20. mars 2026
23. mars 2026
Framlengdur aðlögunartími vegna brunahólfandi innihurða
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
HMS gaf út tilkynningu í mars 2024 um upphaf tveggja ára aðlögunartímabils vegna breytts verklags á staðfestingum á nothæfi brunahólfandi innihurða. Markmiðið með hinu nýja verklagi er að tryggja skilvirkari afgreiðslu og áreiðanlegri staðfestingar á nothæfi brunahólfandi innihurða, en þær gegna lykilhlutverki við að takmarka útbreiðslu elds í mannvirkjum.
Í september 2024 hélt HMS opinn fund í samstarfi við Danish Instutue of Fire and Security (DBI) og Samtökum iðnaðarins þar sem kynnt var fyrir fagaðilum hvaða kröfur og verklag gildir um brunahólfandi innihurðir. DBI er tilkynntur aðili (e. Notified Body) og sérhæfir sig í brunaprófunum en skv. íslenskum lögum um byggingarvörur er gerð krafa um svokallaðar gerðarprófanir til að staðfesta nothæfi þeirra. Einnig voru haldnir fleiri fundir með DBI þar sem kannað var hvort stofnunin gæti komið að málefnum hérlendis til að styðja við markaðinn varðandi brunaprófanir.
Þrátt fyrir tveggja ára aðlögunartíma hafa íslenskir framleiðendur ekki náð fullum undirbúningi fyrir gildistöku breytinganna. HMS mun því framlengja aðlögunartímann um sex mánuði eða til 1. október 2026 til að styðja við aðlögunina og tryggja að markaðurinn uppfylli lögbundnar kröfur. HMS áskilur sér þó rétt til að skoða sérstaklega mannvirki sem falla í hærri áhættuflokk með tilliti til brunavarna.
Burður samstarfsvettvangur rannsókna og prófana – mikilvægt bakland við aðlögun framleiðenda
Í nóvember 2025 var Burður, samstarfsvettvangur um rannsóknir og prófanir, settur á fót en honum er ætlað að auka samstarf innan byggingargeirans og stuðla að betri mannvirkjum. Stofnun Burðar kemur í framhaldi af vegvísi um mótun rannsóknaumhverfis mannvirkjagerðar, en tvær aðgerða í honum snúa að því að auka aðgengi íslenskra byggingarvöruframleiðenda að faggiltum prófunum.
Þessi uppbygging tengist einnig framlengingu aðlögunartímans:
- Það er ekki fyrirséð að boðið verði upp á brunaprófanir hér á landi á næstunni þar sem slíkur búnaður er ekki til staðar og uppbygging slíkra innviða mjög dýr.
- Burður mun því styðja við íslenska hurðaframleiðendur við að senda hurðir í prófanir erlendis og eftir atvikum annast samskipti við tilkynntan aðila fyrir hönd hóps íslenskra framleiðenda.
- Með framlengingu aðlögunartímans skapast svigrúm til að Burður geti tekið virkan þátt í þessu ferli og þannig stutt við innleiðinguna á breyttu verklagi.
Fyrirsjáanleiki og aðlögun að samhæfðum staðli
Framleiðendur hafa á síðustu vikum óskað eftir meiri fyrirsjáanleika varðandi tíðni brunaprófana ef til þess kæmi að samhæfður staðall fyrir brunahólfandi innihurðir tæki gildi og þar af leiðandi krafa um CE-merkingu slíkra hurða.
HMS mun gefa út leiðbeiningar um þetta á næstu dögum.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




