22. júní 2026
22. júní 2026
Alþingi framlengir óbreytt fasteignamat í Grindavík til ársins 2027
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Fasteignamat í Grindavík verður óbreytt á næsta ári
- Óvissa er um verðmæti fasteigna í bænum þar sem ekki hefur verið virkur fasteignamarkaður þar frá árinu 2023
- Matsvirði fasteigna mun miðast við áætlað gangvirði eigna í febrúar 2023
Alþingi hefur samþykkt breytingu á lögum um skráningu, merki og mat fasteigna sem framlengir óbreytt fasteignamat í Grindavíkurbæ til ársins 2027. Samkvæmt breytingunni skal fasteignamat allra fasteigna í sveitarfélaginu áfram miða við fasteignamat ársins 2024, það er gangvirði eigna í febrúar 2023. Ákvörðunin er tekin vegna áframhaldandi óvissu um verðmæti fasteigna í Grindavík í kjölfar jarðhræringa og eldsumbrota á Reykjanesskaga.
Forsendur vantar fyrir hefðbundnu fasteignamati
Fasteignamat byggir að jafnaði á mati á gangverði fasteigna út frá markaðsupplýsingum og viðskiptum sambærilegra eigna. Frá rýmingu Grindavíkurbæjar í nóvember 2023 hafa hins vegar ekki átt sér stað fasteignaviðskipti sem endurspegla eðlilega markaðsvirkni í bænum. Því liggja ekki fyrir nægjanlegar upplýsingar til að unnt sé að framkvæma nýtt fasteignamat með sambærilegum hætti og annars staðar á landinu.
Í þessu samhengi bendir HMS á að ekki sé hægt að byggja fasteignamat á þeim viðskiptum sem átt hafa sér stað í tengslum við uppkaup Fasteignafélagsins Þórkötlu, þar sem kaupverð í þeim viðskiptum var ákveðið með sérstökum lögum og endurspeglar því ekki hefðbundna markaðsverðmyndun.
Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að áfram sé veruleg óvissa um framhald eldsumbrota á Reykjanesskaga. Frá því að kvikugangur myndaðist undir Grindavík og Sundhnúksgígaröð í nóvember 2023 hafa orðið eldgos ítrekað á svæðinu og enn mælist kvikusöfnun undir Svartsengi. Af þeim sökum var lagt til í frumvarpinu að fasteignamat í Grindavík verði áfram byggt á sama verðgrunni og áður, þar til forsendur skapast til að framkvæma nýtt og áreiðanlegt mat á verðmæti fasteigna í sveitarfélaginu.
HMS ákvað við endurmat fasteignamats fyrir árin 2025 og 2026 að halda fasteignamati í Grindavík óbreyttu vegna þessa. Með nýsamþykktri lagabreytingu hefur Alþingi ákveðið að sama fyrirkomulag gildi einnig fyrir fasteignamat ársins 2027.
Nánari upplýsingar um lagabreytinguna má finna hér.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




