2025
Askur - mannvirkjarannsóknasjóður
2025
Innivist - hvað, hvenær og hvernig?
- Askur - mannvirkjarannsóknasjóður
Askur - mannvirkjarannsóknasjóður
Innivist - hvað, hvenær og hvernig?
- Askur - mannvirkjarannsóknasjóður
Ásta Logadóttir
Innivist - hvað, hvenær og hvernig?
Innivist - hvað, hvenær og hvernig?
Megin markmið verkefnisins er að gefa út leiðbeiningar sem safna saman þekkingu og viðmiðum til að styðja við góða innivist í byggingum á Íslandi.
Leiðbeiningarnar gilda bæði fyrir nýbyggingar og endurnýjun frá frumhönnunardrögum til forritunar, framkvæmda og reksturs.
Markmið leiðbeininganna er að auðvelda ákvarðanatöku og leiðbeina um einstaka innivistarþætti ásamt því að benda á hvaða þættir hafa innbyrðis áhrif á hvorn annan. T.d. hefur val á glertegund áhrif á hita, ljós og hljóð í byggingum. Þetta er gert í samhengi við önnur markmið bygginga svo sem loftslagsáhrif, orkunýtni, kostnaður, líftími og rekstur.
Verkefnið byggir á dönskum bransaleiðbeiningum um innivist og snýst um að aðlaga þær að íslenskum aðstæðum. Í ferlinu verður sérstaklega tekið tillit til íslenskrar byggingarreglugerðar, Svanvottunar og Breeam-staðalsins. Dönsku viðmiðin verða notuð sem grunnur, en jafnframt verður lögð fram tillaga að íslenskum viðmiðum, byggð á sameiginlegri greiningu á kröfum byggingarreglugerðarinnar, Svansins og Breeam varðandi innivist í atvinnu- og íbúðarhúsnæði. Við staðfæringu leiðbeininganna yfir á íslenskar aðstæður verður einnig stuðst við þær íslensku heimildir sem eru aðgengilegar fyrir málefnið.
