14. ágúst 2026
14. ágúst 2026
Afrakstur samstarfs Brunamálaskólans og viðbragðsaðila
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Nýtt kennsluefni um samskipti og samhæfingu við þyrlur Landhelgisgæslunnar hefur verið þróað fyrir viðbragðsaðila.
- Raunverulegar aðstæður voru æfðar, bæði við móttöku þyrlu á slysavettvangi og notkun þyrlu við slökkvistarf vegna gróðurelda.
- Sameiginleg þjálfun og samhæfing viðbragðsaðila styrkir samstarf, eykur öryggi og stuðlar að markvissari viðbrögðum á vettvangi.
Brunamálaskólinn hefur, í samstarfi við Landhelgisgæslu Íslands, Brunavarnir Árnessýslu, Slökkvilið Grindavíkur, Landsbjörgu, Lögregluna og Heilbrigðisstofnun Suðurlands, þróað nýtt kennsluefni um samskipti og samhæfingu við þyrlur Landhelgisgæslunnar á vettvangi.
Verkefnið var unnið sumarið 2025 þar sem settar voru upp raunverulegar aðstæður með aðkomu þyrlusveitar Landhelgisgæslunnar. Annars vegar í tengslum við almenna móttöku þyrlu á slysavettvang og hins vegar við notkun þyrla við slökkvistarf vegna gróðurelda, enda aðstæður sem allir viðbragðsaðilar á Íslandi þurfa að vera undirbúnir fyrir.
Afurð verkefnisins endurspeglar mikilvægi góðrar samvinnu og samhæfingar milli viðbragðsaðila og þann ávinning sem fæst með sameiginlegri þjálfun, miðlun reynslu og faglegri aðkomu allra sem koma að slysavettvangi eða öðrum björgunarstörfum.
HMS þakkar öllum sem komu að verkefninu fyrir faglegt framlag og vonar að það verði fyrirmynd að áframhaldandi samstarfi og samæfingum innan viðbragðskerfisins.
Meðfylgjandi myndbönd verða gerð aðgengileg sem hluti af kennsluefni fyrir viðbragðsaðila um land allt.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




