14. ágúst 2026

Algengast er að tímabundnir leigusamningar gildi í um það bil ár

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Um þrír af hverjum fjórum nýskráðum leigusamningum í hverjum mánuði eru tímabundnir
  • Að jafnaði er samið til um það bil eins árs í senn
  • Einungis um 4 prósent tímabundinna leigusamninga gilda í meira en tvö ár

Yfirleitt eru flestir þeirra leigusamninga sem taka gildi í leiguskrá í hverjum mánuði tímabundnir, eða að jafnaði um þrír af hverjum fjórum nýskráðum samningum. Í júlí síðastliðnum tóku til að mynda 1.852 nýir leigusamningar gildi í leiguskrá HMS, þar af 1.367 tímabundnir. Algengast er að tímabundnir leigusamningar gildi í um það bil eitt ár en sjaldgæft er að samið sé til lengri tíma en tveggja ára í senn. Þetta er meðal þess sem fram kemur í upplýsingum sem unnar hafa verið upp úr leiguskrá HMS í byrjun ágústmánaðar.

Tíma­bundn­ir leigu­samn­ing­ar gilda að jafn­aði í 11 til 13 mán­uði

Misjafnt er til hversu langs tíma er samið í tímabundnum leigusamningum, en í leiguskrá þekkist að gildistími sé allt frá innan við einum mánuði upp í rúman áratug. Að jafnaði er þó samið til um það bil eins árs í senn, en líkt og sjá má á myndinni hér að neðan hefur meðalgildistími nýrra tímabundinna samninga verið á bilinu 11 til 13 mánuðir undanfarin ár. Miðgildið hefur hins vegar verið stöðugt við 12 mánuði.

Ekki má greina miklar breytingar á tímalengd leigusamninga eftir breytingar á húsaleigulögum í september 2024 og 2025 þegar litið er til meðallengdar nýrra leigusamninga. Árið 2024 var vísitölutenging gerð óheimil á leigusamningum til 12 mánaða eða skemmri tíma en í kjölfarið lengdist meðalgildistími nýrra tímabundinna samninga lítillega. Sú breyting virðist þó að hluta til hafa gengið til baka, en í september árið 2025 var vísitölutenging gerð óheimil á fyrstu 12 mánuðum allra tímabundinna leigusamninga.

 

Sjald­gæft er að sam­ið sé til lengri tíma en tveggja ára í senn

Ef litið er á dreifingu gildistíma tímabundinna leigusamninga eftir upphafsdegi má sjá að það er algengast að samið sé til á bilinu 11 til 14 mánaða í senn. Að jafnaði hafa 62% nýrra tímabundinna leigusamninga í hverjum mánuði gildistíma á því bili, líkt og sjá má á myndinni hér að neðan.

Samið er til 10 mánaða eða skemmri tíma í um fjórðungi tímabundinna samninga en talsvert sjaldgæfara er að samið sé til 15 mánaða eða lengri tíma. Til að mynda er einungis samið til lengri tíma en tveggja ára í um 4% nýrra tímabundinna leigusamninga að meðaltali.

 

Nýr póstlisti hag­deild­ar HMS

Hagdeild HMS hefur útbúið nýjan póstlista fyrir alla sem vilja fylgjast með húsnæðismálum. Áskrifendur póstlistans munu fá helstu greiningar sendar til sín úr mánaðarskýrslum HMS, ásamt tilfallandi greiningum um fasteigna-, leigu-, lána- og byggingarmarkaðinn og auglýsingum um komandi viðburði.

Hægt er að skrá sig á póstlistann með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan.

Nýjustu tölur og mælingar HMS

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS