7. september 2026
7. september 2026
240 umsóknir um hlutdeildarlán samþykktar það sem af er ári
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Samþykktar umsóknir árið 2026 nema samtals um 3,5 milljörðum króna
- Uppsöfnuð eftirspurn var unnin upp í júlí
- 15 umsóknir voru samþykktar í ágúst
HMS hefur lokið úthlutun hlutdeildarlána vegna ágústmánaðar. Á fyrstu átta mánuðum ársins hafa alls 240 umsóknir um hlutdeildarlán verið samþykktar og nemur samanlögð fjárhæð þeirra um 3,5 milljörðum króna.
Eftirspurn var ítrekað umfram það fjármagn sem var til úthlutunar á fyrri hluta ársins og frá mars til júní var því fjóra mánuði í röð valið af handahófi úr hópi umsókna sem uppfylltu öll skilyrði til úthlutunar.
Uppsöfnuð eftirspurn unnin upp í júlí
Í kjölfar mikillar ásóknar á vormánuðum söfnuðust upp umsóknir sem uppfylltu skilyrði hlutdeildarlána en fengu ekki úthlutun. Í júlí dugði fjármagnið hins vegar fyrir öllum umsóknum sem uppfylltu skilyrði og tókst þá að afgreiða uppsafnaða eftirspurn eftir lánunum.
Í töflu hér að neðan má sjá fjölda og fjárhæð samþykktra umsókna námunduð að næstu milljón fyrir árið 2026
Úthlutun hlutdeildarlána í ágúst
Alls voru 32 umsóknir til yfirferðar vegna úthlutunar í ágúst. Eftir yfirferð voru 15 umsóknir samþykktar og nam samanlögð fjárhæð þeirra 225,7 milljónum króna.
Samþykktar umsóknir dreifðust á sjö sveitarfélög. Af 15 samþykktum umsóknum voru níu vegna kaupa á höfuðborgarsvæðinu.
Fjölda og fjárhæð samþykktra umsókna í ágúst, námunduð að næstu milljón, má sjá í töflu hér að neðan.
Opið fyrir umsóknir til 14. september
Hlutdeildarlán eru veitt til kaupa á nýjum íbúðum og eru ætluð fyrstu kaupendum, og þeim sem ekki hafa átt fasteign síðustu fimm ár og eru undir tilteknum tekjumörkum. Markmið lánanna er að aðstoða kaupendur við að komast inn á húsnæðismarkaðinn með því að brúa bilið við fasteignakaup.
Úthlutað er í hverjum mánuði og er nú opið fyrir umsóknir til 14. september. Til úthlutunar að þessu sinni eru að lágmarki 630 milljónir króna.
Nánari upplýsingar um hlutdeildarlán og umsóknarferlið má finna á Ísland.is.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




