2025
Vetrargarðar – millirými milli byggingar og umhverfis

Askur - mannvirkjarannsóknasjóður

2025

Vetrargarðar – millirými milli byggingar og umhverfis

- Askur - mannvirkjarannsóknasjóður
Vetrargarðar – millirými milli byggingar og umhverfis

Askur - mannvirkjarannsóknasjóður

Vetrargarðar – millirými milli byggingar og umhverfis

- Askur - mannvirkjarannsóknasjóður

Auður Hreiðarsdóttir

Vetrargarðar – millirými milli byggingar og umhverfis

Vetr­ar­garð­ar – milli­rými milli bygg­ing­ar og um­hverf­is

Vetrargarður er óupphituð viðbót við byggingu sem myndar millirými milli úti- og innirýma. Vetrargarður nýtir sólarhita allt árið í samspili við aðstæður og getur þannig framlengt sumartímann.

Slík rými eiga sérstaklega vel við í íslensku samhengi, þar sem veðurfar er í kaldara lagi, sólarstaða lág stóran hluta ársins og þörf er á rýmum sem geta brugðist við mismunandi veðuraðstæðum. Þrátt fyrir að vetrargarðar og skyldar lausnir hafi verið notaðar hérlendis, oft í formi lokaðra glersvala, er svigrúm til frekari þróunar og dýpri greiningar á möguleikum slíkra rýma sem virkra hluta bygginga allt árið.

Í þessu samhengi vaknar spurningin: hvernig er hægt að hanna vetragarða sem nýta dagsbirtu, sólarhita og orku á sveigjanlegan hátt? Rými sem á köldum mánuðum verða hluti af innra rými byggingarinnar, en geta á hlýjum dögum opnast og umbreyst í björt, loftgóð og skjólgóð útirými. Er hægt að nýta orkuna frá geislun og hita sem safnast fyrir í slíku rými?

Markmið verkefnisins er að rannsaka og þróa vetragarða sem eru sérsniðnir að íslenskum aðstæðum, stuðla að hagkvæmri orkunýtingu og auka gæði dagsbirtu og rýmisupplifunar. Með rannsókn, mælingum, líkanagerð og hönnunartilraunum verða prófaðar mismunandi útfærslur til að kanna hvernig slíkt millirými getur verið virkt, sveigjanlegt og aðlaðandi fyrir notendur.