Ef þú hefur áhuga á að fylgjast með framvindu verkefnisins geturðu skráð þig á póstlista HMS. Þeir sem skrá sig fá upplýsingar um:
- komandi kynningar- og samráðsfundi,
- birtingu nýrra draga að reglugerð og leiðbeiningum,
- annað efni sem tengist endurskoðun byggingarreglugerðar.
Skráning á póstlistann
Við hvetjum alla hagaðila til að skrá sig og fylgjast með verkefninu.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




