2025
Efnisheimar
Askur - mannvirkjarannsóknasjóður
2025
Efnisheimar
- Askur - mannvirkjarannsóknasjóður
Efnisheimar
Askur - mannvirkjarannsóknasjóður
Efnisheimar
- Askur - mannvirkjarannsóknasjóður
Anna Kristín Karlsdóttir
Efnisheimar
Efnisheimar
Markmið verkefnisins er að safna, samræma og setja í samhengi þekkingu um byggingarefni og byggingaraðferðir á Íslandi, frá landnámi til dagsins í dag. Verkefnið miðar að því að dýpka og greina fyrirliggjandi gögn og heimildir og draga fram þekkingu og reynslu sem hefur tapast eða orðið ósýnileg. Jafnframt er unnin kerfisbundin samantekt á rannsóknum og gögnum og greindar kerfislægar hindranir sem hafa áhrif á nýtingu þekkingar í framkvæmd. Þróuð verður sameiginleg verkfærakista fyrir byggingarefni og byggingaraðferðir. Niðurstöður verða settar fram í opinni, stafræni útgáfu sem styrkir þekkingargrunn íslenskrar mannvirkjagerðar og styður upplýstar ákvarðanir um hið byggða umhverfi.
