2022
Loftskipti og loftræsing í grunnskólum

Askur - mannvirkjarannsóknasjóður

2022

Loftskipti og loftræsing í grunnskólum

- Askur - mannvirkjarannsóknasjóður
Loftskipti og loftræsing í grunnskólum

Askur - mannvirkjarannsóknasjóður

Loftskipti og loftræsing í grunnskólum

- Askur - mannvirkjarannsóknasjóður

Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir, Grímur Snorrason, Böðvar Bjarnason, Verkvist

Loftskipti og loftræsing í grunnskólum

Loftskipti og loftræsing í grunnskólum

Lokaskýrsla fyrir Ask - mannvirkjarannsóknasjóð

Loftskipti og loftræsing í grunnskólum

Hluti af niðurstöðum er B.Sc lokaverkefni Gríms Snorrasonar

Loft­skipti og loft­ræs­ing í grunn­skól­um

Fjöldi nýlegra rannsókna sýnir að loftgæði í skólastofum hafa afgerandi áhrif á einbeitingu, vellíðan og námsárangur nemenda. Of hátt CO₂-magn og ófullnægjandi loftræsing tengist verri frammistöðu í prófum, aukinni þreytu, einbeitingarskorti og jafnvel aukinni fjarveru.

Staðan á Íslandi er sú að margar skólabyggingar, og þá einkum þær eldri, voru hannaðar án virks loftræstikerfis. Þess í stað var treyst á opnanlega glugga og náttúrulega loftræsingu sem virkaði oft illa, sérstaklega í köldu og vindasömu loftslagi þar sem gluggar voru lokaðir mestan hluta ársins. Ný rannsókn á 2444 kennslustofum sýndi að í 81% þeirra var CO₂-styrkur yfir viðmiðunarmörkum (1000 ppm), sem tengdist lakari einbeitingu, höfuðverk og minni námsárangri.

Þó náttúruleg loftræsing geti virkað í hlýjum og rólegum veðurfarsaðstæðum, sýna rannsóknir að það þarf sérstaka hönnun og þá með áherslu á staðsetningu gluggaopnana, loftflæði og skipulag til þess að hún sé árangursrík. Slík hönnun var sjaldgæf eða lítið þekkt í íslenskum skólum. Þar að auki sýndu mælingar að jafnvel þegar gluggar voru opnir, náðist oft ekki nægileg loftskipti á veturna án þess að skerða til að mynda varmaþægindi.

Síðustu misseri hafa komið fram víðtækar rakaskemmdir í skólahúsnæði með þeim afleiðingum að loftgæði voru skert. Loftgæði í grunnskólum hérlendis höfðu ekki verið rannsökuð að neinu marki og þetta verkefni gaf innsýn í það hvort þörf væri á aðgerðum varðandi loftskipti. Loftskipti, eða það að skipta fersku útilofti inn fyrir mengaðra inniloft, voru einn stærsti þáttur í að viðhalda viðunandi inniloftsgæðum í rýmum sem voru í notkun.