2025
Askur - mannvirkjarannsóknasjóður
2025
Hagnýtt mat á umhverfisvænni steypu við íslenskar aðstæður
- Askur - mannvirkjarannsóknasjóður
Askur - mannvirkjarannsóknasjóður
Hagnýtt mat á umhverfisvænni steypu við íslenskar aðstæður
- Askur - mannvirkjarannsóknasjóður
Gísli Guðmundsson
Hagnýtt mat á umhverfisvænni steypu við íslenskar aðstæður
Hagnýtt mat á umhverfisvænni steypu við íslenskar aðstæður
Þrátt fyrir að verulegur árangur hafi náðst á undanförnum árum í þróun umhverfisvænnar steypu sækist byggingarmarkaðurinn almennt ekki eftir slíkum lausnum. Markmið verkefnisins er að staðfesta með kerfisbundnum prófunum þann árangur sem þegar hefur náðst hér á landi við þróun umhverfisvænnar og endingargóðrar steypu sem hentar íslenskum veðuraðstæðum.
Með auknum kröfum um sjálfbærni í mannvirkjagerð er brýn þörf á áreiðanlegri þekkingu á því hvernig megi draga úr sementsmagni án þess að skerða burðarþol, endingu eða notagildi mannvirkja. Meginmarkmið verkefnisins er að kanna hvort og hve mikið megi lækka sementsmagn í steypu með því að bæta sementsminnkun upp með fínmöluðum íslenskum íaukum, einkum móbergi/basalti með lágt kolefnisspor, þ.e.a.s. á efnum sem grunnrannsóknir hafa þegar verið gerðar. Steypusamsetningar verða þróaðar og prófaðar með tilliti til íslensks veðurfars, þ.e. frost- og þíðuálag og kolsýring. Prófanir munu ná bæði til hefðbundinna húsbygginga og burðarmeiri hluta, t.d. súlur/eftirs. plötur.
Áhersla verður lögð á endingu steypu og tengsl hennar við steypuhulu járna. Gerðar verða mælingar á klórleiðni og kolsýringu fyrir mismunandi steypugerðir til að skapa vísindalegan grunn fyrir íslenskar leiðbeiningar um ákvörðun hulu, í samræmi við nýjar heimildir í evrópskum hönnunarstöðlum og aðlagaðar íslensku veðurfari. Jafnframt verður hörðnun steypunnar rannsökuð til að tryggja sambærilegan byggingarhraða og í hefðbundinni steypu án íauka, en íaukarnir hafa að óbreyttu tilhneigingu til að hægja á hörðnun.
Niðurstöður verkefnisins munu nýtast við ákvarðanir um steypugerð, hönnun og kröfur við íslenskar aðstæður og leggja grunn að mannvirkjagerð með lægra kolefnisspori.
