2022
Hringrás auðlinda og lækkað kolefnispor íslenskra bygginga

Askur - mannvirkjarannsóknasjóður

2022

Hringrás auðlinda og lækkað kolefnispor íslenskra bygginga

- Askur - mannvirkjarannsóknasjóður
Hringrás auðlinda og lækkað kolefnispor íslenskra bygginga

Askur - mannvirkjarannsóknasjóður

Hringrás auðlinda og lækkað kolefnispor íslenskra bygginga

- Askur - mannvirkjarannsóknasjóður

Björt Ólafsdóttir

Hringrás auðlinda og lækkað kolefnispor íslenskra bygginga

Verk­efn­ið er í vinnslu, áætl­uð skil eru 22. mars 2024.

IÐA þróunarfélag stendur að verkefninu og leiðir saman teymi arkitekta, verkfræðinga og sérfræðinga á sviði sjálfbærni, í samstarfi við þrjú fyrirtæki sem eiga það sameiginlegt að búa yfir efniviði sem unnt er að endurnýta. Með þróun og nýsköpun geta þau þjónað byggingariðnaðinum við uppbyggingu mannvirkja með minna kolefnisspori en nú tíðkast á Íslandi. IÐA stendur jafnframt fyrir fasteignaþróun grænna fjölbýla sem bera með sér lægra kolefnisspor en almennt gerist hér á landi.

Markmið verkefnisins er að draga úr auðlindanýtingu og kolefnisspori með þróun hringrásarlausna fyrir dýrmætar auðlindir í þágu loftslagsins, með því að hanna og þróa byggingarefni úr afgöngum og úrgangi. Úrgangsefnum frá þremur iðnfyrirtækjum verður þannig breytt í ný byggingarefni sem nýtast í mannvirkjagerð. Efniviðurinn verður notaður í tilraunahús sem miðar að verulegri lækkun kolefnislosunar miðað við viðmiðunarhús. Til lengri tíma er markmiðið að byggingariðnaðurinn í heild sinni geti nýtt sér þær lausnir sem þróaðar verða.