2022
Uppsetning á loftskiptakerfi á köldu svæði og áhrif á orkunotkun
Askur - mannvirkjarannsóknasjóður
2022
Uppsetning á loftskiptakerfi á köldu svæði og áhrif á orkunotkun
- Askur - mannvirkjarannsóknasjóður
Uppsetning á loftskiptakerfi á köldu svæði og áhrif á orkunotkun
Askur - mannvirkjarannsóknasjóður
Uppsetning á loftskiptakerfi á köldu svæði og áhrif á orkunotkun
- Askur - mannvirkjarannsóknasjóður
Eiríkur Ástvald Magnússon
Uppsetning á loftskiptakerfi á köldu svæði og áhrif á orkunotkun
Verkefnið er í vinnslu, áætluð skil eru 31. desember 2025.
Markmið verkefnisins er að greina orkunotkun í íbúðarhúsnæði á köldum svæðum fyrir og eftir uppsetningu loftskiptakerfis. Með verkefninu verða til raunmæligögn um virkni varmaendurvinnslu í loftskiptakerfum fyrir íbúðarhúsnæði. Með köldum svæðum er átt við svæði þar sem hús eru hituð með rafmagns- eða olíukyndingu.
Loftskipti í íbúðarhúsnæði eru nauðsynleg bæði fyrir húsnæðið sjálft og heilsu íbúa. Þau draga úr raka, koltvísýringi og öðrum efnum sem geta safnast upp í innilofti og tryggja jafnframt innstreymi fersks lofts, sem skiptir máli fyrir heilsu og vellíðan íbúa. Notaðar eru mismunandi aðferðir við loftræsingu íbúðarhúsnæðis, þar á meðal náttúruleg loftræsting, vélræn útsogskerfi og loftskiptakerfi.
