2024
Hermun og bestun á loftræstikerfi

Askur - mannvirkjarannsóknasjóður

2024

Hermun og bestun á loftræstikerfi

- Askur - mannvirkjarannsóknasjóður
Hermun og bestun á loftræstikerfi

Askur - mannvirkjarannsóknasjóður

Hermun og bestun á loftræstikerfi

- Askur - mannvirkjarannsóknasjóður

Jóhannes Loftsson

Hermun og bestun á loftræstikerfi

Verk­efn­ið er í vinnslu, áætl­uð skil eru 10. apr­íl 2026.

Verkefnið er framhald af öðru verkefni sem unnið var með styrk frá Aski, þar sem lögð var áhersla á hönnun nýrrar tegundar loftræstibúnaðar. Verkefnið gekk vonum framar og samhliða frágangi á hönnun náðist samstarf við erlendan aðila sem nú er að smíða frumgerð sem hann mun prófa. Þar sem allar prófanir verða framkvæmdar af honum er hægt að sleppa nokkrum skrefum í aðkomu búnaðarins á markað.

Ákveðnir þættir hönnunarinnar eru þó enn á frumstigi og talsverður möguleiki er á að bæta hana enn frekar, þó óljóst sé á þessu stigi hversu umfangsmiklar þær betrumbætur gætu orðið. Ein einföld leið til að greina og stuðla að slíkum umbótum er með notkun hermunarforrita. Hjá Verkís starfa sérfræðingar á því sviði og með slíkri vinnu mun vera hægt að kortleggja betur möguleika á umbótum og hvernig best er að þeim staðið.

Þessar upplýsingar eru afar mikilvægar fyrir verkefnið og munu jafnframt nýtast vel við að kynna styrkleika lausnarinnar. Verkefnið mun því annars vegar snúast um að ljúka þrívíddarteikningum af frumgerðinni sem er í smíðum og færa þær á það form að þær nýtist Verkís við gerð tölvuhermunarlíkans. Í framhaldinu mun Verkís, sem er meðeigandi Breather Ventilation, setja upp hermilíkan byggt á núverandi frumgerð og prófa það með hliðsjón af raunverulegum mælingum.