25. september 2026
25. september 2026
Dauðans alvara ef brunahólfandi innihurðir virka ekki
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Brunahólfandi innihurðir eru lykilþáttur í öryggi fólks
- Ekki liggja fyrir gögn um öryggi hurða í um 80% tilvika
- HMS birtir upplýsingar um niðurstöður eftirlits
Fyrstu niðurstöður markaðseftirlits HMS með brunahólfandi innihurðum vekja alvarlegar áhyggjur. Rekstraraðilar hafa ekki skilað gögnum vegna um 80% þeirra hurðagerða sem markaðssettar eru hér á landi. Án slíkra gagna er ekki hægt að staðfesta að hurðirnar uppfylli kröfur og veiti þá vernd sem þeim er ætlað að tryggja þegar eldur kemur upp.
Átta af hverjum tíu hurðum gætu talist ólöglega markaðssettar
Faggilt skoðunarstofa á vegum HMS hefur undanfarna mánuði unnið að umfangsmiklu markaðseftirliti með brunahólfandi innihurðum. Fyrstu niðurstöður eftirlitsins sýna að fyrir um 80% þeirra hurðagerða sem upplýst hefur verið um að séu seldar hér á landi vantar öll eða hluta þeirra gagna sem nauðsynleg eru til að sýna fram á að þær uppfylli lögbundnar kröfur og séu löglega markaðssettar. Rekstraraðilum ber skylda til að tryggja að slík gögn liggi fyrir og séu aðgengileg áður en vara er sett á markað. Verði umbeðin gögn ekki lögð fram við framkvæmd markaðseftirlitsins teljast þær ólöglega markaðssettar og HMS mun þá beita viðeigandi úrræðum til að tryggja úrbætur. Í alvarlegustu tilfellum getur HMS sett á sölubann eða krafist innköllunar.
Brunahólfandi innihurðir – mikilvægur þáttur í brunavörnum
Óviðunandi gagnaskil framleiðenda og söluaðila eru verulegt áhyggjuefni, enda gegna brunahólfandi innihurðir veigamiklu hlutverki í brunavörnum mannvirkja. Þær eru frábrugðnar hefðbundnum innihurðum að því leyti að þær eiga að takmarka útbreiðslu elds og reyks og vernda þar með líf og öryggi fólks og eigna þegar eldur kemur upp. Þessu þarf almenningur að geta treyst. Helsta markmið markaðseftirlits snýst um að sannreyna hvort þær hurðagerðir sem eru seldar hérlendis geti gegnt hlutverki sínu með fullnægjandi hætti. Við framkvæmd markaðseftirlits er það því algjör grundvallarforsenda að rekstraraðilar upplýsi HMS um þær gerðir brunahólfandi innihurða sem þeir hafa framleitt og selt hér á landi og leggi fram þau gögn sem stofnunin óskar eftir.
HMS mun birta niðurstöður markaðseftirlits
HMS mun birta niðurstöður eftirlitsins eftir að rekstraraðilar hafa fengið hæfilegan frest til úrbóta. Þar munu koma fram upplýsingar um þær vörur sem ekki hafa reynst uppfylla kröfur og hvaða rekstraraðilar hafa ekki sinnt fyrirmælum um úrbætur. HMS hvetur þá rekstraraðila sem ekki hafa nú þegar skilað nauðsynlegum gögnum að gera það án tafar í tölvupósti á netfangið markadseftirlit@hms.is.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




